
„Þetta var allsherjar klúður þarna“
„Þetta var bara lélegt“ segir landsliðsfyrirliðinn Elliði Snær Viðarsson sem var ósáttur við sjálfan sig eftir að hafa fengið reisupassann í leik Íslands við Grænhöfðaeyjar á HM í handbolta í fyrrakvöld. Hann vonast til að spila meira í næsta leik við Kúbu í kvöld.