Sýrland

Segir Tyrki og Kúrda hafa mikinn sand til að leika sér með
Flestir hermenn bandaríkjanna eru nú komnir frá svæði þar sem átök eiga sér stað á milli sýrlenskra Kúrda, fyrrverandi bandamanna Bandaríkjanna, og hersveita Tyrkja.

Erdogan skiptir um skoðun og ætlar að hitta Mike Pence
Hann segir að hann muni eingöngu ræða við Donald Trump, forseta, um mögulegt vopnahlé í norðausturhluta Sýrlands.

Erdogan hafnar kröfum Bandaríkjamanna
Donald Trump Bandaríkjaforseti krafðist þess af Tyrklandsforseta að hann hætti samstundis stríðsrekstri sínum í norðausturhluta Sýrlands.

Segir innrás Tyrkja beint gegn hryðjuverkamönnum Kúrda
Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, sendi Fréttablaðinu grein sem birt var á frettabladid.is í gær. Þar rekur hann ástæður Tyrklandsstjórnar fyrir innrásinni í Kúrdahéröð Sýrlands.

Hætta að selja Tyrkjum vopn
Atlantshafsbandalagsríki ætla að hætta að selja Tyrkjum vopn vegna innrásar þeirra á yfirráðasvæði Kúrda í Sýrlandi. Rússar segjast ekki ætla að leyfa bein átök Tyrkja og sýrlenska stjórnarhersins.

Læknar án landamæra flýja undan innrás Tyrklands
Hjálparstarfsmenn Læknar án landamæra ætla að yfirgefa norðausturhluta Sýrlands. Sú ákvörðun hefur verið tekin að stöðva nánast alla starfsemi samtakanna á svæðinu þar sem ekki er hægt að tryggja öryggi hjálparstarfsmanna samtakanna vegna innrásar Tyrkja.

Hatur á Kúrdum, þjóðremba og þrá til að auðgast
Þeir menn sem fara fremst í fylkingu í innrás Tyrkja í norðaustururhluta Sýrlands eru að mestu Sýrlendingar sem eru þjálfaðir og fjármagnaðir af Tyrklandi.

Trump ræddi við Erdogan í síma
Mike Pence varaforseti Bandaríkjanna greindi frá símtali Trumps og Erdogan og sagðist sjálfur ætla að heimsækja Sýrland á allra næstu dögum til að lægja ófriðaröldurnar.

Átökin í norðurhluta Sýrlands að flækjast
Sýrlandsher berst með Kúrdum á einum stað en gegn þeim á öðrum. Tyrkir og málaliðar þeirra segjast hafa náð tveimur borgum. Á meðan sleppa Kúrdar fjölskyldum ISIS og Bandaríkjamenn færa herafla frá Sýrlandi til Sádi-Arabíu.

Trump boðar viðskiptaþvinganir gegn Tyrkjum
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist ætla að beita viðskiptaþvingunum gegn Tyrkjum vegna hernaðaraðgerða þeirra í sýrlenskum landamæraborgum.

Kúrdar snúa sér til Assads og Erdogan ósáttur við Evrópuríki
Sýrlenski stjórnarherinn hefur í dag þokast nær landamærunum við Tyrkland til að berjast við hlið Kúrda. Evrópusambandið takmarkar vopnasölu til Tyrklands.

Telur ekki tilefni til að endurskoða aðild að NATO
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segist ekki telja tilefni til að endurskoða aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu í kjölfar innrásar Tyrkja á héruð Kúrda í norðurhluta Sýrlands.

Evrópuríki takmarka vopnasölu til Tyrklands
Evrópusambandið samþykkti ekki lagalega bindandi vopnasölubann þrátt fyrir að mörg aðildarríkin séu reið Tyrkjum vegna innrásarinnar í Norður-Sýrland.

Ákvörðun Bandaríkjamanna misráðin að mati utanríkisráðherra
Formaður Samfylkingarinnar vill að íslensk stjórnvöld gagnrýni Bandaríkin með afdráttarlausum hætti fyrir þátt þeirra í því að Tyrkir réðust inn í Norður-Sýrland.

Assad-liðar mættir á átakasvæði
Hermenn og vopnaðar sveitir hliðhollar Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, eru komnir á yfirráðasvæði sýrlenskra Kúrda í norðausturhluta Sýrlands.

Þjóðarleiðtogar beina gagnrýni að Erdogan – tjá sig ekki um Trump
Forseti Frakklands og kanslari Þýskalands fordæmdu í gær hernað Tyrkja í norðurhluta Sýrlands. Ákvörðun Bandaríkjaforseta um að senda herlið sitt heim mætir því helst gagnrýni heima fyrir. Átökin fara enn harðnandi.

Kúrdar ná samkomulagi við Assad
Kúrdar hafa samið við ríkisstjórn Sýrlands undir forystu Bashar Hafez al-Assad um að herlið stjórnarinnar muni aðstoða Kúrda við að hrekja hersveitir, sem studdar eru af Tyrkjum, frá norðurhluta Sýrlands.

Stuðningsmenn ISIS flýja fangabúðir í Sýrlandi
Hundruð stuðningsmanna hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki, ISIS, flúðu úr fangabúðum í norðurhluta Sýrlands á sunnudag á meðan á átökum stóð á milli innrásarhersveita, sem studdar eru af tyrkneskum yfirvöldum, og Kúrda.

Merkel bað Erdogan um að hætta við innrásina
Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, ræddi símleiðis við tyrkneska forsetann Recep Tayyip Erdogan í dag.

Segir Íslendinga eiga að hætta við leikinn gegn Tyrkjum
Illugi Jökulsson, rithöfundur og samfélagsrýnir, kallar eftir því að Ísland hætti við leikinn gegn Tyrkjum í nóvember, vegna aðgerða Tyrklands í Sýrlandi. Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir engar aðgerðir af hálfu sambandsins vera í vændum.

Kúrdísk stjórnmálakona tekin af lífi
Hermenn studdir af tyrkneskum yfirvöldum leiða nú árásir inn í sýrlenskar landamæraborgir og bæi með landvinninga fyrir augum. Einn slíkur hópur tók í gær níu almenna borgara af lífi, en meðal þeirra var kúrdísk stjórnmálakona.

Tyrkir ná landamæraborg á sitt vald
Tyrkneski herinn hefur náð sýrlensku landamæraborginni Ras al-Ayn á sitt vald, um er að ræða stærstu og mikilvægustu landvinninga Tyrkja síðan að innrás í Sýrland hófst 9. október síðastliðinn

Þrír létust eftir bílasprengju
Að minnsta kosti ellefu hafa látið lífið í hernaðaraðgerðum Tyrkjahers í norðurhluta Sýrlands. Tugþúsundir hafa þurft að flýja heimili sín á sama tíma og Tyrkir sækja dýpra inn í landið.

Tyrkir miða á fangelsi sem vista ISIS-liða
Landhernaður hafinn í Kúrdahéröðum Sýrlands. Tyrkir hafa þegar náð smábæjum við landamærin og mannfall eykst með hverjum klukkutímanum.

Barr vill flytja Bítla ISIS til Bandaríkjanna
Hermenn Bandaríkjanna munu afhenda alræmda vígamenn Íslamska ríkisins til yfirvalda Íraks. Um er að ræða tæplega 50 ISIS-liða sem fluttir voru úr haldi sýrlenskra Kúrda eftir innrás Tyrkland á yfirráðasvæði þeirra í Sýrlandi.

Frakkar kalla eftir fundi bandalagsins gegn ISIS
Yfirvöld Frakklands vilja að haldinn verði fundur meðal þeirra rúmlega 30 ríkja sem mynduðu bandalag gegn Íslamska ríkinu.

Íslensk stjórnvöld sett sig í samband við þau tyrknesku
Utanríkisráðuneytið segist hafa komið óánægju sinni með hernaðaraðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi á framfæri við tyrknesk yfirvöld með formlegum hætti.

Tyrkir sækja dýpra inn í Sýrland
Ólíkum sögum fer af árangri hersveita Tyrkja í árás þeirra á Kúrda.

Segir Bandaríkjastjórn ekki hafa verið samþykka innrásinni
Mike Pompeo reynir nú að verja þá ákvörðun Donald Trump forseta um að kalla bandaríska hermenn frá svæðinu.

Bítlar ISIS í haldi Bandaríkjanna
Tveir breskir vígamenn Íslamska ríkisins sem kallaðir hafa verið "Bítlarnir“ eru nú í haldi Bandaríkjamanna. Þeir hafa verið fluttir úr haldi sýrlenskra Kúrda vegna innrásar Tyrkja í norðausturhluta Sýrlands.