Innlent

Bein út­sending: Að­gerðir til að bregðast við raka­skemmdum og öðrum byggingagöllum

Atli Ísleifsson skrifar
Sífelldur fréttaflutningur af lekamálum, myglu og öðrum vandamálum í nýreistum húsum eru sögð sýna að núverandi kerfi sé ekki að virka sem skyldi.
Sífelldur fréttaflutningur af lekamálum, myglu og öðrum vandamálum í nýreistum húsum eru sögð sýna að núverandi kerfi sé ekki að virka sem skyldi. Vísir/Arnar

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stendur fyrir fundi þar sem fjallað um þann mikla vanda sem blasir við vegna myglu, rakaskemmda og byggingargalla hér á landi.

Fundurinn hefst klukkan 11 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. Á fundinum verður jafnframt kynntur glænýr Vegvísir HMS um breytt byggingareftirlit.

Í tilkynningu segir að undanfarin ár hafi eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði stóraukist.

„Aukin pressa hefur myndast á þá sem koma að byggingarframkvæmdum til þess að koma íbúðum í sölu. Þetta getur leitt til mistaka sem leiða til galla í fasteignunum. Erfitt getur verið fyrir neytendur að fá tjónið bætt og jafnvel að átta sig á því hver beri ábyrgð á gallanum. Er það verkeigandinn, iðnmeistari, hönnuður, byggingarstjóri, byggingarfulltrúi eða einhver annar?

Á fundinum verður fjallað um þann mikla vanda sem blasir við vegna myglu, rakaskemmda og byggingargalla hér á landi.Vísir/Vilhelm

Vilji er hjá stjórnvöldum til að bregðast við og taka byggingareftirlit til róttækrar endurskoðunar. HMS telur að með því megi draga úr tjóni almennings, fyrirtækja og opinberra aðila vegna kostnaðarsamra viðgerða og gallamála. Sífelldur fréttaflutningur af lekamálum, myglu og öðrum vandamálum í nýreistum húsum sýni að núverandi kerfi sé ekki að virka sem skyldi og HMS er nú að stíga skref í að undirbúa alvöru umbætur í málaflokknum,“ segir í tilkynningunni.

Dagskrá:

Opnun fundarins

Hermann Jónasson, forstjóri HMS

Af hverju breytt byggingareftirlit?

Þórunn Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri sviðs mannvirkja- og sjálfbærni hjá HMS

Rakaskemmdir í nýlegu húsnæði

Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, eigandi Verkvistar

Pallborðsumræður um byggingagalla í nýbyggingum

Þorgils Sigvaldason, keypti hús sem reyndist ónýtt árið 2017

Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðasviðs hjá Hornsteini

Þórunn Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri sviðs mannvirkja- og sjálfbærni hjá HMS

Sigmundur Grétar Hermannsson, eigandi Fagmats

Þórhallur Gunnarsson stýrir pallborðsumræðunum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×