Erlent

Merz náði kjöri í annarri til­raun

Kjartan Kjartansson skrifar
Klappað var fyrir Friedrich Merz (2.f.v.) eftir að hann var kjörinn kanslari í annarri tilraun í þýska þinginu í dag.
Klappað var fyrir Friedrich Merz (2.f.v.) eftir að hann var kjörinn kanslari í annarri tilraun í þýska þinginu í dag. Vísir/EPA

Þýska þingið staðfesti kjör Friedrich Merz, leiðtoga Kristilegra demókrata, sem næsta kanslara Þýskalands. Merz beið niðurlægjandi og sögulegan ósigur þegar þingið greiddi fyrst atkvæði um tilnefningu hans í morgun.

Uppnám varð í morgun þegar tilnefning Merz sem kanslara var felld. Það var í fyrsta skipti í sögu Þýskalands eftir seinna stríð sem kanslaraefni náði ekki kjöri í fyrstu lotu. Merz vantaði sex atkvæði upp á til að ná kjöri þrátt fyrir að Kristilegir demókratar (CDU/CSU) og Sósíademókratar (SPD) hafi saman tólf sæta meirihluta á þinginu.

Atkvæðagreiðslurnar eru leynilegar og því liggur ekki fyrir hvaða þingmenn verðandi stjórnarflokkanna hlupust undan merkjum í morgun. Níu þingmenn greiddu ekki atkvæði og þrír skiluðu auðu en 307 greiddu atkvæði gegn Merz. Vitað var að ekki væri fullkominn einhugur innan SPD um stjórnarsamstarfið.

Allir flokkarnir á þingi greiddu atkvæði með því að önnur atkvæðagreiðsla yrði haldin strax í dag. Í annarri atrennunni sem var haldin nú um miðjan dag hlaut Merz 325 atkvæði en hann þurfti 316 til þess að ná kjöri. Í þetta skiptið greiddu 289 þingmenn atkvæði gegn honum.

Þingmenn risu á fætur og klöppuðu Merz lof í lófa eftir að úrslitin lágu fyrir, að sögn danska ríkisútvarpsins.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×