

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Hæstiréttur vísaði í gær frá dómi kröfu Orkuveitu Reykjavíkur um að álit Kærunefndar útboðsmála þess efnis að Orkuveitan væri skaðabótaskyld gagnvart Toshiba vegna útboðs fyrir búnað til Hellisheiðarvirkjunar.
Hilmar Ragnarsson, sem ásamt öðrum manni framdi vopnað rán í SPRON í Hátúni fyrir tæpum tveimur árum, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi. Vitorðsmaður hans er ófundinn.
Karlmaður var í dag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Hæstarétti fyrir að nauðga fyrrum sambýliskonu sinni á heimili hennar auk umferðarlaga- og fíkniefnabrota.
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir albönskum karlmanni sem grunaður er um morð í Grikklandi.
370 nauðganir voru kærðar til lögreglu á árunum 1995 til 2004. Ákært var í 61 máli en 309 kærur leiddu ekki til ákæru fyrir dómstólum. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur þingmanns.
Lögbannskrafa Jónínu Benediktsdóttur athafnakonu á fréttaflutning Fréttablaðsins af tölvupóstsendingum sem hún átti hlut að verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.
Fjársvika- og bókhaldsbrotamáli á hendur Sveini Eyjólfssyni og fleirum var vísað frá héraðsdómi í gær. Ragnar Hall, einn verjenda, telur að ákæruskjalið hafi aldrei verið lesið yfir. Jón H. B. Snorrason saksóknari vill efnislega meðferð.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið í morgun af tíu milljóna króna bótakröfu manns sem var ákærður fyrir tryggingabótasvindl fyrir þrettán árum.
Rúmlega tvítugur Reykvíkingur var í dag dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot. Við húsleit á heimili hans fundust 97 grömm af hassi, sautján grömm af maríjúana, tæp tólf grömm af amfetamíni og 68 MDMA-töflur.
Ríkið þarf að greiða á bilinu fjórar til sex milljónir króna vegna dóms Hæstaréttar um að Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hafi verið óheimilt að hætta að greiða slökkviliðsmönnum rútugjald.
Tuttugu og átta ára gamall karlmaður var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af líkamsárás í ágúst í fyrra í miðbæ Reykjavíkur. Hann var árkærður fyrir að hafa slegið annan karlmann hnefahöggi í andlitið og veitt honum talsverða áverka.
Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í 45 daga fangelsi fyrir tvöfalda líkamsárás. Og einnig til greiðslu þjáningar- og miskabóta til beggja þolenda. Líkamsárásin var framin á veitingastaðnum Klúbbnum í október í fyrra.
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt akureyrskan karlmann til fjögurra mánaða fangelsisvistar. Hann var handtekinn með heimatilbúna sprengju og fíkniefni í júlí og var fjórum sinnum stöðvaður undir stýri á bifreið þrátt fyrir að vera búinn að missa leyfið.
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli útgerðarfélagsins Gunnvarar gegn manni sem starfaði áður hjá fyrirtækinu.
Hæstiréttur dæmdi mann í dag í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að hafa sent ungum stúlkum fjölmörg klámfengin og kynferðisleg smáskilaboð.
Rúmlega þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ræna tveimur bílum og keyra þá um götur Reykjavíkur uns lögregla stöðvaði för hans. Maðurinn var jafnframt ökuréttindalaus þegar þetta gerðist.
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla annan mann á skemmtistaðnum Sjallanum á Akureyri undir lok síðasta árs.
Réttað verður í Suður-Afríku 18. apríl á næsta ári í máli morðingja Gísla Þorkelssonar, að sögn Andy Pieke, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Boksburg, úthverfi Jóhannesarborgar.
Bótakröfu konu á fertugsaldri á hendur ríkinu upp á rúmar 48 milljónir króna var í gær hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í febrúar 2000 var æxli fjarlægt úr höfði konunnar á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum en hún vildi meina að meinið hefði átt að greina hér í mæðraskoðun árið 1998. Þannig hefði mátt koma í veg fyrir varanlega örorku hennar, sem metin er 100 prósent.
Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi mann í gær til tíu mánaða fangelsisvistar fyrir að selja fíkniefni. Sjö mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára.
Karl og kona eru í haldi lögreglu vegna fíkniefnasmygls. Fólkið er grunað um að hafa smyglað fíkniefnum til landsins í þrjú skipti að minnsta kosti.
Akureyrarbær verður að greiða deildarstjóra hjá bænum sjö hundruð þúsund krónur í miskabætur samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra. Maðurinn heldur jafnframt starfi sínu hjá bænum en hann og bæjaryfirvöld deildu um hvort hann ætti enn rétt á starfinu eða ekki.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun af kröfu konu sem fór fram á að fá greiddan lífeyri eftir föður sinn.
Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Atlanta, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun af skaðabótakröfu upp á 94 milljónir króna. Sækjandi í málinu, sem er norskur athafnamaður, stefndi Arngrími á þeim forsendum að hann hafi skuldbundið sig til að gerast aðili að fyrirtæki stefnanda, Scandinavian Historic Flight, og til að leggja tiltekna fjármuni til félagsins.
Hæstiréttur ómerkti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps með því að skera leigubílstjóra á háls í fyrrasumar, og vísaði málinu aftur til Héraðsdóms. Sýknudómurinn vakti undrun á sínum tíma þar sem hann byggðist á því að enginn hafi séð verknaðinn nægilega vel.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, segist ekki trúa því að sýslumaðurinn í Reykjavík geti samþykkt fjárnámskröfu Jóns Ólafssonar á hendur sér. Jón hyggst fá aðstoð sýslumanns við að ná tólf milljónum króna af Hannesi sem hann var dæmdur til að greiða í Englandi vegna meiðandi ummæla um Jón.
Scott Ramsey, sem ákærður var fyrir að bana manni með hnefahöggi á skemmtistað í Keflavík á síðasta ári, fékk 18 mánaða dóm í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 15 mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir.
Mál Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málinu var vísað frá Héraðsdómi fyrr á árinu vegan ýmissa annmnarka á stefnunni að mati dómsins, m.a. að lýsing málsástæðna væri ágripskennd. Hæstiréttur vísaði svo málinu aftur í hérað í síðustu viku.
Fyrirtaka var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli þeirra Ólafs Páls Sigurðssonar og Örnu Aspar Magnúsdóttir sem ákærð eru fyrir stórfelld eignaspjöll og húsbrot þegar þau slettu skyri á ráðstefnugesti á Hótel Nordica í sumar.
Lögreglan braut gegn eigin verklagsreglum við rannsókn á máli konu sem þrír menn nauðguðu segir Atli Gíslason, lögmaður konunnar.