Brothætt kvöld hjá GameTíví Strákarnir í GameTíví munu láta reyna á samstarfið í kvöld. Meðal annars munu þeir brjóta og bramla í leiknum Carry the Glass og reyna að forðast skrímslin í R.E.P.O. Leikjavísir 31.3.2025 19:30
Assassins Creed Shadows: Ekki þessi ömurlegi leikur sem netið lofaði Leikurinn Assassins Creed Shadows kom mér bara nokkuð á óvart. Internetið var fyrir mörgum mánuðum síðan búið að staðfesta að leikurinn sökkaði. Svo er samt ekki. Þetta er bara frekar góður leikur, þó sagan sé ekkert beint framúrskarandi. Sögusviðið er samt frábært og það er alltaf jafn undarlegt að Ubisoft hafi ekki leitað þangað fyrr. Leikjavísir 28.3.2025 08:45
Morðæði í GameTíví Strákarnir í GameTíví ætla að fremja morð í kvöld. Þeir ætla að spila leikinn Midnight Murder Club sem gengur út á það að myrða mótspilara sína í drungalegu stórhýsi. Leikjavísir 24.3.2025 19:30
Framleiðslu nýs Football Manager hætt: „Fyrirgefiði, við brugðumst ykkur“ Nýjasta árgerð tölvuleiksins Football Manager mun ekki koma út. Framleiðendur leiksins tilkynntu um það í morgun. Fótbolti 7. febrúar 2025 09:03
Sniper Elite: Resistance - Fátt nýtt í annars allt í lagi leik Ég hef lengi verið aðdáandi Sniper Elite leikjanna. Ég spilaði upprunalega leikinn, sem kom út árið 2005 mikið og hef spilað langflesta af leikjunum síðan þá. Þeir eru margir. Sá nýjasti, Resistance, finnst mér samt koma með lítið sem ekkert nýtt að borði og ég hef rekið mig á fullt af göllum við spilunina.Þá er bersýnilegt að grafíkvél leiksins er komin til ára sinna. Leikjavísir 6. febrúar 2025 08:45
Berjast fyrir lífinu í GameTíví Það er hryllingskvöld hjá strákunum í GameTíví. Þeir ætla að spila leikinn Nuclear Nightmare sem gengur út á það að vinna saman til að lifa af í mjög svo hættulegum heimi, eins og nafn leiksins gefur til kynna. Leikjavísir 27. janúar 2025 19:30
Vona að Rockstar ríði á vaðið með hundrað dala GTA 6 Verðhækkanir á tölvuleikjum eru í kortunum. Útgefendur tölvuleikja eru sagðir binda vonir við það að Rockstar, sem gefa mun út leikinn Grand Theft Auto 6 á árinu, muni ríða á vaðið og selja leikinn á allt að hundrað dali, í stað þessa hefðbundnu sjötíu. Leikjavísir 21. janúar 2025 15:33
GamTíví: Stefnir í samvinnuslys Það stefnir í óefni hjá strákunum í GameTíví í kvöld. Þeir ætla að spila hryllingsleikinn Kletka, þar sem mikil samvinna er nauðsynleg til að lifa af. Það boðar ekki gott. Leikjavísir 20. janúar 2025 19:32
Ný Switch kynnt til leiks Nintendo, japanska tölvuleikjafyrirtækið víðfræga, kynnti í dag nýja leikjatölvu til leiks. Hún kallast Nintendo Switch 2 og á að sjást í hillum verslana einhvern tímann á þessu ári. Leikjavísir 16. janúar 2025 13:47
GameTíví: Berjast fyrir lífinu í Squid Game Strákarnir í GameTíví snúa aftur úr jólafríi í kvöld og nýja árið byrjar með látum. Þeir munu þurfa að berjast fyrir lífinu í sérstökum Squid Game-leik í Warzone. Leikjavísir 13. janúar 2025 19:31
Leikirnir sem beðið er eftir Á þessum myrkustu tímum ársins er fólki hollt að rísa upp úr hversdagslegri eymdinni og líta til framtíðar. Að hætta að hjakka sífellt í sama gamla, og djúpa, farinu og líta jákvæðum augum til betri tíma og nýrra tölvuleikja. Út við sjóndeildarhringinn má nefnilega sjá glitta í GTA 6 en vonum að það sé ekki hilling. Leikjavísir 8. janúar 2025 09:02
Dans Laufeyjar kominn í Fortnite Fortnite-spilurum gefst nú tækifæri til að kaupa dansspor Laufeyjar Línar og dansa eins og tónlistarkonan í tölvuleiknum. Lífið 1. janúar 2025 16:21
Svik og prettir í jólaþætti GameTíví Jólaleikur GameTíví mun einkennast af svikum og prettum. Þá ætla strákarnir að spila Liar's Bar og aðra smáleiki. Leikjavísir 16. desember 2024 19:33
Stiklusúpa: Allt það helsta sem kynnt var á Game awards Verðlaunahátíðin Game awards fóru fram í tíunda sinn í gær. Þar voru helstu leikir þessa árs heiðraðir en einnig var hitað upp fyrir leiki næstu ára. Þó nokkrir leikir voru kynntir til sögunnar í fyrsta sinn með stiklum. Leikjavísir 13. desember 2024 14:46
Aldís Amah tilnefnd til BAFTA-tölvuleikjaverðlaunanna Aldís Amah Hamilton leikkona hefur verið tilnefnd til tölvuleikjaverðlauna BAFTA fyrir leik sinn í tölvuleiknum Senua’s Saga: Hellblade II sem besti leikari í aukahlutverki. Leikjavísir 10. desember 2024 21:18
Stalker 2: Töluvert gallaður en æðislegur leikur S.T.A.L.K.E.R. 2: Heart of Chornobyl er æðislegur leikur. Hann er þó töluvert gallaður enn sem komið er, en í rauninni á maður ekki að búast við öðru af Stalker-leik. Andrúmsloft leiksins stendur upp úr Leikjavísir 3. desember 2024 08:45
Feluleikur hjá GameTíví Strákarnir í GameTíví fara í feluleik í kvöld. Þá munu þeir spila Prop Hunt í fjölspilunarhluta Call of Duty: Black Ops 6. Leikjavísir 2. desember 2024 20:59
GameTíví í búðarleik Ringulreið mun ríkja hjá strákunum í GameTíví í kvöld. Þá munu þeir reyna fyrir sér í búðarleik. Leikjavísir 25. nóvember 2024 19:30
Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Tom er stjarneðlisfræðingur og einn hæfileikaríkasti spilari í heimi í íslenska tölvuleiknum Starborne: Frontier. Tom er búsettur í Adelaide í Ástralíu og flaug alla leiðina til Íslands til þess að heimsækja félaga sína hjá tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds á Eiðistorgi og hitta aðra spilara leiksins. Lífið 23. nóvember 2024 07:04
GameTíví: Skoða gjörbreyttan Warzone Strákarnir Í GameTíví ætla að feta ótroðnar slóðir í kvöld. Þá munu þeir virða fyrir sér nýjustu uppfærslu Warzone, eftir að leikurinn var samtvinnaður Black Ops 6. Leikjavísir 18. nóvember 2024 19:30
Dragon Age Veilguard: Fimmtán ára ævintýri lýkur Dragon Age Veilguard er fjórði og síðasti leikurinn í mjög svo vinsælli leikjaseríu. Thedas er í mikilli hættu, eins og yfirleitt, og spilarar þurfa að bjarga málunum með því að berjast gegn fornum guðum og illum áhangendum þeirra. Leikjavísir 14. nóvember 2024 08:45
PlayStation 5 Pro: Eina leiðin til að spila, ef þú tímir því Sony hóf á dögunum sölu á nýrri útgáfu PlayStation 5 leikjatölvunnar, Ps5 Pro. Þessi útgáfa er töluvert öflugri en hina tvær og opnar á nýja möguleika þegar kemur að grafík og gæðum leikja, hvort uppfærslan borgi sig er þó spurning. Leikjavísir 12. nóvember 2024 08:45
Sverrir Bergmann snýr aftur í GameTíví Strákarnir í GameTíví fá til sín góða gesti í kvöld. Það eru þeir Guðmundur Ari og Sverrir Bergmann sem ætla að berjast með strákunum í fjölspilun í Black Ops 6. Leikjavísir 11. nóvember 2024 19:32
GameTíví: Berjast gegn hjörðum uppvakninga Strákarnir í GameTíví munu berjast fyrir lífi sínu gegn hjörðum uppvakninga í kvöld. Nýjasti Call of Duty leikurinn, sem ber nafnið Black Ops 6 verður spilaður í streymi kvöldsins. Leikjavísir 4. nóvember 2024 19:32