Innlent

Land­ris heldur á­fram en dregið hefur úr hraðanum

Atli Ísleifsson skrifar
Landris er nú svipað og fyrir eldgosið sem hófst 1. apríl síðastliðinn. Myndin er úr safni.
Landris er nú svipað og fyrir eldgosið sem hófst 1. apríl síðastliðinn. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Landris í Svartsengi heldur áfram, en töluvert hefur dregið úr hraða þess og er nú svipað og fyrir eldgosið sem hófst 1. apríl síðastliðinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofunnar. Þar segir að á meðan kvikusöfnun haldi  áfram undir Svartsengi þurfi að reikna með endurteknum kvikuhlaupum og jafnvel eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni.

„Veðurstofan heldur áfram að fylgjast með þróun kvikusöfnunarinnar og að meta mögulegar sviðsmyndir út frá nýjustu gögnum.

Kortið sýnir yfirfarna jarðskjálfta á Reykjanesskaga síðastliðna viku. Flestir skjálftanna mældust við kvikuganginn sem myndaðist 1. apríl og í vestanverðu Fagradalsfjalli. Litamismunur á punktunum merkir tímamismun á jarðskjálftunum, þar sem rauðleitu punktarnir eru jarðskjálftar sem voru síðasta sólahringinn en þeir bláu fyrir um viku.Veðurstofan

Smáskjálftavirkni mælist áfram við kvikuganginn sem myndaðist 1.apríl og mælast að meðaltali um hundrað jarðskjálftar á dag síðustu viku. Flestir skjálftarnir eru undir 1 að stærð en stærsti skjálftinn mældist 1,7 að stærð í síðastliðinni viku. Þá mældist einnig nokkur smáskjálftavirkni við Fagradalsfjall síðastliðnu helgi. Hæglætis veður hefur verið síðustu daga og því hefur mælanetið numið allra minnstu skjálftana sem annars myndu ekki mælast vegna veðurhávaða.

Hættumatskortið hefur verið uppfært og gildir til 6. maí að öllu óbreyttu,“ segir í tilkynningunni.

Veðurstofan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×