

Atvinnulíf fjallar á fjölbreyttan hátt um stjórnun, mannauðsmál, fyrirtækjamenningu, jafnvægi heimilis og vinnu og fleira.
Rannsókn sem gerð var meðal 900 fyrirtækja í Bandaríkjunum á dögunum sýnir að stjórnendur telja helstu áskoranir fyrirtækja næstu missera helst vera fjórar: 1) Starfsmannaandinn 2) Vinnurými 3) Sala (velta) og 4) Óvissa.
Síðasta áratug hafa reglulega sprottið upp umræður um það hvort rétt sé að setja reglur sem banna stjórnendum að eiga í ástarsambandi við undirmenn sína.
Að auka sjálfstraustið í starfi felur það oft í sér að fólk þarf að láta af einföldum atriðum sem það hefur ómeðvitað vanið sig á.
Fyndni á sjaldnast við í tölvupóstum og framsetning þeirra á að vera auðveld lesning fyrir móttakandann. Einkamál eiga að vera send úr sérnetfangi og aðskilin póstfangi vinnuveitanda.
Það má gera ráð fyrir því að margir verði í virkri atvinnuleit með haustinu þegar hlutabótaúrræði stjórnvalda lýkur og fjöldi fólks bætist við á hefðbundnar atvinnuleysisbætur.
Í október verður haldinn nýsköpunarhemill á Þingeyri sem tólf frumkvöðlum er boðin þátttaka í, þeim að kostnaðarlausu. Fimm reynslumiklir mentorar taka einnig þátt í verkefninu.
Forstjóri Amazon, Jeff Bezos, segir stjórnendur geta lært mikið af bókum um fólk og ævisögur.
Hvíld frá vinnu er allra hagur en eins sýna rannsóknir að það getur haft áhrif á viðhorf okkar til vinnunnar og vinnustaðarins ef við vinnum mikið þegar við eigum að vera í fríi.
Í kjölfar kórónufaraldurs: Mun fólk nota sín eigin áklæði í flugi, í bíó eða leikhúsum?
Magnús Harðarson forstjóri Kauphallarinnar segir íslenskt atvinnulíf áhugasamt um þær leiðbeiningar sem gefnar verða út í haust í samstarfi Kauphallar, Hinsegin daganna og Samtakanna 78. Leiðbeiningunum er ætlað að nýtast bæði fyrirtækjum og stofnunum.
Það dreymir marga um að eiga meiri peninga. En til að þéna meiri peninga ætti fyrst að huga að eigin hamingju því það segja rannsóknir.
Á yfirborðin virðist allt slétt og fellt en efasemdir og órói krauma undir niðri. Google hefur þróast í að verða nákvæmlega eins fyrirtæki og stofnendur sögðu fyrir tveimur áratugum að yrði aldrei.
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var í Bandaríkjunum árið 2018 er líklegra að rekstur fyrirtækis gangi upp til frambúðar ef stofnendur eru 35 ára eða eldri þegar rekstur hefst.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum og í þetta sinn situr fyrir svörum Sigríður Hallgrímsdóttir, eða Sirrý, en hún starfar sem verkefnastjóri hjá fyrirtækinu Alva.
Ýmsar nýjungar eru að verða til í kjölfar kórónuveirunnar. Til dæmis matvöruverslun sem keyrir um eins og strætó.
Pétur Arason segir teymi vera leiðtoga framtíðarinnar frekar en að áhersla sé lögð á einstaka stjórnendur og hið hefðbundna pýramídaskipurit.
Að rækta sambandið við góða vini hjálpar okkur að standa okkur betur í vinnunni og við eigum auðveldara með standast álag og streitu.
Nýr formaður SÁÁ segist ekki gera ráð fyrir fleiri leiðinlegum fréttum af samtökunum á næstunni. Einar Hermannsson er gestur kaffispjallsins að þessu sinni.
Það kannast margir við það að fljótlega eftir hádegi á föstudögum er hreinlega ekkert að gera í vinnunni annað en að bíða eftir því að klukkan verði fjögur eða fimm.
Stjórnandi sem er undirlagður af streitu og álagi sýnir ekki sínar bestu hliðar og er ekki góð fyrirmynd fyrir starfsfólk.
Vatnsframleiðandinn Evian stefnir að því að allir vatnsbrúsar þeirra verði 100% endurnýjanlegir fyrir árslok árið 2025.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum og í þetta sinn er það Sigrún Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Mannauðs sem situr fyrir svörum. Sigrún skellir sér snemma í ræktina á morgnana og veigrar sér ekkert við að fara í kalda pottinn í sundlauginni.
Að eiga vin í vinnunni getur virkað sem hvatning til þess að vinna meira eða hraðar. Einmanaleiki í vinnu er mjög algengur.
Sumir finna til óöryggis í starfi vegna þess að þeir telja yfirmann sinn ekki upplýstan um hversu mikið þeir eru að leggja sig fram í starfi. Besta leiðin í þessu er að snúa vörn í sókn og vinna að því að yfirmaðurinn taki eftir því hversu vel þér gengur.
Það er jafn mikilvægt að vera vakandi yfir kulnun í fjarvinnu eins og þegar unnið er á vinnustaðnum. Hér eru þrjú góð ráð til að hafa í huga daglega í fjarvinnu.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum og í þetta sinn situr Einar Bárðason fyrir svörum sem segir skipulagið sitt gamaldags og plokkið hina bestu núvitund.
Það getur verið viðkvæmt að ræða við samstarfsfélaga um að lyktin af ilmvatninu eða rakspíranum sé of mikil eða of sterk.