Formúla 1

Var í líf­stíðar­banni en er nú aftur orðinn liðs­stjóri í For­múlu 1

Aron Guðmundsson skrifar
Franco Colapinto, aðalökumaður Alpine í Formúlu 1 og Flavio Briatore, nýráðinn liðsstjóri liðsins.
Franco Colapinto, aðalökumaður Alpine í Formúlu 1 og Flavio Briatore, nýráðinn liðsstjóri liðsins. Vísir/Samsett mynd

Miklar breytingar hafa átt sér stað hjá Formúlu 1 liði Alpine undanfarinn sólarhring. Umdeildur en sigursæll liðsstjóri snýr aftur og þá hefur liðið ákveðið að hrófla ökumannsteymi sínu.

Í morgun var það staðfest að ástralski ökumaðurinn Jack Doohan, sem vermt hefur eitt af ökumannssætum Alpine í upphafi yfirstandandi tímabils, yrði skipt út fyrir Argentínumanninn Franco Colapinto sem var fenginn til liðs við Alpine frá Williams fyrir tímabilið eftir að hafa komið inn af þónokkrum krafti með liðinu á síðasta tímabili.

Breytingar sem ekki er hægt að segja að komi á óvart þar sem að orðrómur þess efnis að Doohan yrði ekki lengi aðalökumaður Alpine fór á kreik í raun um leið og Colapinto gekk til liðs við liðið.

Argentínumaðurinn fær samning sem gildir aðeins næstu fimm keppnishelgar og er það nú undir honum komið að vinna sér inn enn þá lengri samning.

En það eru ekki einu breytingarnar hjá franska liðinu. Því í gær var greint frá því að reynsluboltinn Flavio Briatore, sem hefur unnið til heimsmeistaratitla með liðum Benetton og Renault í gegnum tíðina og sinnt hefur ráðgjafahlutverki hjá Alpine, myndi taka við sem liðsstjóri liðsins en Oliver Oakes sem gegndi þeirri stöðu sagði starfi sínu lausu í gær.

Briatore er skrautlegur karakter svo ekki meira sé sagt og mörgum ferskt í minni samstarf hans með Fernando Alonso á sínum tíma hjá Renault.

Saga Briatore og Formúlu 1 er ekki beint klippt og skorin. Á sínum tíma fékk Ítalinn lífstíðarbann í Formúlu 1 fyrir aðild sína að Crashgate skandalnum svokallaða árið 2008 sem lesa má allt um í greininni hér fyrir neðan:

Lífstíðarbanni Briatore var hins vegar aflétt af Alþjóða akstursíþróttasambandinu (FIA) árið 2013 og því ekkert sem gat komið í veg fyrir frekari þátttöku hans í mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×