Fyrsti viðskiptavinur OK sem nýtir sér þessa nýju lausn er Kaupfélag Skagfirðinga.
„Við leggjum mikla áherslu á stöðugleika í rekstri okkar og viljum tryggja að við getum sinnt okkar hlutverki óháð aðstæðum. Lausnin frá OK fellur vel að okkar öryggiskröfum og styrkir innviði okkar enn frekar,“ segir Björn Ingi Björnsson, hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, í tilkynningu.
Varaleiðin byggir samkvæmt tilkynningunni eingöngu á gervihnattasamböndum og er hönnuð fyrir mikilvæga innviði en ekki almennan markað. OK mun bjóða lausnina til fyrirtækja og stofnana sem teljast kerfislega mikilvæg og hvetur þau til að kynna sér þjónustuna og hafa samband.
„Við erum virkilega stolt af því að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á þessa nýju varaleið. Hún virkjast sjálfkrafa ef fjarskiptasamband rofnar og krefst engrar tæknivinnu á staðnum – það er einfalt, öruggt og mikilvægt,“ segir Halldór Áskell Stefánsson, framkvæmdastjóri Skýja- og rekstraþjónustu hjá OK, í sömu tilkynningu.