

Samherjaskjölin
30 þúsund skjöl um viðskiptahætti Samherja í Namibíu voru birt á vef WikiLeaks. Á sama tíma birtist umfjöllun um málið í þættinum Kveik og hjá Stundinni.

Bættu við kafla um spillingu og mútur í ársreikninginn
Samherji vonast til þess að félagið verði búið að setja sér reglur um siðferði, spillingu, mannréttindi og mútur fyrir lok þessa árs.

Yfirlýsing Kveiks: Höfnuðu fundi með Samherja í London
Kveikur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fullyrðinga Þorsteins Más Baldvinssonar þess efnis að Kveikur hafi nálgast Samherja á fölskum forsendum, hafnað fundarbeiðni og ekki sinnt hlutleysisskyldu sinni við vinnslu þáttarins.

Forseti Namibíu vill Shanghala og Esau úr ríkisstjórninni
Namibian Sun heldur því fram að Hage Geingob vilji reka tvo ráðherra í kjölfar Samherjaskjalanna.

Vaktin: Samherji í ólgusjó
Eitt umsvifamesta sjávarútvegsfyrirtæki Íslands er sakað um að hafa borið fé á namibíska embættismenn til að komast yfir kvóta þar í landi.

„Lítur illa út“ að sjávarútvegsráðherra hafi verið stjórnarformaður Samherja
Oddný kveðst þó ekki efast um heilindi ráðherrans, Kristján Þórs Júlíussonar.

„Einkar ógeðslegt“ að misnota auðlindir þjóðar
Þar vísar hann til umfjöllunar Kveiks í gærkvöldi, þar sem því var haldið fram að Samherji hafi greitt embættismönnum í Namibíu rúman milljarð króna í mútur til að komast yfir kvóta þar í landi.

Þorsteinn og Jóhannes á forsíðu morgundagsins
Namibíski fjölmiðillinn The Namibian hefur boðað viðamikla umfjöllun um þarlendan sjávarútveg í tölublaði morgundagsins.

Þorsteinn Már skellir skuldinni á uppljóstrarann
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir það hafa verið honum mikil vonbrigði að komast að því að fyrrverandi stjórnandi fyrirtækisins í Namibíu virðist hafa hugsanlega flækt Samherja í viðskipti sem kunna að vera ólögmæt.

„Mætti spyrja sig að því hvort að okkar veiku varnir gegn peningaþvætti hafi auðveldað Samherja verkið“
Þórhildur Sunna vill skipa rannsóknarnefnd til að fara ofan í kjölinn á fjárfestingaleið Seðlabankans.

Spyr hvað þjóðin geri nú
Sighvati Björgvinssyni var brugðið að sjá hvernig Samherji hefur umgengist namibískt kvótakerfi, kerfi sem Íslendingar hafi átt átt stóran þátt í að móta og koma á laggirnar.

Héraðssaksóknari skoðar mál Samherja í Namibíu
Gera það eftir þátt Kveiks sem fjallaði um meintar mútugreiðslur Samherja í Namibíu.

Kveikur tók yfir Twitter: „Sá ekkert af þessu fólki The Wire?“
Mikil eftirvænting ríkti vegna umfjöllunar Kveiks um starfsemi Samherja í Namibíu sem unnin var upp úr 30 þúsund skjölum sem Wikileaks birti í kvöld

Djammferðir Samherja til Íslands styrktu tengslin við Namibíu
Sjávarútvegsfyrirtækið Samherji flaug namibískum áhrifamönnum hið minnsta þrisvar til Íslands, með milljónakostnaði, með það fyrir augum að þurfa ekki að keppa um fiskveiðikvóta í Namibíu á almennum markaði.

Wikileaks birtir 30 þúsund gögn um Samherja
Uppljóstrunarvettvangurinn Wikileaks birti í kvöld 30 þúsund skjöl sem það segist hafa fengið frá Jóhannesi Stefánssyni, fyrrverandi stjórnanda Samherja í Namibíu.

Samherji sakaður um stórfelld undanskot í Namibíu
Namibískir fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um málið síðustu misseri, einkum ásakanir stjórnarformanns Sinco Fishing, félags sem starfað hefur með Samherja í Namibíu.