Þóroddur og Albert vígja nýja hestasundlaug Stórglæsileg hestasundlaug var opnuð formlega á föstudaginn í Áskoti í Ásahreppi. Það eru hjónin Jakob Þórarinsson og Arnheiður Auðbergsdóttir sem standa að fyrirtækinu Sundhestar ehf sem á og rekur sundlaugina. Það var svo Þóroddur frá Þórodsstöðum sem vígði laugina við mikinn fögnuð viðstaddra. Sport 13. nóvember 2006 07:45
Steingrímur Sigurðsson er knapi ársins Steingrímur Sigurðsson var valin knapi ársins á uppskeruhátíð hestamanna sem haldin var í gærkveldi á Broadway. Ræktunarbúið Auðholtshjáleiga var valið ræktunarbú ársins, en hjónin Gunnar og Kristbjörg eru vel að titlinum komin. Sport 12. nóvember 2006 17:00
Mars frá Feti til Svíþjóðar Á vefsíðunni www.fet.is segir að stóðhesturinn Mars frá Feti hafi verið seldur til Svíþjóðar og fór hann utan fyrir skemmstu. Mars er fimm vetra gamall, undan Seif frá Efra-Apavatni og gæðingamóðurinni Ásdísi frá Neðra-Ási. Mars var sýndur í kynbótadómi sl. vor og hlaut þá feiknagóðan dóm, 8.41 fyrir sköpulag og 8.44 fyrir hæfileika, í aðaleinkunn 8.43. Sport 8. nóvember 2006 17:54
Nýtt hesthúsahverfi og íþróttaaðstaða fyrir hestamenn Á síðasta bæjarstjórnarfundi Garðabæjar var samþykkt nýtt skipulag á Kjóavöllum og verður nýtt skipulag kynnt á aðalfundi Andvara sem haldin verður 20. nóvember næstkomandi. Er þetta mikil stækkun á félagssvæði Andvara og Gustara, en á nýju sameiginlegu hesthúsasvæði Andvara og Gusts verður frábær aðstaða fyrir hestamenn, hvort sem það eru keppnismenn, útreiðarmenn eða börn og unglingar. Sport 8. nóvember 2006 17:51
Tilnefningar til knapa ársins 2006 Nú liggja tilnefningar til knapa ársins í hinum ýmsu flokkum fyrir. Að tilnefningunum stendur nefnd skipuð fjölmiðlafólki sem fjallar um hestamennsku, fulltrúum gæðinga- og íþróttadómara og hrossaræktarráðunauti BÍ. Sport 3. nóvember 2006 16:11
Sölusýning í Hestheimum Sölusýning verður haldin næstkomandi sunnudag 5. nóvember og hefst hún stundvíslega kl: 14.00. Sölusýningar í Hestheimum hafa fest sig í sessi hjá hestamönnum og áhugafólki í hestamennsku á þessum árstíma og hefur fjöldi fólks fundið þar sinn eðal gæðing. Sport 1. nóvember 2006 12:31
Ræktunarbú ársins 2006 Á haustfundi Hrossaræktarsamtaka Suðurlands sem haldin var í gær tilkynnti Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur hvaða ræktunarbú eru tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2006. Tilkynnt verður hvaða bú sigrar á uppskeruháthíð hestamanna sem haldin verður í næsta mánuði. Sport 1. nóvember 2006 12:21
Hestamarkaður í Víðidal Hestamarkaður og sölusýning verður haldin í reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 4. nóvember næstkomandi og hefst sýningin klukkan 13:00 en húsið opnar kl 12:00. Í anddyri reiðhallarinnar er búið að setja upp Markaðstorg þar sem söluaðilar kynna vörur fyrir hestamenn allt frá hóffjöðrum uppí traktora, allt sem snýst um hesta og hestamennsku verður á Markaðstorginu, en þar verður hægt að kaupa vörur á mjög góðu tilboðsverði. Sport 1. nóvember 2006 12:16
Knapamerkjanámsefni komið út Námsefni fyrir fyrstu 3 stig Knapamerkjanna er nú komið út. Höfundur námsefnisins er Helga Thoroddsen og útgefandi er Hólaskóli. Um er að ræða vandað námsefni og ríkulega myndskreytt. Námsefnið getur nýst breiðum aldurshópi og geta allir fengið efnið keypt hvort sem þeir hyggja á nám skv. Knapamerkjunum eða ekki. Sport 1. nóvember 2006 12:13
Skaut úr riffli að hrossahópi í Flókadal Tilkynnt hefur verið til lögreglu á Sauðárkróki um mann sem skaut að hrossahópi í Flókadal nú nýlega. Bóndi á bæ einum í dalnum var að sækja hross sín snemma síðastliðinn laugardagsmorgun, en þau höfðu komist yfir á nágrannajörð. Um 60 hross voru í hópnum og var ætlunin að reka þau heim í tún. Sport 1. nóvember 2006 12:03
Formannsskipti hjá Landssambandi hestamannafélaga Í dag hefst þing Landssambands hestamannafélaga í Borgarnesi. Það er í boði Hestamannafélagsins Skugga og stendur fram á seinnipart laugardags. Innlent 27. október 2006 11:30
Tæplega 10 þúsund manns komnir á Vindheimamela í Skagafirði Tæplega 10 þúsund manns eru komnir á Vindheimamela í Skagafirði til þess að fylgjast með Landsmóti hestamanna. Í gærkvöldi var haldinn stórdansleikur með Todmobil sem stóð fram eftir nóttu og að sögn lögreglu á svæðinu fór allt vel fram fyrir utan einstaka pústra. Innlent 1. júlí 2006 12:20
Úrslit í úrtöku hjá Sleipni, Ljúf, Háfeta og Trausta Sigurður Vignir Matthíasson sigraði í A flokki gæðinga í úrtöku hjá Sleipni, Ljúf, Háfeta og Trausta sem lauk nú í kvöld á Kvist frá Hvolsvelli með 8,59. Þórður Þorgeirsson lenti í öðru sæti á Snædísi frá Selfossi með 8,55 og Elsa Magnúsdóttir húsfreyja á Sólvangi endaði í því þriðja á Þyt frá Kálfhóli með 8,51 en þessi þrjú kepptu fyrir Sleipni. Sport 13. júní 2006 23:42
Þórður Þorgeirsson sigraði A flokk gæðinga á úrtökumóti Geysis Þórður Þorgeirsson sigraði A flokk gæðinga á úrtökumóti Geysis, Sindra, Smára og Loga sem fram fór um helgina með 8,60 í einkunn. Ævar Örn Guðjónsson varð í öðru sæti á Bergþóri frá Feti með 8,48. Ísleifur Jónasson sigraði B flokk á Röðli frá Kálfholti með 8,78 og Árni Björn Pálsson hafnaði í öðru sæti á Tign frá Teigi ll með einkunina 8,59. Maríanna Magnúsdóttir sigraði Ungmennaflokk með einkunina 8,43 á Tý frá Þúfu og Helga Björk Helgadóttir varð í öðru sæti á Eydísi frá Djúpadal með 8,43. Sport 11. júní 2006 18:39
Kóngur um stund Hestaþátturinn Kóngur um stund, sem var á Stöð 2 í fyrra, heldur áfram á RÚV í sumar. Áfram er tilgangurinn að skemmta áhorfendum og vekja áhuga á íslenska hestinum og hestamennsku um leið, líka meðal þeirra sem lítið sem ekkert hafa kynnst þessu ótrúlegu og einstöku skepnu. Sport 9. júní 2006 14:00
Úrslit hjá Hornfirðingi Félagsmót hestamannafélagsins Hornfirðings fór fram í blíðskaparveðri nú um helgina. Mótið sem jafnframt var úrtaka fyrir landsmót var vel sótt og gekk mjög vel að sögn mótshaldara. Um 60 knapar og hross mættu til leiks. Sport 9. júní 2006 08:15
Skráningarfrestur vegna ræktunarbússýninga á LM Hrossaræktendur eru minntir á að frestur til að skrá ræktunarbú á Landsmót 2006 rennur út sunnudaginn 11. júní nk. Hægt er að sækja um þátttöku með því að senda tölvupóst á [email protected] merkt "Ræktunarbú." Þar þurfa að koma fram upplýsingar um þau hross er ætlunin er að sýna, aldur, ættir og árangur, ásamt stuttri kynningu á búinu. Sport 9. júní 2006 08:12
Gæðingakeppni Faxa úrslit Blær frá Hesti sigraði A- flokk á gæðingamóti Faxa með glæsibrag knapi á Blæ var Þorvaldur Árni Þorvaldsson.Blær hlaut einkunnina 8,93, fékk hann meðal annars 9,4 fyrir brokk og 9,0 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið og má vænta þess að þeir félagar verði í toppbaráttunni á LM í sumar. Blær var einnig valin glæsilegasti hestur mótsins Sport 6. júní 2006 07:19
Geisli sigraði af öryggi í Gusti Gæðingakeppni Gusts, sem jafnframt var úrtaka fyrir Landsmót, fór fram nú um helgina. Þátttaka var góð og keppnin hörð enda mikið í húfi. Þekktir gæðingar sigruðu í A – og B flokki, en sigurvegari síðasta Landsmóts Geisli frá Sælukoti sýndi hvers megnugur hann og knapi hans Steingrímur Sigurðarson geta verið þegar þeir hreinlega rúlluðu upp úrslitakeppninni og hlutu meteinkunn 9,16 og mikið lófatak frá áhorfendum. Sport 4. júní 2006 20:28
Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum 2006 Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum fer fram í Glaðheimum í Kópavogi dagana 14.-16. júlí nk. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum og stefna Gustarar að því að halda glæsilegt mót. Hin þekktu listahjón Baltasar og Kristjana Samper hafa hannað glæsilega verðlaunagripi sem veittir verða fyrir efstu sætin, en þeir eru sannkölluð listaverk og verða aðeins framleiddir í takmörkuðu magni. Sport 1. júní 2006 16:51
Meistarar hjá Sóta Gæðingakeppni Sóta fór vel fram á velli félagsins síðastliðinn laugardag. Aldrei hafa svo margir meistaraknapar tekið þátt í einu og er greinilegt að eigendur hrossanna leggja metnað sinn í að hesturinn sýni sitt allra besta, enda var þetta mót einnig úrtaka fyrir komandi Landsmót. Sport 31. maí 2006 12:37
Þóroddur sigrar í A-flokki gæðinga hjá Fáki Þóroddur frá Þóroddsstöðum og Daníel Jónsson unnu A-flokk gæðinga á MESTA gæðingamóti Fáks í gærkvöld með einkunina 8,81. Kolskeggur frá Oddhóli og Sigurbjörn Bárðarson náðu öðru sæti með 8,76 og Ormur frá Dallandi og Atli Guðmundsson höfnuðu í því þriðja með 8,75. Sport 29. maí 2006 06:06
Rökkvi frá Hárlaugsstöðum sigraði í B-flokki hjá Fák Rökkvi frá Hárlaugsstöðum og Þorvaldur Árni Þorvaldsson sigruðu í B-flokki gæðinga á MEST gæðingamóti hjá Fáki í dag með 9,30 í einkunn. Muggur frá Hafsteinsstöðum og Árni Björn urðu í öðru sæti með 8,74 í einkunn og Töfri frá Kjartansstöðum og Daníel Jónsson höfnuðu í þriðja sæti. Úrslit í A flokki verða riðin klukkan 16,30. Sport 28. maí 2006 15:25
Forkeppni í A-flokki hjá Fáki Sigurbjörn Bárðarson og Kolskeggur frá Oddhóli hafa nauma forustu eftir forkeppnina í A- flokki gæðinga á MEST gæðingamóti Fáks í gær. Sport 27. maí 2006 08:05
Fyrsti stöðulisti í tölti fyrir LM 2006 Fyrsti stöðulisti vegna þátttökuréttar í tölti á LM 2006 birtist hér. Athugið að listinn er birtur með fyrirvara um breytingar og hann er eingöngu byggður á þeim mótum sem skilað hefur verið inn í tölvukerfið Mótafeng. Sport 26. maí 2006 15:47
Aðalheiður Anna með besta tíman í Þolreiðinni Þolreiðarkeppni Laxnes og Icelandair var haldin í gær í þokkalegu veðri. 20 keppentur tóku þátt í reiðinni og skiluðu allir sér í mark. Dýralæknir stöðvaði 3 keppendur áður en keppnin hófst þar sem ástand hesta var ekki nógu gott. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir vann unglinga- og ungmennaflokk en þetta er annað árið sem hún vinnur og Pétur Andersen vann fullorðins flokk. Sport 22. maí 2006 12:07
Dagskrá gæðingamóts og úrtöku Fáks 2006 Glæsilegir gæðingar eru skráðir til leiks og má þar nefna Þórodd frá Þóroddsstöðum, Orm frá Dalland, Töfra frá Kjartansstöðum, List frá Vakurstöðum og Rökkva frá Hárlaugsstöðum. Leiknir frá Vakurstöðum, sigurvegar B flokksins í fyrra er skráður í unglingaflokk ásamt ótal fleiri glæsilegum gæðingum. Sport 19. maí 2006 21:49
Skeiðleikar Skeiðfélagsins Skeiðfélagið hélt sínar fyrstu kappreiðar í gærkvöldi á félagssvæði Sleipnis að Brávöllum á Selfossi. Vegna bilunar í tímatökubúnaði dróst dagskrá aðeins en þegar búnaðarinn var kominn í lag gekk allt að óskum. Veðrið lék við keppendur og áhorfendur og var örlítill mótvindur. Sport 18. maí 2006 13:21
Öll úrslit Reykjavíkurmeistaramóts í hestaíþróttum Vel heppnað Reykjavíkurmeistaramót Akkúrat og Höfðabíla er lokið. Mótið heppnaðist að öllu leiti mjög vel og voru veðurguðirnir keppendum og áhorfendum hliðhollir alla mótsdagana. Sport 16. maí 2006 05:30
Mikil spenna á íþróttamóti Sóta Mikil spenna skapaðist á íþróttamóti Sóta, sem fór fram á velli félagsins síðastliðinn laugardag. Flest úrslit voru jöfn og þurfti að ríða bráðabana í úrslitum í tölti fullorðinna. Í fjórgangi fullorðinna skákuðu konurnar körlunum og röðuðu sér í tvö efstu sætin. Eftir mótið var grillað á nýja pallinum við félagsheimilið og skemmtu menn, konur og börn sér langt fram eftir kvöldi. Sport 16. maí 2006 05:00
Leik lokið: Grindavík - Haukar 81-86 | Frábær frammistaða Tinnu Guðrúnar skilaði Haukum oddaleik Körfubolti