Leik lokið: Tindastóll-Breiðablik 1-5 | Berg­lind með tvö á Króknum

Arnar Skúli Atlason skrifar
Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði tvö mörk á Króknum í kvöld og er orðin markahæst í deildinni.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði tvö mörk á Króknum í kvöld og er orðin markahæst í deildinni. Vísir/Diego

Íslandsmeistarar Breiðabliks eru með þriggja stiga forystu á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta eftir 5-1 stórsigur á Tindastól á Sauðárkróki í kvöld.

Stólarnir komust óvænt yfir með marki Birgittu Rúnar Finnbogadóttur eftir fimmtán mínútna leik en Blikar sneru leiknum fljótt við og unnu að lokum öruggan sigur.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Blika en Birta Georgsdóttir, Andrea Rut Bjarnadóttir og Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoruðu hin mörkin.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira