Hikar ekki við að lögsækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 1. maí 2025 22:58 Böðvar Bjarki Pétursson, stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands. Vísir/Ívar Fannar Stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands segist ekki hika við að lögsækja Rafmennt skyldu þeir nota nafn Kvikmyndaskóla Íslands eða námskránna sem notast var við. Námskráin sé hans eigin hugarsmíð.
Forsaga málsins er sú að rekstrarfélag Kvikmyndaskóla Íslands var úrskurðað gjaldþrota. Eftir ítrekaðar beiðnir frá stjórnendum skólans um að menntamálaráðherra myndi aðstoða þau tilkynnti ráðuneytið að nemendunum stæði til boða að halda námi sínu áfram í Tækniskólanum. Samhliða yrði þróuð námsbraut í kvikmyndagerð. Nemendurnir voru afar ósáttir með fyriráætlanirnar og afþökkuðu boðið um að skipta yfir í Tækniskólann. Að lokum varð það þekkingarfyrirtækið Rafmennt sem tók yfir rekstur skólans. Í Kvikmyndaskólanum voru hins vegar tvö rekstrarfélög, annars vegar Kvikmyndaskóli Íslands fyrir íslenska nemendur og svo Icelandic Film School fyrir utanumhald um erlenda nemendur. Allir nemendur skólans, íslenskir eða erlendir, stunduð sama nám. Rekstrarfélag Icelandic Film School er enn í eigu Böðvars Bjarka Péturssonar, stofnanda Kvikmyndaskóla Íslands. Í bréfi sem Böðvar sendi á Þór Pálsson, framkvæmdastjóra Rafmenntar neitar hann Rafmennt um að nota nafnið Kvikmyndaskóli Íslands þar sem nafnið sé ekki söluvara. „Þér, sem hafið verið nefndur sem kaupandi að nafninu, munið nú nota nafnið fyrir sömu starfsemi og Icelandic Film School rekur og er því alfarið mótmælt og hér með krafist að notkun nafnsins verði hætt þegar í stað,“ stendur í bréfinu. Böðvar segir einnig rangt að námskrár Kvikmyndaskólans og Icelandic Film School séu taldar hafa ekkert verðgildi. Þar sem hvorugt rekstrarfélagið hafi fengið opinbera fjárveitingu fyrir þróun kennsluskránna séu þær höfundarverk Böðvars sjálfs. „Þess er krafist að leitað sé heimilda til notkunar,“ skrifar hann. „Okkur skilst að þér hafið nú þegar gjaldfellt námið gagnvart nemendum með því að segja upp starfsfólki í fjölmörgum lykilstöðum, auk þess að gefa út yfirlýsingar um að gjörbreyta starfseminni.“ Böðvar segist ekki hika við að lögsækja Rafmennt hyggist þeir nota nafnið Kvikmyndaskóli Íslands eða notist við kennsluskrá eða skipulag skólans án heimilda.
Málefni Kvikmyndaskóla Íslands Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Skóla- og menntamál Mest lesið „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ Innlent „Vona að þú sofir vel“ Innlent Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Innlent Kári var harðákveðinn að hætta ekki sem forstjóri Innlent Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Innlent „Ég meina, hann er að missa fyrirtækið sitt“ Innlent Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu Innlent Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Innlent „Við gerum ekki svona við börn“ Innlent Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Innlent Fleiri fréttir Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ „Vona að þú sofir vel“ Eldur í ruslabíl vestur í bæ Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Mannréttindadómstóllinn blandar sér í Vatnsendamálið „Mér finnst þetta ómöguleg framkoma“ Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Óljóst hvers vegna ferðamanni var haldið í gíslingu Borgarstjóri sé brennuvargur en Framsókn í slökkviliðinu „Ég meina, hann er að missa fyrirtækið sitt“ Sindri og Védís Hervör til Kópavogsbæjar Bókhaldstækni og aukin skattheimta skýri afganginn Tæplega tíu milljarða viðsnúningur Kári var harðákveðinn að hætta ekki sem forstjóri Stuðningsmenn Oscars mótmæltu og Kári Stefáns hættur Bein útsending: Kynna ársreikning Reykjavíkurborgar „Við gerum ekki svona við börn“ Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Líkamsárásir og brotist inn í raftækjaverslun Grunaður um að hafa frelsissvipt ferðamann í nokkrar klukkustundir Hikar ekki við að lögsækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans Myndaveisla: Lúðrasveit, fánar og gríðarstór stytta á Verkalýðsdaginn Kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda gagnvart börnum Fulllestað og veikt flutningskerfi raforku Þekkir ofbeldið sem konur í karllægum störfum verða fyrir Vilja móta samfélagið í þágu vinnandi fólks Sjá meira