Lífið

María Birta og Elli orðin tveggja barna for­eldrar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fox fjölskyldan hefur stækkað og hjörtun með   Við kynnum dóttur okkar - Naja Elladóttir Fox

Listahjónin María Birta Fox og Elli Egilsson Fox eru orðin tveggja barna foreldrar en nýverið bættist lítil stúlka við fjölskylduna. Hjónin greindu frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram í gær.

„Fox fjölskyldan hefur stækkað og hjörtun með. Við kynnum dóttur okkar, Naja Elladóttir Fox,“ skrifuðu hjónin við fallega mynd af sér með dæturnar tvær í fanginu.

María Birta og Elli hafa síðustu fjögur ár tekið börn að sér í tímabundið fóstur, eftir að þau fluttu frá Los Angeles til Las Vegas í Bandaríkjunum. Þar búa þau nú ásamt dætrum sínum, Ingaciu og Naju.

Í júní í fyrra ræddi Elli í fyrsta sinn opinberlega um foreldrahlutverkið við Gumma kíró í hlaðvarpsþættinum Tölum um. 

„Við erum stolt fósturforeldrar og tökum að okkur börn sem vantar heimili – oftast í stuttan tíma,“ sagði Elli í þættinum.

Elli sagði einnig frá því að Maríu hafi dreymt um að ættleiða og hjálpa börnum frá því hún var barn.

„Í Las Vegas kynntist hún yfirmanni sínum sem vissi allt um ættleiðingarkerfið. Þetta er eitthvað sem maður heyrir ekki mikið um sérstaklega ekki á Íslandi. Það er svo mikið af börnum sem vantar hjálp. Við erum með opið heimili fyrir börn, sérstaklega lítil börn,“ sagði hann.

Í febrúar í fyrra fengu hjónin bandarískan ríkisborgararétt. Við það tilefni tóku þau upp sameiginlegt eftirnafn, Fox, til að einfalda nafnanotkun og styrkja fjölskyldutengslin.

„Það var oft ruglingslegt að vera með mismunandi eftirnöfn og enginn gat borið þau rétt fram. Við erum því öll með eftirnafnið Fox núna,“ sögðu þau í færslu á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.