

Loftslagsmál

Töluvert hefur áunnist og drög að samningi kynnt
Forseti Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP21), Laurent Fabius, kynnti í gær ný drög að hnattrænum samningi um aðgerðir í loftslagsmálum, með þátttöku allra ríkja.

Sjá mengunarmökkinn veltast áfram
Stefán Úlfarsson býr í Peking ásamt eiginkonu og dóttur. Þar ríkir ófremdarástand dögum saman vegna loftmengunar. Svo alvarlegt er ástandið að fólk flytur frá borginni. Stefán segir það orðið koma til greina að flýja ófremdarástand.

Róttækni og kjarkur í loftslagsmálum
Þjóðir heims standa nú frammi fyrir einu stærsta verkefni sögunnar á stórum fundi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í París þessa dagana. Til þess að stemma stigu við aukinni losun gróðurhúsalofttegunda og draga úr henni svo um munar þarf stórtækar aðgerðir í öllum geirum samfélagsins í öllum samfélögum. Líka á Íslandi.

Stöð 2 á COP21: Ísland leiðarvísir í orkubúskap og landgræðslu
Fjölbreytt dagskrá hefur verið í skála Norrænu ráðherranefndarinnar í Le Bourget, ráðstefnusvæði loftslagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna í París (COP21).

Stöð 2 á COP21: „Við höfum bara 15 ár“
Með hverjum degi verður skýrara að það verður erfitt fyrir samningamenn að ná saman, eins og búist var við.

Fabius leggur fram ný drög að loftslagssamningi í París
Loftslagsráðstefnunni í París lýkur á föstudaginn.

Umhverfismál og byggingariðnaður
Á heimsvísu er talið að byggingariðnaðurinn sé ábyrgur fyrir um 30% af losun gróðurhúsalofttegunda og noti um 40% af framleiddri orku í heiminum.

Losun í París, lokun í Genf
Á sama tíma og fulltrúar heimsbyggðarinnar ræða hvernig hamla megi gegn losun gróðurhúsalofttegunda, koma fulltrúar TiSA-ríkjanna saman í Genf til að ræða hið gagnstæða;

Stöð 2 á COP21: Hlutverk Íslands mikilvægt í orkubyltingunni
„Saga Íslands í orkumálum er vitnisburður um að hægt er að snúa áhrifum loftslagsbreytinga við með allsherjar breytingum í átt að hreinni orku,“ segir Ólafur Ragnar.

Umhverfismál eru lýðheilsumál
Grein um umhverfismál í tilefni loftslagsráðstefnu í París, des. 2015

Fjármögnun helsta þrætueplið í París
Þrætueplið snýr að því hver eigi að fjármagna baráttuna gegn loftslagsbreytingum.

Þar sem eru breytingar þar eru tækifæri
Miklar væntingar eru gerðar til loftslagsráðstefnunnar COP21 í París. Þar verður þess freistað að ná samkomulagi um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Þegar markmiðin hafa verið sett þarf að setja af stað vinnu til að ná þeim.

Pólitíska vinnan er eftir á Loftslagsráðstefnunni
Ráðamenn 195 þjóða hafa tekið við uppkasti að loftslagssamningi í París og munu næstu daga reyna að ná málamiðlun um einstök atriði hans. Formaður samninganefndar kveðst vera bjartsýnn. Efasemdaraddir eru þó háværar.

Stöð 2 á COP21: „Það verður hart samið“
Í rúmlega tvo áratugi hafa þjóðirnar tekist á um hvernig skuli draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stemma stigu við hnattrænni hlýnun.

Samkomulagsdrög samþykkt í París
Fulltrúar á Loftlagsráðstefnunni í París hafa samþykkt drög að því sem vonast er til að verði grunnurinn að alþjóðasamningi sem miðar að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum.

Hlýnun jarðar sést hvað best á Íslandi
Breytingar á tiltölulega einföldu vistkerfi Íslands gera það að verkum að allar breytingar sjást greinilega. Nýjar lífverur verða áberandi í vötnum og í sjó. Vatn verður innan tíðar ein mesta auðlind mannkyns.

Vandinn og verkefnið sem fram undan er
Loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra er stærsta verkefni mannkyns til næstu áratuga. Afneitun vandans hefur tafið eða komið í veg fyrir aðgerðir. Lausnir eru þó til og lykillinn – loftslagssamningur – er í smíðum á Loftslagsrá

Menn gyrði sig í brók
Ekki voru liðnir nema fjórir dagar af Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París þegar Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakka, beindi varnaðarorðum til samninganefnda landanna 195, sem nú reyna að berja saman tímamótaloftslagssamning, að gyrða sig í brók. Með sömu vinnubrögðum verði vinnunni aldrei lokið fyrir tilætlaðan tíma – eða 11. desember næstkomandi.

Tvístígandi á hemlunum
Töluverðar vonir eru bundnar við loftslagsráðstefnu sem hefst í París eftir helgina. Leiðtogar helstu ríkja heims virðast í þetta skiptið eitthvað viljugri til að skuldbinda sig til aðgerða. Þeir hafa hálfan mánuð til samninga.

Tæknilausn CRI veitt athygli á loftslagsráðstefnunni í París
KC Tran, forstjóri Carbon Recycling International (CRI), tekur þátt í hringborði forstjóra og stjórnarformanna alþjóðlegra fyrirtækja á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP21) þar sem rædd verður ályktun um hvaða raunhæfu aðgerðir fyrirtækin hyggjast ráðast í til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnframleiðslu.

Frá Ghent til Reykjavíkur
Flestir sem hafa áhuga eða fylgjast með loftslagsmálum hafa ekki látið það fram hjá sér fara að helstu leiðtogar heims og aðrir valdamenn eru nú staddir í París. Það er hægt að nálgast loftslagsmál frá svo mörgum sjónarhornum en mig langar aðeins að skoða hvað við í Reykjavik erum að gera og getum gert betur.

Vilja metnaðarfull loftslagsmarkmið
Höfuðborgir Norðurlandanna standa sameinaðar á Loftslagsráðstefnunni í París. Stefnan er að ná, og fara fram úr, markmiðum ESB um 20 prósenta samdrátt í orkunotkun og losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2020.

Jólagjöfin í ár? Endurheimt votlendis
Loftslagsmálin eru „stærsta siðferðismál samtímans“ að sögn Frans páfa. Við Íslendingar höfum verið frekar seinir til í umhverfismálum og ef allir jarðarbúar stigju jafnt þungt til jarðar og við, þá þyrfti heilar sjö Jarðir.

Byggt undir nýtingu jarðhitans
Stofnaður hefur verið alþjóðlegur samstöðuhópur um nýtingu jarðhita (Global Geothermal Alliance), en tilkynnt var um stofnun hópsins á fundi í tengslum við Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í gær.

Hvetur Pútín og Erdogan til að halda friðinn og horfa á sameiginlegan óvin
Barack Obama Bandaríkjaforseti hvetur Rússa og Tyrki til þess að halda friðinn og draga úr þeirri spennu sem verið hefur milli ríkjanna eftir að Tyrkir skutu niður rússneska herþotu.

Þjóðarleiðtogar horfa til endurnýjanlegra orkugjafa
Tilkynnt um þátttöku Íslendinga í alþjóðlegu verkefni um aukna nýtingu jarðvarma. Frakka setja 6 milljarða evra í umhverfisvæna orkunýtingu í Afríku.

Segir hnatthlýnun geta neytt fólk til að flýja
Barack Obama kallar eftir metnaðarfullum aðgerðum vegna hnatthlýnunar.

COP21: Stofna alþjóðlegan samstöðuhóp um nýtingu jarðhita
Utanríkisráðherra flutti í morgun ávarp á loftslagsráðstefnunni þar sem hann sagði að alþjóðasamfélagið yrði að ná saman um metnaðarfull markmið í loftlagsmálum.

Mýrarljós í loftslagsmálum
Nýlega barst mér svar umhverfisráðherra við fyrirspurn minni á Alþingi um skiptingu losunar koltvísýrings hér á landi. Í svarinu kemur fram að gróðurhúsalofttegundir myndast í miklu magni eftir að votlendi er ræst fram.

Ísland verði kennslustofa um áhrif loftslagsbreytinga
Forsætisráðherra ávarpaði loftslagsráðstefnuna í París í dag sem hann sagði vera vonarvita fyrir framtíð jarðkringlunnar.