Bin Laden gerist umhverfisverndarsinni Hryðjuverkaleiðtoginn Osama bin Laden hefur sent frá sér nýja hljóðupptöku þar sem hann fordæmir Bandaríkin og önnur iðnríki fyrir slælega frammistöðu í umhverfismálum og kennir þeim um hlýnun jarðar. Þarna kveður við nokkuð nýjan tón hjá Osama sem hingað til hefur beint athygli sinni að heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og framferði þeirra í Mið-Austurlöndum. Erlent 29. janúar 2010 12:56
Danir hlógu alla leið í bankann Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS hefur reiknað út að loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn hafi kostað bandaríska skattgreiðendur vel yfir einn milljarð dollara. Erlent 26. janúar 2010 10:20
Bullspár um bráðnun jökla Fullyrðingar Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna um að jöklar Himalayafjalla verði að mestu horfnir árið 2035 eða jafnvel fyrr eru á byggðar á furðulegum misskilningi og vísindalegum mistökum að sögn vefsíðu breska blaðsins Time. Erlent 18. janúar 2010 14:52
Of miklar væntingar gerðar til ráðstefnunnar Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir að of miklar væntingar hafi verið gerðar í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar Kaupmannahöfn. Hún segir niðurstöðuna vonbrigði en um leið ákveðið leiðarljós. Innlent 19. desember 2009 13:00
Mikil vonbrigði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir niðurstöðu loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn mikil vonbrigði. Hann væntir þess að hægt verði að ná bindandi samkomulagi á næsta ári. Erlent 19. desember 2009 12:12
Ekki bindandi samkomulag Barack Obama, Bandaríkjaforseti, náði í gærkvöldi samningi við leiðtoga Kína, Indlands, Brasilíu og Suður-Afríku um tillögur og áherslur í loftslagsmálum. Samkvæmt því er stefnt að því að hitahækkun verði að jafnaði innan við 2 stig. Erlent 19. desember 2009 10:07
Klúður í Kaupmannahöfn Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn virðist hafa mistekist að flestu leyti. Erlent 18. desember 2009 18:58
Enn er allt óvíst um útkomu Viðræður stóðu fram á nótt á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Vonast er til að samkomulag náist um pólitíska yfirlýsingu, sem 130 þjóðarleiðtogar myndu undirrita. Náist það ekki er von manna að vinnuáætlun fyrir næstu skref í viðræðum verði samþykkt. Þriðji möguleikinn er að ekkert samkomulag náist. Nánast útilokað er að lagalega bindandi samkomulag náist. Innlent 18. desember 2009 06:00
Blóðugir bardagar í Kaupmannahöfn Danska lögreglan hefur í morgun beitt táragasi og kylfum til þess að koma í veg fyrir að mótmælahópar réðust inn í Bella Center þar sem Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fer fram. Fjöldi mannna hefur verið handtekinn. Erlent 16. desember 2009 11:31
Átök í Kristjaníu Til nokkura átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í Kaupmannahöfn í nótt þar sem Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna stendur nú sem hæst. Mest voru lætin í Kristjaníu og beitti lögreglan táragasi gegn fólki og sveimuðu þyrlur yfir hverfinu sem í gegnum tíðina hefur oft verið vettvangur átaka á milli lögreglu og íbúa þess. Erlent 15. desember 2009 07:02
Grænþvottur í Kaupmannahöfn? Lokasprettur loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn hefst í dag. Ráðherrar tínast til Hafnar hver á fætur öðrum og fyrir lok vikunnar þarf að innsigla samkomulag um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Sjaldan hefur jafnmikið verið undir á einni SÞ-ráðstefnu. Ef ríki heims grípa ekki til raunhæfra aðgerða strax til þess að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda bendir allt til þess að hlýnun lofthjúpsins muni kalla fram hamfaralíkar breytingar á veðurfari og lífríki jarðar á þessari öld. Hér þarf ekki að ýkja neitt, nóg er að kynna sér niðurstöður Vísindanefndar SÞ um loftslagsbreytingar til að sannfærast um nauðsyn þess að grípa til róttækra aðgerða. Afleiðingar hlýnunar lofts og sjávar geta kallað miklar hörmungar yfir mannkynið. Skoðun 15. desember 2009 06:00
Partíið er alveg að verða búið Nú í miðjum jólaundirbúningnum stendur yfir mikilvæg ráðstefna í Kaupmannahöfn. Á meðan við stressum okkur yfir heimilisþrifum, jólagjafainnkaupum og of mikilli vinnu í aðdraganda hátíðahalda eru stærstu auðríki heims að reyna að komast að samkomulagi til þess að stöðva hlýnun jarðar. Við geispum yfir fyrsta kaffibolla morgunsins og flettum yfir fréttir af loftslagsráðstefnunni í dagblöðunum. „Hundrað þúsund mótmælendur gengu til bjargar loftslagi." „Tólf hundruð manns handteknir í mótmælum helgarinnar." Við geispum aftur. Mótmæli eru svo þreytandi. Bakþankar 15. desember 2009 00:01
Skemmdarverk og íkveikjur í Kaupmannahöfn Skemmdarverk, íkveikjur og alls kyns óspektir einkenndu næturvakt lögreglunnar í Kaupmannahöfn. Erlent 14. desember 2009 08:25
Veröldin vill samning sem heldur Í dag, 12. desember, klukkan 17.30, mun Íslandsdeild Attac-samtakanna, í samvinnu við Náttúruverndarsamtök Íslands og netsamfélagið Avaaz.org, standa fyrir kertaljósavöku á Lækjartorgi, í Reykjavík. Skoðun 12. desember 2009 06:00
Þróunarríkin fá fjárstuðning Leiðtogar hinna 27 aðildarríkja Evrópusambandsins komu sér í gær saman um að verja 2,4 milljónum evra á ári næstu þrjú ár til að hjálpa þróunarríkjum að taka þátt í baráttunni gegn hlýnun jarðar. Þessi upphæð samsvarar um 450 milljónum króna á ári. Erlent 12. desember 2009 05:15
Kirkjuklukkum hringt 350 sinnum vegna umhverfisógnar Í tilefni af loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn verður kirkjuklukkum um allan heim hringt 350 sinnum, sunnudaginn 13. desember klukkan þrjú, „til að minna á þá umhverfisvá sem steðjar að jarðarbúum vegna hlýnunar andrúmsloftsins," að því er fram kemur í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni. Hér á landi verður kirkjuklukkum hringt víða um land. Innlent 11. desember 2009 11:20
Þjóð meðal þjóða Augu heimsins beinast nú að loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn þar sem fram fer fimmtánda aðildarríkjaþing loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Skoðun 11. desember 2009 06:00
Umhverfisvá – 350 klukknaslög Í tilefni af loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn verður kirkjuklukkum víða um heim hringt 350 sinnum nk. sunnudag 13. desember kl. 15 að staðartíma til að minna á þá umhverfisvá sem steðjar að jarðarbúum vegna hlýnunar andrúmsloftsins. Hér á landi verður klukkum hringt í mörgum kirkjum landsins. Skoðun 11. desember 2009 06:00
Hlýnun jarðar er af manna völdum Sautján hundruð vísindamenn í Bretlandi sendu frá sér yfirlýsingu í gær, þar sem þeir segjast sannfærðir um að sterk vísindaleg rök séu fyrir því að hlýnun jarðar sé af mannavöldum. Erlent 11. desember 2009 04:30
Ráðstefnan á íslenskum stól Íslenskur stóll eftir Erlu Sólveigu Gísladóttur er það húsgagn sem hvað mest ber á í blöðum og fréttatímum um heim allan um þessar mundir. Vel á þriðja þúsund eintaka af stólnum, sem kallast Bessi, prýða nefnilega ráðstefnusalinn þar sem loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fer fram í Kaupmannahöfn. Innlent 10. desember 2009 04:15
Tilvist eyjanna ræðst á ráðstefnunni Fulltrúi Kyrrahafsríkisins Tuvalu hafði ekki erindi sem erfiði á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Tillaga hans um að ríki heims setji sér strangari markmið varðandi samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fékk lítinn hljómgrunn. Erlent 10. desember 2009 03:45
Leki skekur loftslagsráðstefnuna Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn er í uppnámi eftir að drögum að samkomulagi um samdrátt í losun koltvísýrings var lekið til breska blaðsins The Guardian í gær. Fulltrúar þróunarríkja brugðust ævareiðir við því sem fram kom í drögunum, sem kölluð hafa verið „Danski textinn“. Erlent 9. desember 2009 05:00
Brýnir fulltrúa loftslagsráðstefnunnar Nóbelsverðslaunahafinn Rajendra Pachauri, formaður loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, segir afar nauðsynlegt að alþjóðasamfélagið taki stefnumarkandi ákvarðanir sem allra fyrst þegar kemur að loftslagsmálum. Það sé brýnt til að verjast afleiðingum loftslagsbreytinga vegna losun gróðurhúsalofttegunda. Erlent 7. desember 2009 23:32
Safna liði gegn vágesti í Kaupmannahöfn Lars Lökke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur sagði við setningu Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna að ekki færri en 110 þjóðarleiðtogar komi til ráðstefnunnar sem stendur í hálfan mánuð. Erlent 7. desember 2009 12:10
Yfir 1.200 limmósínur pantaðar í Kaupmannahöfn Búið er að panta yfir 1.200 limmósínur vegna loftsslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn og hafa bílaleigur þar í borg ekki undan að anna eftirspurninni. Þá er von á 140 einkaþotum til borgarinnar vegna ráðstefnunnar. Mengunin af þessum farartækjum verður á við það sem meðalstór bresk borg lætur frá sér með á ráðstefnunni stendur. Viðskipti erlent 7. desember 2009 09:34
Loftslagsráðstefna SÞ hefst í dag Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst í Kaupmannahöfn í dag en hana sækja um það bil 15.000 fulltrúar 192 þjóðríkja og nálægt eitt hundrað þjóðarleiðtogar. Erlent 7. desember 2009 07:22
Stjórnarfundur á Everest Ríkisstjórn Nepals hélt í morgun hálftímalangan fund á Kalipatar-sléttunni á fjallinu Mount Everest en hún er í 5.200 metra hæð yfir sjávarmáli. Erlent 4. desember 2009 08:01
Ríkisstjórnarfundur í hlíðum Everest Ríkisstjórn Nepals ætlar að funda í hlíðum Everest , hæsta fjalls heims, í vikunni. Þetta gerir stjórnin til að vekja athygli á áhrifum hlýnunar jarðar í Himalaya fjöllum áður en loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst í Kaupmannahöfn 7. desember. Erlent 29. nóvember 2009 22:00
Borgarís stefnir á Nýja Sjáland Hundruð risastórra borgarískaja frá Suðurskautinu stefna nú hraðbyri að Nýja Sjálandi. Erlent 24. nóvember 2009 15:40
Bandaríkin og Kína sögð hindra lausnir Evrópusambandið hvetur ráðamenn í Bandaríkjunum og Kína til þess að taka af skarið og setja sér markmið í loftslagsmálum, svo loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn verði ekki árangurslaus. Erlent 24. nóvember 2009 00:45