

NFL
Fréttir og úrslit úr bandarísku NFL ruðningsdeildinni.

Dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir fyrstu tæklingu eftir leikbann
NFL leikmaðurinn Kareem Jackson hjá Denver Broncos er á leiðinni í langt bann eftir harða tæklingu sína í deildinni um helgina.

Kærasti Taylors Swift íhugar að hætta
Travis Kelce, leikmaður Kansas City Chiefs í NFL-deildinni í Bandaríkjunum, íhugar að hætta að spila vegna meiðsla.

„Hann er tilbúinn að leggja líf og limi að veði“
Josh Dobbs, leikmaður Minnesota Vikings, hefur komið eins og stormsveipur inn í liðið í NFL-deildinni í amerískum fótbolta á yfirstandandi tímabili. Félagarnir í Lokasókninni ræddu um hans áhrif í síðasta þætti.

Laug í beinni á hliðarlínunni
Bandaríska sjónvarpskonan Charissa Thompson segist stundum hafa farið frjálslega með sannleikann þegar hún starfaði á hliðarlínunni í NFL-leikjum.

Lokasóknin: Alvöru grip CeeDee Lamb og tásusvægi í hæsta klassa
Að venju var farið yfir tilþrif vikunnar í Lokasókninni sem var á dagskrá á Stöð 2 Sport í gær. Þá var einnig sýnt frá rosalegri tæklingu leikmanns Houston Texans.

Sá besti hefur spilað í sömu nærbuxunum allan NFL-ferilinn
Íþróttamenn eru oft mjög hjátrúarfullir og gott dæmi um það er NFL stórstjarnan Patrick Mahomes sem var bæði valinn mikilvægasti leikmaður síðasta tímabils og vann einnig titilinn með liði Kansas City Chiefs.

Lokasóknin: Upplifði draum allra karlmanna
Lokasóknin fjallar um NFL-deildina á Stöð2 Sport í hverri viku og þar fara menn líka oft yfir það sem gerist fyrir utan leikvellina.

Fleiri horfðu á Glódísi Perlu og félaga en á NFL leikinn
Tveir stórir leikir fóru fram á sunnudaginn í Þýskalandi og það kemur kannski einhverjum á óvart hvor þeirra fékk meira áhorf í þýsku sjónvarpi.

NFL-deildin færir sig til Spánar eða Brasilíu á næsta ári
Roger Goodell, yfirmaður NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta, hefur staðfest að einn leikur á næsta tímabili verði spilaður í nýju landi.

Mætti án þess að æfa með nýja liðinu sínu og leiddi það til sigurs
Ein ótrúlegasta frammistaða helgarinnar og í raun alls NFL tímabilsins er sú sem við sáum hjá leikstjórnandanum Joshua Dobbs í gær.

Mahomes lýsti yfir áhuga á Ólympíuleikunum
Patrick Mahomes, leikstjórnandi Kansas City Chiefs í NFL deildinni, sagðist hafa áhuga á að spila fyrir bandaríska landsliðið á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028. Fánafótbolti verður ein af fimm nýjum ólympíuíþróttum það árið.

Nú á bara eitt atvinnumannafélag í Texas eftir að vinna titil
Texas Rangers varð í nótt bandarískur hafnarboltameistari eftir 4-1 sigur á Arizona Diamondbacks í lokaúrslitum. Þetta var í fyrsta sinn sem Rangers vinnur MLB titilinn.

Leikmaður Eagles skellti sér á Instagram í hálfleik
Kenneth Gainwell sem leikur með Philadelphia Eagles í NFL-deildinni virðist ekki hafa verið með einbeitinguna í botni í leik liðsins um helgina. Hann var mættur á Instagram í hálfleik í leiknum gegn Washington Commanders.

Strákarnir í Lokasókninni fengu sér majónes út í kaffið
Nýliðinn Will Levis fékk loksins að spila sinn fyrsta leik í áttundu viku NFL tímabilsins og hann nýtti langþráð tækifæri sitt frábærlega.

Majónes í kaffið strákurinn átti magnaðan fyrsta leik
Meistarar Kansas City Chiefs töpuðu óvænt í NFL-deildinni í Denver í gær og taphrina San Francisco 49ers hélt áfram og er nú komin upp í þrjá leiki í röð. Maður helgarinnar var aftur á móti nýliðinn sem var „niðurlægður“ í nýliðavalinu.

Ákærður fyrir að hafa myrt móður sína og falið lík hennar
Fyrrum NFL leikmaðurinn Sergio Brown hefur verið ákærður fyrir að myrða móður sína. Frá þessu greinir CNN í Bandaríkjunum.

Hrútarnir spörkuðu sparkaranum eftir slæma helgi
NFL sparkarinn Brett Maher er atvinnulaus eftir slaka frammistöðu sína um helgina en hann var látinn fara tveimur dögum eftir hörmungarframmistöðu sína með Los Angeles Rams á móti Pittsburgh Steelers.

Kærastinn fór á kostum fyrir framan Taylor Swift á hátíðardegi innherja
Travis Kelce átti enn einn stórleikinn með Kansas City Chiefs liðinu í NFL deildinni í gær og meistararnir eru hreinlega að stinga af í sínum riðli.

Belichick kominn með 300 deildarsigra eftir einkar óvæntan sigur Patriots
New England Patriots vann óvæntan sigur í NFL-deildinni um helgina sem þýðir að Bill Belichick, þjálfari liðsins, hefur nú unnið 300 deildarleiki sem þjálfari. Aðeins tveir menn hafa unnið fleiri leiki í sögu NFL-deildarinnar.

„Sonur minn veit að það er eins gott fyrir hann að fæðast ekki í miðjum leik“
Leikmennirnir hans eru vanir að hlusta á hann en hvað með ófæddan soninn? Sean McVay kallaði fram hlátrasköll á blaðamannafundi fyrir leik liðsins hans um helgina í NFL.

Sjáðu tilþrif umferðarinnar í NFL
NFL-deildin í Bandaríkjunum er komin á fullt span en um helgina og í gær var sjötta umferð deildarinnar leikin. Líkt og vanalega var mikið um skemmtileg tilþrif hjá leikmönnum deildarinnar.

Sleit hásin í síðasta mánuði og ætlar sér að spila á tímabilinu
Strákarnir í Lokasókninni fóru yfir síðustu umferð í NFL deildinni og ræddu þar meðal annars stöðuna á leikstjórnandanum Aaron Rodgers.

Stjörnuútherjinn kom góðhjörtuðum áhorfanda mikið á óvart
Tyreek Hill er einn allra besti útherji NFL-deildarinnar eins og hann sannar í næstum því hverjum einasta leik. Hann er líka með stórt hjarta eins og hann sannaði í vikunni.

Taylor Swift aftur mætt og kærastinn í stuði í fimmta sigri Chiefs í röð
NFL-meistarar Kansas City Chiefs héldu sigurgöngu sinni áfram í NFL-deildinni í nótt þegar liðið vann 19-8 sigur á Denver Broncos á Arrowhead.

Brady hleður Brock lofi
Brock Purdy, leikstjórnandi San Francisco 49ers í NFL-deildinni, er á bleiku skýi þessa dagana. Lið hans hefur unnið fimm fyrstu leiki sína á leiktíðinni og er honum líkt við goðsögnina Tom Brady. Sá síðarnefndi hefur mikið álit á Purdy.

Spilaði örfáum dögum eftir hræðilegt brunaslys: „Harðasti maðurinn í NFL“
David Njoku, innherji Cleveland Browns í NFL-deildinni, hefur birt mynd af alvarlega brenndu andliti sínu eftir slys sem varð heima hjá honum á dögunum. Hann mætti í leik aðeins örfáum dögum eftir slysið en bar þá grímu sem huldi andlit hans.

Lokasóknin: Óþarfi að banna bræðraplóginn
Philadelphia Eagles er búið að vinna alla leiki sína í NFL-deildinni í vetur. Liðið býr yfir öflugu og umdeildu kerfi sem margir vilja banna.

Lokasóknin: Bijan með takta í anda Magic Johnson
Það er ekki á hverjum degi sem þú sérð leikmann í NFL-deildinni sýna tilþrif í anda NBA-deildarinnar enda eru íþróttirnar ansi ólíkar.

Lokasóknin: Jets niðurlægði þjálfara Broncos
Það var mikil undiralda fyrir leik Denver Broncos og NY Jets í NFL-deildina. Leikmenn Jets tóku málin persónulega og ætluðu sér að jarða þjálfara Broncos.

„Ég spilaði á móti sjálfum mér í Fantasy í dag“
Hlauparinn Travis Etienne var frábær með liði Jacksonville Jaguars í NFL deildinni um helgina.