Viðskipti erlent

Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa

Samúel Karl Ólason skrifar
Forsvarsmenn McDonald's segja að neikvæði í garð Bandaríkjamanna í Kanada og víðar virðist ekki hafa haft slæm áhrif á keðjuna.
Forsvarsmenn McDonald's segja að neikvæði í garð Bandaríkjamanna í Kanada og víðar virðist ekki hafa haft slæm áhrif á keðjuna. AP/Gene J. Puskar

Mikill samdráttur hefur orðið á sölu hjá hamborgarakeðjunni McDonald‘s í Bandaríkjunum á fyrsta ársfjórðungi. Salan lækkaði um 3,6 prósent sem er mesta lækkunin hjá keðjunni frá árinu 2020, þegar Covid var og hét og loka þurfti verslunum og veitingastöðum.

Chris Kempczinski, forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækisins, segir að viðskiptavinir úr hópi lágtekjufólks og millistéttinni, sem hafi miklar áhyggjur af verðbólgu og versnandi efnahagsaðstæðum, hafi dregið verulega úr kaupum sínum á skyndibitum.

AP fréttaveitan hefur eftir forstjóranum að fyrirtækið geti staðið af sér þetta óveður betur en margir aðrir. McDonald‘s væri þó ekki ónæmt fyrir slæmum vendingum. Önnur fyrirtæki á markaði skyndibita vestanhafs hafa birt sambærileg ársfjórðungsuppgjör að undanförnum.

Á heimsvísu lækkaði salan hjá McDonald‘s um eitt prósent á fyrsta ársfjórðungi. Aukning varð á sölu í Japan, Kína og Mið-Austurlöndum og er það sagt hafa mildað samdrátt annars staðar í heiminum.

Greinendur höfðu spáð um tveggja prósenta söluaukningu á heimsvísu.

Kempczinski sagði við hluthafa í gær að forsvarsmenn fyrirtækisins hefðu búist við því að fyrsti ársfjórðungurinn yrði sá versti á árinu. Horfur fyrir næsta hafi þegar skánað töluvert. Forsvarsmenn fyrirtækisins standa enn við tekjuspár fyrir árið allt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×