EM 2020 í fótbolta

Telur líklegt að Saka byrji og Southgate stilli upp í 3-4-3 leikkerfi
Hinn áreiðanlegi David Ornstein hjá The Athletic hefur stillt upp því sem hann telur líklegt byrjunarlið Englands í leiknum gegn Þýskalandi í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu í dag.

„Það er enginn reiður út í hann“
„Mér þykir fyrir því hvernig fór með vítið. Ég vildi hjálpa liðinu en mér mistókst,“ skrifaði Kylian Mbappé á Instagram eftir að hafa fallið úr leik á EM með franska landsliðinu, eftir vítaspyrnukeppni gegn Sviss.

Sjáðu snertinguna hans Benzema, þrumufleyg Pogba og allar vítaspyrnurnar
Sviss er komið í átta liða úrslit Evrópumótsins 2020 eftir að hafa slegið út ríkjandi heimsmeistara, Frakka, úr leik.

Sommer sá við Mbappe og heimsmeistararnir úr leik
Sviss gerði sér lítið fyrir og sló út heimsmeistara Frakka í 16-liða úrslitunum á EM 2020. Úrslitni réðust í vítaspyrnukeppni eftir að staðan var 3-3 eftir framlengingu.

Sjáðu öll átta mörkin er Spánn afgreiddi Króatíu
Spánn tryggði sér fyrr í dag sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins með 5-3 sigri á Króötum í frábærum leik.

Gæti komið beint úr sóttkví í byrjunarliðið
England er að undirbúa sig af krafti fyrir leik liðsins í 16-liða úrslitunum gegn Þýskalandi á EM 2020.

Fótboltaveisla á Parken og Spánn í átta liða úrslitin
Spánverjar eru komnir í átta liða úrslit Evrópumótsins 2020. Þeir spænsku unnu 5-3 sigur á Króatíu á Parken eftir stórskemmtilegan framlengdan leik.

Segir Pogba fullkominn miðjumann
Paul Pogba, miðjumanni Frakka, hefur verið hrósað í hástert af þjálfaranum Didier Deschamps fyrir leik Frakka gegn Sviss í kvöld.

Sjáðu ótrúlega klaufalegt sjálfsmark Spánar
Spánn lenti 0-1 undir gegn Króatíu í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu. Markið var einkar klaufalegt. Spánverjar hafa þó jafnað metin og er staðan 1-1 í hálfleik.

Fékk að vita hjá pabba á leiðinni heim að hún hefði getað hitt ástina í lífi sínu
„Ég var mjög leið. Ég missti af honum,“ sagði íþróttafréttakonan Kristjana Arnarsdóttir þegar hún rifjaði upp glatað tækifæri til að hitta þáverandi ástina í lífi sínu, á Laugardalsvelli á sextán ára afmælinu sínu.

Síðasti séns Modric á móti Spánverjum sem hrukku í gang en Shaqiri þarf að fella heimsmeistarana
Það er löngu sannað að lið sem vinna stórmót í fótbolta fara ekki endilega af stað með látum á mótinu. Króatía og Spánn fóru rólega af stað á EM en komu sér svo af öryggi í úrslitakeppnina þegar allt var undir.

Gáfaðasti fótboltamaðurinn sem Roy Keane hefur séð
Frábæru Evrópumóti Cristiano Ronaldo er lokið en hvorki hann né félagar hans fundu leið í markið á móti Belgum í gær.

Sjáðu martraðarmínútu Hollands: „Töpuðum leiknum út af því sem ég gerði“
„Þetta atvik breytti leiknum og ég ber ábyrgðina,“ sagði Matthijs de Ligt, varnarmaður Hollands, um það þegar hann fékk rautt spjald í 2-0 tapinu gegn Tékklandi á EM í gær. Atvikið má nú sjá á Vísi.

Heyrt margt verra frá Mourinho: „Augljóslega með mig á heilanum“
Luke Shaw segir að hann og liðsfélagar hans í enska landsliðinu eigi bágt með að skilja hversu áfjáður José Mourinho sé í að setja út á Shaw.

Sjáðu mörkin þegar Tékkar fóru áfram og Belgar slógu Evrópumeistarana út
Tveir leikir fóru fram í gær í 16-liða úrslitum EM. Tékkar eru komnir í átta liða úrslit eftir 2-0 sigur gegn Hollendingum og ríkjandi Evrópumeistarar Portúgal eru á heimleið eftir 1-0 tap gegn Belgum.

Æðismenn spá í EM-leiki morgundagsins
Strákarnir úr raunveruleikaþáttunum Æði spáðu í spilin fyrir leiki morgundagsins í 16-liða úrslitum EM.

Evrópumeistararnir úr leik eftir tap gegn Belgum
Nú er það orðið ljóst að Portúgal mun ekki verja Evrópumeistaratitilinn eftir að liðið féll úr leik gegn Belgum í kvöld. Lokatölur 1-0 þar sem Thorgan Hazard skoraði eina mark leiksins rétt fyrir hálfleik.

„Eftir rauða spjaldið áttum við erfitt með að setja pressu á þá“
Hollendingar féllu úr leik á EM eftir 2-0 tap gegn Tékkum í dag. Georginio Wijnaldum, fyrirliði liðsins, segir að rauða spjaldið sem Matthijs de Ligt fékk á 52. mínútu hafi sett stórt strik í reikninginn.

Tékkar gengu á lagið gegn tíu Hollendingum og eru komnir í átta liða úrslit
Hollendingar eru úr leik á EM eftir 2-0 tap gegn Tékkum á Puskas Arena í Búdapest í dag. Matthijs de Ligt fékk að líta rauða spjaldið í liði Hollendinga á 55. mínútu og Tékkar gengu á lagið og tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum.

Tapað fimm leikjum á fimm árum
Danska landsliðið varð í gær fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu 2020.

„Mun spila fyrir Wales þangað til ég hætti í fótbolta“
Gareth Bale, fyrirliði Wales, var skiljanlega svektur eftir 4-0 tapið gegn Dönum í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu í gær.

Smit í herbúðum Króata
Ivan Perisic mun ekki leika með króatíska landsliðinu í 16-liða úrslitum Evrópumótsins er liðið mætir Spáni á Parken.

Eyðileggur sjóðheitur Cristiano Ronaldo síðasta séns belgísku gullkynslóðarinnar?
Evrópumeistarar Portúgals lifðu af Dauðariðilinn þökk sé því að Cristiano Ronaldo var í miklum markaham. Nú er komið að uppgjöri á móti einu af sigurstranglegasta liði keppninnar.

Sjáðu mörkin þegar Danir og Ítalir voru fyrstu þjóðirnar til að tryggja sæti sitt í átta liða úrslitum
Fyrstu tveir leikir 16-liða úrslita EM fóru fram í gær. Danir unnur 4-0 stórsigur gegn Wales, en Ítalir þurftu framlengingu til að slá Austurríkismenn úr leik. Lokatölur í þeim leik 2-1 þr sem öll mörkin voru skoruð í framlengingunni.

EM í dag: Óli Kristjáns hreifst af góðum anda danska liðsins
Ólafur Kristjánsson, einn af sérfræðingum EM í dag, hefur hrifist af því hvernig Danir hafa tæklað seinustu leiki eftir hræðilegt atvik sem átti sér stað í fyrsta leik liðsins gegn Finnum á EM.

Við vissum að við myndum þurfa að þjást
Roberto Mancini, þjálfari ítalska landsliðsins, var feginn með 2-1 sigur sinna manna í framlengingu gegn Austurríkismönnum í 16-liða úrslitum. Öll þrjú mörk leiksins voru skoruð af varamönnum.

Ítalir í átta liða úrslit eftir framlengdan leik
Ítalir eru komnir í átta liða úrslit EM eftir 2-1 sigur gegn Austurríkismönnum á Wembley í kvöld. Markalaust var þegar venjulegur leiktími var úti og því þurfti að grípa til framlengingar til að skera úr um sigurvegara.

Gareth Bale gekk í burtu þegar hann var spurður um framtíð sína
Gareth Bale, leikmaður velska landsliðsins, gekk í burtu þegar hann var spurður út í framtíð sína með landsliðinu eftir 4-0 tap gegn Dönum í dag. Bale og liðsfélagar hans eru á heimleið eftir tapið.

Danmörk fyrsta þjóðin til að tryggja sæti sitt í átta liða úrslitum
Danmörk og Wales áttust við í Amsterdam í 16-liða úrslitum Evrópumóts karla í fótbolta í dag. Danir eru á leið í átta liða úrslit eftir sannfærandi 4-0 sigur.

Lukaku segist vera í heimsklassa
Romelu Lukaku, framherji belgíska landsliðsins, finnst hann sjálfur eiga heyra til í umræðunni um heimsklassaleikmenn.