
„Jóhann Berg og Arnór Ingvi eru heilir og klárir í slaginn“
„Ég er mjög bjartsýnn,“ segir landsliðsþjálfarinn Åge Hareide fyrir leik kvöldsins gegn Úkraínu í Wroclaw en um er að ræða hreinan úrslitaleik um laust sæti á EM í sumar.
Evrópumótið í fótbolta karla fer fram í Þýskalandi dagana 14. júní til 14. júlí 2024.
„Ég er mjög bjartsýnn,“ segir landsliðsþjálfarinn Åge Hareide fyrir leik kvöldsins gegn Úkraínu í Wroclaw en um er að ræða hreinan úrslitaleik um laust sæti á EM í sumar.
Úkraínumenn ætla sér að fjölmenna á leikinn gegn Íslandi og stemningin á leik kvöldsins verður rosaleg.
Hvernig vinnum við Úkraínu? Þetta er stóra spurning kvöldsins þegar íslenska karlalandsliðið í fótbolta getur tryggt sér sæti á Evrópumótinu í fótbolta í sumar.
Það er leikdagur í Wroclaw. Þessi er af stærri gerðinni. Það er farmiði á EM í boði fyrir liðið sem vinnur leik Íslands og Úkraínu í kvöld.
Íslenskir aðdáendur geta byrjað strax að plana ferð til Þýskalands og að finna gistingu í München, Düsseldorf og Stuttgart vinni strákarnir okkar Úkraínu í kvöld.
Gareth Southgate segist aldrei hafa lent í annarri eins meiðslakrísu og enska karlalandsliðið í knattspyrnu glímir nú við. Á sama tíma kom fram að Kyle Walker ætti að vera klár í stórleik Manchester City og Arsenal um næstu helgi.
Ísland mætir Úkraínu í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumóti karla í knattspyrnu í sumar. Það verða vel yfir 30 þúsund manns á leiknum en þó aðeins um fimm hundruð Íslendingar. Sverrir Ingi Ingason, miðvörður landsliðsins, hefur þó fulla trú á að þeir 500 Íslendingar sem mæti láti vel í sér heyra.
Åge Hareide segir að enn megi lagfæra smáatriði fyrir stórleik morgundagsins gegn Úkraínu og því hafi verið frábært að geta tekið æfingu dagsins upp með dróna. Þá virðist þjálfarinn nokkuð viss um að spennustig leikmanna sé rétt stillt.
Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og varnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í dag í tilefni af úrslitaleiknum mikilvæga annað kvöld gegn landsliði Úkraínu um laust sæti á EM 2024.
Strákarnir æfðu í Búdapest í gærmorgun. Síðan var stefnan tekin til Wrocław og lentu þeir í borginni seinnipartinn í gær.
Icelandair hefur ákveðið að fjölga sætum í ferð á leik Íslands og Úkraínu í Wroclaw í Póllandi. Það seldist fljótt upp í ferðina en nú eru fleiri miðar komnir í sölu.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta lagði nú síðdegis af stað frá Búdapest með kærar minningar eftir sigurinn góða gegn Ísrael í EM-umspilinu á fimmtudag.
Hinn virti, franski dómari Clément Turpin mun sjá um að dæma úrslitaleik Íslands og Úkraínu um sæti á EM karla í fótbolta, í Póllandi á þriðjudagskvöld. Hann dæmdi víti á Ísland í leik við Úkraínu haustið 2016.
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er afar eftirsóttur, vegna frammistöðu sinnar með Genoa á Ítalíu í vetur, og þrennan gegn Ísrael á fimmtudaginn var ekki til þess að minnka áhuga stórliða í Evrópu.
Það seldist strax upp í sérstaka ferð Icelandair frá Íslandi til Wroclaw í Póllandi á þriðjudaginn, fyrir þá Íslendinga sem vilja styðja strákana okkar í úrslitaleiknum við Úkraínu um sæti á EM í fótbolta.
Gylfi Þór Sigurðsson var ekki kallaður í íslenska landsliðið fyrir mikilvæga verkefnið sem það stendur nú í. Liðið er einum leik frá EM-sæti.
„Við erum alls ekki hræddir við þá. Við vitum auðvitað að þeir eru með frábæra leikmenn. Það er ekki alltaf það sem skiptir máli og maður þarf að vera með frábært lið líka. Þeir áttu gríðarlega erfiðan leik á móti Bosníu sem er gott lið líka,“ segir Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, sem missti af leiknum gegn Ísrael á fimmtudaginn.
„Það er búið að vera mjög góð stemning í liðinu og var það einnig fyrir Ísraelsleikinn,“ segir Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður íslenska landsliðsins. Liðið færir sig yfir til Wroclaw í Póllandi í dag og mætir Úkraínu á þriðjudagskvöldið.
Guðlaugur Victor Pálsson æfði ekki með íslenska landsliðinu í Búdapest í dag. Ástæðan fyrir því að hann æfði ekki var einfaldlega þreyta.
„Þetta gekk bara ágætlega í dag en við tökum bara einn dag í einu,“ segir Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, sem missti af leiknum gegn Ísrael á fimmtudaginn.
Ljóst er að Ísland á fyrir höndum talsvert erfiðari leik á þriðjudaginn, gegn Úkraínu í úrslitaleik um sæti á EM í fótbolta, en þegar liðið sló út Ísrael með 4-1 sigri á fimmtudaginn.
„Ef þú skoðar bara leikmannahópinn hjá Úkraínu þá eru þetta hörkuleikmenn, leikmenn úr La Liga og ensku úrvalsdeildinni. Þeir eru með gott lið,“ segir Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands.
Ekki taka allir þátt í æfingu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í Búdapest í dag, í aðdraganda úrslitaleiksins við Úkraínu um sæti á EM í Þýskalandi.
Það vakti mikla athygli eftir leik Íslands og Ísraels að stjarna leiksins, Albert Guðmundsson, fékk ekki að ræða við fjölmiðla eftir leik. KSÍ sagði þvert nei við slíkum bónum.
Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur ekki verið vinsælasti maðurinn í Ísrael síðustu daga.
Markvörðurinn Manuel Neuer mun ekki aðeins verja mark Þýskalands á Evrópumóti karla í knattspyrnu næsta sumar heldur mun hann einnig vera fyrirliði þjóðar sinnar sem ætlar sér stóra hluti eftir að hafa ekki staðið undir nafni undanfarin stórmót.
Miðvörðurinn Harry Maguire segir að leikmenn enska landsliðsins í knattspyrnu séu ánægðir með störf Gareth Southgate og vilji hafa hann sem lengst við stjórnvölinn.
„Við notuðum daginn til að jafna okkur eftir átök gærkvöldsins, en auðvitað erum við mjög ánægðir með hafa unnið þennan leik svona sannfærandi,“ segir Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands á hóteli íslenska liðsins í Búdapest í gær.
Arnór Sigurðsson verður ekki með í leiknum mikilvæga gegn Úkraínu á þriðjudag. Frá þessu greini Knattspyrnusamband Íslands í kvöld.
Á þriðjudag mætast Ísland og Úkraína í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumóti karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar. Leikurinn fer fram í Póllandi og verður KSÍ með pakkaferð á leikinn.