Ný ríkisstjórn í höfn á Grænlandi Viðræðum um myndun meirihluta á grænlenska þinginu er lokið og koma fjórir fimm flokkanna á þinginu að nýrri ríkisstjórn. Til stendur að undirrita stjórnarsáttmála í hádeginu á morgun. 27.3.2025 20:13
Gengur þreyttur en stoltur frá borði Magnús Karl Magnússon beið nauman ósigur í seinni umferð rektorskjörs Háskóla Íslands í dag. Hann óskar nýkjörnum rektor til hamingju og segist ganga þreyttur en sáttur frá borði. 27.3.2025 19:24
„Þetta er yfirþyrmandi tilfinning“ Silja Bára R. Ómarsdóttir, nýkjörinn rektor Háskóla Íslands, segist ekki oft orðlaus en að hún sé það nú. Hún bar nauman sigur úr býtum í seinni umferð rektorskjörsins með rétt rúm 50 prósent. 27.3.2025 19:17
Ekki hægt að segja félagslega kjörnum formanni upp Stjórn Sameykis segir að samkvæmt lögum félagsins sé ekki hægt að segja félagslega kjörnum formanni upp störfum. Að fengnu lögfræðiáliti og með aðkomu sáttamiðlara varð tæplega sjötíu milljón króna starfslokasamningur niðurstaðan. 27.3.2025 18:02
Úrslit kjörs til rektors Háskóla Íslands kynnt Seinni umferð rekstorskjörs Háskóla Íslands lauk nú klukkan 17. Kosið var á milli Magnúsar Karls Magnússonar, prófessors við læknadeild, og Silju Báru R. Ómarsdóttur, prófessors við stjórnmálafræðideild. 27.3.2025 17:36
Kjartan Már aftur í veikindaleyfi Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ er aftur farinn í veikindaleyfi. 27.3.2025 17:28
Upphæðin kom Þórarni í opna skjöldu Fyrrverandi formaður Sameykis segist ekki verða var við mikla gagnrýni eftir að í ljós kom í aðdraganda aðalfundar félagsins að hann hefði gert starfslokasamning við stjórn félagsins sem kvað á um það að hann verði áfram á launum næstu tvö árin og hálft. 27.3.2025 17:08
Treystir því að stjórnvöld setji ekki fólk á götuna Óvissa er um framtíð úrræðis fyrir þjónustusvipta hælisleitendur vegna þess að samningur Rauða krossins um félagslegan stuðning fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd verður ekki endurnýjaður. 27.3.2025 16:15
Paul Watson heitir að trufla hvalveiðar á Íslandi í sumar Hvalavinurinn kanadíski Paul Watson, sem er vel kunnugur landsmönnum, heitir því að trufla hvalveiðar á Íslandi í sumar. Hann varði drjúgum hluta vetrarins í fangelsi á Grænlandi en mikið hefur verið fjallað um það kast sem hann hefur komist í við lögin hér á landi. 18.3.2025 00:06
„Ófremdarástandi“ Sjálfstæðisflokksins ljúki með uppbyggingu nýs fangelsis Dómsmálaráðherra segir að verið sé að stíga skref í dómsmálaráðuneytinu sem miða að því að byggja nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni. Því „ófremdarástandi sem teiknaðist upp á vakt Sjálfstæðisflokksins“ muni þá ljúka. 17.3.2025 23:36