Vísindi

Smíða stærsta kjarnasamrunaofn í heimi
Vinna hófst í Frakklandi í dag við byggingu stærsta kjarnasamrunaofn heims. Þessi alþjóðlega vinna mun standa yfir í fimm ár, samkvæmt áætlunum, og munu þá hefjast tilraunir með samruna í lok árs 2025.

Útiloka að jörðin bregðist lítt við losun gróðurhúsalofttegunda
Mestar líkur er á því að hnattræn hlýnun fari umfram mörk Parísarsamkomulagsins haldi núverandi losun manna á gróðurhúsalofttegundum áfram segja vísindamenn sem hafa dregið úr óvissu um hversu næmt loftslag er fyrir inngripi manna.

Mynduðu hnetti á braut um stjörnu sem líkist sólinni í fyrsta skipti
Tveir gasrisar sjást á braut um stjörnu sem líkist sólinni okkar á fyrstu myndinni sem stjarnvísindamenn hafa náð af sólkerfi með fleiri en einum hnetti.

Óttast aldauða hvítabjarna fyrir lok aldarinnar
Hop hafíss á norðurskautinu vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna gæti leitt til þess að hvítabirnir verði nær útdauðir á jörðinni fyrir lok þessarar aldar, að mati vísindamanna. Jafnvel þó að dregið verði hratt úr losun gróðurhúsalofttegunda eigi margir undirstofnar þeirra eftir að verða breytingunum að bráð.

Ný lækningaraðferð gæti reynst vel í baráttunni við Covid-19
Nýjar breskar rannsóknir benda til þess að ný lækningaaðferð reynist vel í baráttunni við Covid-19.

Áður óséðir „bálkestir“ á nýjum nærmyndum af sólinni
Fjöldi áður óséðra smárra sólblossa sem vísindamenn kalla „bálkesti“ kom í ljós á fyrstu nærmyndum geimfarsins Solar Orbiter af yfirborði sólarinnar sem voru birtar í dag. Bálkestirnir eru taldir geta haft áhrif á hitastig kórónu sólarinnar.

Minnkandi frjósemi áhyggjuefni
Minnkandi fæðingatíðni mun leiða til þess að íbúafjöldi allra landa í heiminum mun minnka í lok aldarinnar. Þá mun íbúafjöldi 23 landa verða helmingi minni en hann er nú um næstu aldamót.

Grant Imahara látinn
Rafmagnsverkfræðingurinn Grant Imahara er látinn, 49 ára að aldri. Imahara var einnig fyrrverandi umsjónarmaður sjónvarpsþáttanna Mythbusters á Discovery Channel.

Metnaðarfyllra Parísarmarkmiðið gæti brugðist á næstu árum
Mögulegt er að hnattræn hlýnun nái 1,5°C þegar á næstu fimm árum, að mati Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO). Metnaðarfyllsta markmið Parísarsamkomulagsins í loftslagsmálum var að takmarka hlýnun við 1,5°C frá tímanum fyrir iðnbyltingu.

Hitamet í Síberíu kyndir undir miklum gróðureldum
Meira en fimm gráðum hlýrra var í Síberíu norðan heimskautsbaugs í júní en í venjulegu árferði. Hitabylgjan hefur skapað aðstæður fyrir eina verstu gróðurelda sem geisað hafa á svæðinu samkvæmt gögnum evrópskra gervitungla.

WHO viðurkennir möguleika á að smit berist með lofti
Opið bréf hóps vísindamanna hefur orðið Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) tilefni til að viðurkenna að frekari vísbendingar komi nú fram um að nýtt afbrigði kórónuveiru gæti smitast með lofti.

Vara við því að kórónuveiran geti borist með lofti
Hundruð vísindamanna vara við því að vísbendingar séu um að nýtt afbrigði kórónuveiru geti borist með lofti og smitað fólk í opnu bréfi sem þeir hafa skrifað Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

Telja sig hafa fundið berstrípaðan kjarna gasrisa
Óvenjumassamikill berghnöttur sem stjörnufræðingar fundu þétt upp við móðurstjörnu sína virðist vera kjarni stórrar reikistjörnu á borð við gasrisann Júpíter. Slíkur kjarni hefur aldrei áður fundist og getur fundurinn hjálpað vísindamönnum að skilja betur innviði gasrisa.

Hlýnar þrefalt hraðar á suðurpólnum en meðaltalið
Loftið yfir suðurpólnum hefur hlýnað um þrefalt hraðar undanfarna áratugi en jörðin að meðaltali frá 10. áratug síðustu aldar. Hlýnunin er talin geta verið afleiðing náttúrulegra sveiflna að mestu en að losun manna á gróðurhúsalofttegundum hafi einnig lagt sitt af mörkum.

Ný flensuveira í svínum talin geta valdið faraldri
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segist ætla að grandskoða kínverska rannsókn á nýju afbrigði flensuveiru sem fannst í svínum og vísindamenn vara við að hafi burði til að valda heimsfaraldri. Veiran er talin geta borist úr svínum í menn.

Fundu erfðabreytileika í geni sem eykur áhættu á skjaldkirtilssjúkdómi
Íslenskir vísindamenn hafa fundið erfðabreytileika í geni sem eykur töluvert áhættuna á því að fá sjálfsónæmissjúkdóm í skjaldkirtli.

Afturkalla tímabundið leyfi við notkun malaríulyfja við Covid-19
Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna hefur afturkallað tímabundið leyfi sem stofnunin gaf við notkun á lyfjunum hydroxychloroquine og chloroquine gegn Covid-19 sjúkdóminum.

Styrkur koltvísýrings í nýjum hæðum þrátt fyrir samdrátt vegna faraldursins
Aldrei hefur styrkur koltvísýrings í andrúmslofti mælst hærri í sögu mannkynsins en í síðasta mánuði þrátt fyrir að dregið hafi umtalsvert úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Líklegt er talið að styrkur koltvísýrings hafi ekki verið meiri í um þrjár milljónir ára.

Næst besti árangur í lækkun kolesteróls frá 1980
Ný rannsókn sem birtist í nýjasta hefti vísindatímaritsins Nature sýnir að slæmt kólesteról, það er kólesteról sem eftir er þegar svokallað góða HDL kólesterólið hefur verið dregið frá, hefur hækkað mest í Asíuríkjum og lækkað mest á Vesturlöndum.

Draga til baka umdeilda rannsókn á malaríulyfi
Höfundar rannsóknar sem benti til þess að aukin hætta á dauða fylgdi notkun á malaríulyfinu hydroxychloroquine gegn Covid-19 hafa dregið hana til baka eftir að gagnrýni kom fram á áreiðanleika gagna sem lágu til grundvallar henni. Tilraunir með lyfið voru stöðvaðar eftir að niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar á dögunum.

Efast um forsendur rannsóknar á malaríulyfi gegn Covid-19
Breska læknaritið Lancet lýsti í gær áhyggjum af því að gögn sem notuð voru í rannsókn sem komst að þeirri niðurstöðu að malaríulyf tengdist auknum dánarlíkum hjá sjúklingum með Covid-19 væru ekki áreiðanleg. Lyfið og notkun þess hefur orðið hápólitísk eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti mærði það sem töfralausn við kórónuveiruheimsfaraldrinum.

Bein útsending: Hætt við fyrsta mannaða geimskotið í Bandaríkjunum í tæpan áratug
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX ætla að reyna við tímamóta geimskot í kvöld.

Allt klárt fyrir tímamótageimskot
Allt virðist klárt fyrir fyrsta mannaða geimskotið frá Bandaríkjunum í tæpan áratug.

Geimskot Virgin Orbit misheppnaðist
Starfsmönnum fyrirtækisins Virgin Orbit, sem er í eigu auðjöfursins Richard Branson, mistókst í gærkvöldi að skjóta eldflaug út í geim.

Ísland fær mikið fyrir peninginn þegar borskipið kemur að bora
Tveir alþjóðaleiðangrar á borskipi, sem nú eru í undirbúningi, gætu orðið einhverjir dýrustu vísindaleiðangrar í sögu rannsókna við Ísland. Til stóð að borskipið kæmi í næsta mánuði en núna er ljóst að kórónufaraldurinn raskar tímaáætlun skipsins.

Fólkið stjórni tækninni en ekki tæknin fólkinu
Ráðherrar kynntu áherslur ríkisstjórnarinnar hvað lítur að stuðningi við tækni, vísindi og nýsköpun í gegnum svokallaða markáætlun á blaðamannafundi í dag.

Telja sig hafa náð mynd af fæðingu reikistjörnu
Myndir sem hópur stjörnufræðinga hefur birt eru taldar þær fyrstu af reikistjörnu í fæðingu í nýju sólkerfi sem er að myndast í hundraða ljósára fjarlægð frá jörðinni. Uppgötvunin getur hjálpað stjörnufræðingum að skilja betur hvernig reikistjörnur verða til.

Bein útsending: Aðgerðir fyrir nýsköpun og vísindi
„Út úr kófinu: vísindi, nýsköpun og áskoranir framtíðarinnar“ er yfirskrift blaðamannafundar sem forsætisráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra boða til í dag.

Samdráttur í losun í faraldrinum sagður fordæmalaus
Losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum hrundi um sautján prósent á milli ára vegna kórónuveiruheimsfaraldursins þegar mest lét í fyrri hluta apríl samkvæmt nýrri greiningu vísindamanna. Samdrátturinn er talinn verða skammvinnur og umtalsvert minni fyrir árið í heild.

Læknarit gagnrýnir Trump harðlega fyrir viðbrögð hans við faraldrinum
Ritstjórn breska læknaritsins Lancet sakar Donald Trump Bandaríkjaforseta um „mótsagnarkend og sundurlaus“ viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum og að hafa ýtt sóttvarnayfirvöldum til hliðar. Hún hvetur Bandaríkjamenn til að kjósa sér forseta sem skilur að flokkapólitík ætti ekki að stjórna lýðheilsumálum.