
Birtist í Fréttablaðinu

Hollvinasamtök leggja fram kæru
Samtök unnenda sundahallar Keflavíkur funduðu með Minjastofnun.

Biður um milljarða smáræði handa jemenskum börnum
Stríðið í Jemen hefur nú geisað í þrjú ár. Framkvæmdastjóri UNICEF á svæðinu hefur biðlað til stjórnvalda um að grípa inn í og segir upphæðina smáræði samanborið við það sem eytt er í stríðsrekstur. Leggja mætti út fyrir nauðsynlegri aðstoð 35 sinnum með upphæðinni sem Sádar nota í kaup á bandarískum vígvélum.

Enginn verður skilinn eftir
Íslenskt menntakerfi stendur á tímamótum að sögn Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra sem lítur til Finnlands og Kanada. Börn af erlendum uppruna megi ekki vera jaðarsett og skortir aðstoð.

Orð og athafnir
Sjálfstæðismenn samþykktu á landsfundi um liðna helgi ályktun um Ríkisútvarpið. Þar sagði að endurskoða þyrfti hlutverk RÚV – þrengja verksvið þess í ljósi breytinga sem orðið hafa á fjölmiðlamarkaði.

Lengi lifir í gömlum glæðum karlrembunnar
Í síðustu viku var greint frá því að Oxford-háskóli hygðist bjóða upp á nýjan kúrs í heimspeki. Ber hann yfirskriftina "femínísk heimspeki“. Oxford-háskóli hefur undanfarið sætt gagnrýni fyrir einsleita og karllæga námskrá og er námskeiðinu ætlað að bæta þar úr.

Sleppt og haldið
Stjórnmálamaður/verkalýðsleiðtogi: "Það er mjög mikilvægt að í þessum samningum verði lægstu laun hækkuð verulega umfram önnur laun.“

Vísindamenn varpa ljósi á örlög Ötu
Fimmtán ára gömul ráðgáta var leyst á dögunum þegar vísindamönnum við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum tókst að varpa ljósi á uppruna beinagrindar sem fannst árið 2003 í Síle. Um stúlkubarn var að ræða sem lést stuttu eftir fæðingu.

Lendingarbúnaður lokar leiðum úr bænum
Nýr lendingarbúnaður við Akureyrarflugvöll gæti lokað útivistarleið um Eyjafjörð en gömlu brýrnar hafa borið ferðalanga yfir Eyjafjörð síðan árið 1923. Óvíst hvenær ný vegur verður lagður fyrir þann sem tapast undir lendingarbúnaðinn.

Málefni barna í forgangi hjá ráðherra
Til greina kemur að reglugerð um daggæslu í heimahúsum verði breytt þannig að tveir dagforeldrar þurfi að starfa saman að lágmarki eins og Reykjavíkurborg hefur hvatt til.

Siggi segir fastari jörð í pólitíkinni en veðrinu
Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi stormur, leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði. Hann segir flokkinn á góðri siglingu og stefnir á að ná þremur mönnum inn. Þótt stjórnmálin þyki hvikul segir hann spáveðurfræðina en hvikulli.

Novichok í höndum rússneskra gengja
Rússneskur miðill, gagnrýninn á ríkisstjórnina, segir taugaeitrið sem notað var á Sergei Skrípal í höndum glæpagengja. Magnið sé nægilegt til að drepa hundruð.

Sá strax að saga Rjóma væri efni í mynd
"Myndin er óvenjuleg því hún fjallar um hund, það hefur örugglega aldrei verið gerð heimildarmynd um hund á Íslandi.“

Borgin greiðir ekki öryrkjum bætur sem þeim voru dæmdar
Framkvæmd Reykjavíkurborgar að neita öryrkjum um sérstakar húsaleigubætur var dæmd ólögmæt. Samt sem áður neitar borgin að greiða sérstakar húsaleigubætur aftur í tímann til allra öryrkja sem rétt eiga á bótunum. Borgarstjórinn hefur enn ekki svarað tveggja mánaða gömlu bréfi frá Öryrkjabandalaginu.

Skylt verði að dagforeldrar starfi að lágmarki tveir saman
Stærsta sveitarfélag landsins hefur hvatt til þess að reglugerð um dagforeldra verði breytt. Dagforeldrar verði þá minnst tveir saman. Dagmóðir var dæmd í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi vegna ofbeldis gegn barni.

Bónusgreiðslur hífðu upp forstjóralaun
Bónusgreiðslur vegna afkomu ársins 2016 útskýra hækkun launa Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips. Árslaunin námu tæpum 103 milljónum í fyrra. Forstjóralaunin hækkað um 40 prósent frá 2014. Sex framkvæmdastjórar hækkuðu um alls 53,5 milljónir milli ára.

Meirihluti virðist fyrir því að lækka kosningaaldur í 16 ár
Síðasta umræða um lækkun kosningaaldurs til sveitarstjórna fer fram í dag. Verði frumvarpið samþykkt mun hluti elsta árgangs grunnskólanema geta kosið í vor. Ráðuneyti og stofnanir telja örðugt að framkvæma breytinguna. Samkvæmt nýju ákvæði munu 16 ára ólögráða kjósendur ekki njóta kjörgengis.

Útflutningur eykst þrátt fyrir styrkingu krónu
Hestaútflutningur hefur aukist um nærri 30 prósent frá árinu 2010 á sama tíma og folöldum hefur fækkað nokkuð. Formaður Félags hrossabænda segir gott verð fást fyrir góða gripi en bændur hafi fækkað hjá sér eftir nokkurt offramboð.

Hefnir fyrir hugverkaþjófnað með tollum á kínverskar vörur
Tollar sem munu skila ríkissjóði Bandaríkjanna fimmtíu milljörðum dala verða lagðir á kínverskar vörur.

Lausnargjaldsgreiðslur til Boko Haram stuðli að frekari ránum
Ráðherrar segja ekkert lausnargjald greitt fyrir þær 104 stúlkur sem Boko Haram slepptu úr haldi á miðvikudag. Fjölmiðillinn sem greindi fyrst frá málinu segir ráðherrana ljúga. Tíðar lausnargjaldsgreiðslur Buhari-stjórnarinnar áhyggjuefni. Stjórnarandstaðan segir stjórnina hafa sviðsett allt málið til að græða atkvæði.

Ákærð fyrir líflátshótun í garð þjálfara
Móðir þroskaskertrar konu hefur verið ákærð fyrir líflátshótun gegn boccia-þjálfara dóttur sinnar. Þjálfarinn er grunaður um að hafa brotið gegn þroskaskertum konum sem hann þjálfaði. Mál hans er á borði saksóknara eftir tæplega þriggja ára rannsókn hjá lögreglu.

Kennarar fái tæpa milljón
Launahækkanir kennara og lögreglumanna eru mikilvægari en nýjar skattalækkanir.

Allt að sex nýir leikskólar verði byggðir í Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg hyggst brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla á næstu árum samkvæmt aðgerðaáætlun sem kynnt var í borgarráði í gær.

Ruslflekinn á Kyrrahafi stækkar ört
Plastruslið sem hvirfillinn í Norður-Kyrrahafi hefur sogað til sín hrannast upp og stækkar ruslflekinn þar enn á miklum hraða.

Lögmaður áminntur vegna tilhæfulauss reiknings
Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson var á síðasta degi febrúarmánaðar áminntur af úrskurðarnefnd lögmanna vegna háttsemi sinnar í garð umbjóðanda síns.

Dulnefni Stellu stoppi ekki greiðslur
Settur umboðsmaður Alþingis mælist til þess að bókasafnssjóður leysi efnislega úr máli Stellu Blómkvist leiti höfundurinn á ný til sjóðsins.

Pólskipti í Ungverjalandi
Stjórnarandstöðuflokkurinn Jobbik í Ungverjalandi hefur frá stofnun árið 2003 verið kenndur við öfgaþjóðernishyggju.

Þekking er gjaldmiðill framtíðar
Uppbygging rannsókna og doktorsnáms við Háskóla Íslands undanfarna tvo áratugi hefur komið skólanum í fremstu röð alþjóð legra rannsóknaháskóla. Þjóðir heims fjárfesta í rannsóknarháskólum til að byggja upp samfélag sem drifið er áfram af menntun, rannsóknum og nýsköpun. Hér á landi hefur verið stigið skref í þá átt með uppbyggingu háskólastigsins en til að byggja upp blómlegt þekkingarsamfélag á Íslandi til framtíðar þarf samstillt átak háskóla, stjórnvalda og atvinnulífs.

Frey Frostasyni svarað vegna vistspors sjókvíaeldis
Freyr Frostason arkitekt, formaður Icelandic Wildlife Fund skrifar um sjókvíaeldi í Fréttablaðið 14. mars sl. og finnur því flest til foráttu. Sjókvíaeldi á laxi er mikilvæg matvælaframleiðsla, og telur um 2,2 miljónir tonna á ári á heimsvísu, en þyrnir í augum þeirra sem telja hættu á að kynbættur stórlax úr eldi geti spillt íslenskum laxastofnum og mengað firði. Þessi umræða er oft og tíðum öfgakennd og lituð rangfærslum.

Einföldum regluverk - afnemum 25 ára „regluna“
Ég vil afnema hina svokölluðu 25 ára "reglu“ við innritun nemenda í framhaldsskóla. Frá árinu 2012 hefur framhaldsskólum verið heimilt að forgangsraða umsóknum um skólavist eftir tiltekinni flokkun á umsækjendum. Einn liður í reglugerðinni sem liggur til grundvallar kveður á um að umsækjendum 25 ára og eldri, og njóta ekki forgangs af öðrum ástæðum, er raðað næstsíðast við flokkun umsókna.

Ólíkindatólið og ógnir samfélagsins
Eftir tafir var Hans Blær eftir Eirík Örn Norðdahl frumsýnt í Tjarnarbíói síðastliðinn miðvikudag.