
Tölvuárásir

Gaf ranglega í skyn að Úkraína bæri ábyrgð á árás á X
Samfélagsmiðillinn X varð fyrir tölvuárás í gær og upplifðu notendur miklar truflanir vegna hennar yfir nokkurra tíma skeið. Tveir hópar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni en Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins, sagði í gær að uppruna hennar mætti rekja til „Úkraínusvæðisins“.

Almennir starfsmenn geti verið leið inn fyrir tölvuþrjóta
Forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að tölvuþrjótar geti komist inn í tölvukerfi með því að blekkja almenna starfsmenn til að gefa upp lykilorð og aðganga. Netglæpaheimurinn velti billjónum dollara og sé orðinn stærri en eiturlyfjaiðnaður heimsins.

Tölvuárásin til rannsóknar og enn unnið að viðgerð
Tölvuárásin sem gerð var á Toyota á Íslandi í nótt er til rannsóknar hjá starfsmönnum Syndis, OK og tölvudeild Toyota. Enn er unnið að því að byggja tölvukerfin upp á ný og fyrirbyggja frekari skaða.

Líkleg tölvuárás á Toyota
Tölvukerfi Toyota á Íslandi liggja niðri en talið er að árás hafi verið gerð á kerfin aðfaranótt mánudags. Unnið er að viðbrögðum í samvinnu við sérfræðinga á þessu sviði.

Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja
Njósnaherferð og tölvuárásir yfirvalda í Kína er versta árás á samskiptakerfi Bandaríkjanna í sögu ríkisins, samkvæmt bandarískum öldungadeildarþingmanni. Hann segir kínverska hakkara hafa komist inn í tölvukerfi á annan tug fjarskiptafyrirtækja í Bandaríkjunum.

Frettatiminn.is og ég urðum fyrir netárás
Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég grein um hakkara á Íslandi sem og erlendis:Þar fer ég yfir fyrirtæki á Íslandi eins og Vodafone, Háskólann í Reykjavík, tæknifyrirtæki hér á landi og önnur fyrirtæki sem hafa orðið fyrir hökkun hér á Íslandi. Einnig tala ég um svikapósta í nafni fyrirtækja sem eru orðnir frekar algengir.

Juventus lenti í hökkurum
Juventus segir að einn af aðgöngum félagsins á X hafi verið hakkaður þegar tilkynnt var um félagaskipti tyrkneska leikmannsins Arda Güler.

Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín
Úkraínumenn eigna sér heiður af stórfelldri tölvuárás á stærsta ríkisfjölmiðil Rússlands á afmælisdegi Vladímírs Pútín forseta. Vefsíður stærstu ríkismiðla Rússlands liggja niðri og talsmaður ríkisstjórnarinnar segir árásina án fordæma.

Æfðu viðbragð við netárásum sem fjölgar um hundruð prósenta
Í dag fór fram fjölmenn netárásaræfing á vegum Syndis og Origo. Þetta er í annað sinn sem slík æfing er haldin á Íslandi en leikarar aðstoðuðu við að láta atburðina líta eins raunverulega út og hægt er.

Mbappé hakkaður: Hraunaði yfir Messi, Ísrael og fleiri
X-aðgangur frönsku fótboltastjörnunnar Kylian Mbappé fór á mikið flug snemma í morgun og rak margur upp stór augu þegar tístum fór að rigna inn um allt og ekkert.

Staðfesta að Íranar brutust inn í tölvur framboðs Trump
Bandaríska leyniþjónustan staðfestir að írönsk stjórnvöld hafi staðið á bak við gagnastuld frá forsetaframboði Donalds Trump. Hún telur Írani einnig hafa reynt að brjótast inn í tölvukerfi framboðs Kamölu Harris.

Erlendir þrjótar reyna að brjótast inn til Harris og Trump
Bandaríska alríkislögreglan FBI gerði framboði Kamölu Harris viðvart um að erlendir aðilar sem sækjast eftir að hafa áhrif á forsetakosningarnar beini spjótum sínum að henni. Framboð Donalds Trump segist fórnarlamb íranskra tölvuþrjóta.

Nútímaleg nálgun í netöryggi
Tölvuöryggisfyrirtækið Öruggt net var sett á fót til að bjóða smærri fyrirtækjum upp á tæknilega sérfræðiþekkingu og nútímalega nálgun í netöryggi.

Þrjótarnir geri ekki greinarmun á bílasölum eða fjölmiðlum
Framkvæmdastjóri netöryggisfélags telur orðum aukið að leggja megi netárás sem útgáfufélagið Árvakur varð fyrir um helgina að jöfnu við aðför að lýðræði í landinu. Ekkert bendi til þess að ráðist hafi verið á Árvakur vegna þess að um fjölmiðlafyrirtæki sé að ræða.

Ætla ekki að greiða lausnargjald og loka fyrir erlenda umferð
Lokað hefur verið fyrir erlenda umferð um vef Morgunblaðsins vegna tölvuárásarinnar sem framin var um helgina. Aðstoðarritstjóri segir ekki koma til greina að greiða árásarmönnunum lausnargjald fyrir gögn sem þeir hafa í gíslingu.

Ætla megi að gögn fórnarlamba rati til rússnesku leyniþjónustunnar
Það er kraftaverki líkast að tekist hafi að gefa út Morgunblaðið í dag eftir alvarlega tölvuárás í gær að mati aðstoðarritstjóra. Hópurinn á bak við árásina er skæður á alþjóðavettvangi og ætla má að gögn sem þrjótarnir komast yfir í árásum sínum rati í hendur rússnesku leyniþjónustunnar að sögn lektors í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík.

„Árás á frjálsan fjölmiðil er atlaga að lýðræðinu“
Stjórn Blaðamannafélagsins vill að yfirvöld rannsaki netárásar á miðla Árvakurs í gær. Gera þurfi ráðstafanir til að verja mikilvæga samfélagslega innviði á borð við fréttamiðla.

„Mikið þrekvirki“ að koma Morgunblaðinu út í morgun
Árvakur er fjórða fórnarlamb rússneska netglæpahópsins Akira á Íslandi á skömmum tíma. Hópurinn virðist komast upp með að stunda glæpastarfsemi sína óáreittur í Rússlandi að sögn netöryggissérfræðings. Árásin sem gerð var á Árvakur í gær er litin grafalvarlegum augum og litlu mátti muna að Morgunblaðið kæmi ekki út í morgun, sem sjaldan eða aldrei hefur gerst í yfir hundrað ára sögu blaðsins að sögn aðstoðarritstjóra.

„Þetta er árás á lýðræðið í landinu”
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir að netárásin sem gerð var á Árvakur í gær jafngildi árás á lýðræðið á Íslandi og frjáls skoðanaskipti í landinu. Þetta skrifar Lilja í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun.

Segja árásina á Moggann eins alvarlega og mögulegt er
Netárás sem Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins varð fyrir í gær, er með alvarlegasta móti. Rússneskir hakkarar eru sagðir standa að baki árásinni og hafa tekið gögn félagsins í gíslingu.

Auglýst eftir ungum og efnilegum hökkurum
Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglíman, var haldin í Háskólanum í Reykjavík í dag. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til að kynna sér netöryggi og auka áhuga þess á því að starfa á þeim vettvangi. Formaður félagsins sem stendur að keppninni segir vöntun á yngra fólki.

Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki
Vinnunetföng sem notuð eru í persónulegum erindagjörðum geta orðið hluti af alvarlegum öryggisbresti fyrir tölvukerfi vinnuveitandans. Mörg dæmi eru um að netföng starfsfólks birtist á mismunandi vefsíðum sem eru ótengd vinnuveitandanum, eins og X (Twitter), Einkamál, Strava, Bland.is og jafnvel á klámsíðum.

Segja Kínverja munu nota gervigreind til að beita sér í kosningum í öðrum ríkjum
Stjórnvöld í Kína munu freista þess að hafa afskipti af kosningum í Bandaríkjunum, Suður-Kóreu og Indlandi á þessu ári, með aðstoð gervigreindar. Þetta segir í nýrri skýrslu netöryggisteymis Microsoft.

Leki varpar ljósi á tíðar tölvuárásir Kínverja
Kínverskir hakkarahópar, sem tengjast yfirvöldum í Peking, beita umfangsmiklum tölvuárásum gegn erlendum ríkisstjórnum, fyrirtækjum og gegn innviðum í öðrum ríkjum. Hakkararnir notast við galla á kerfum fyrirtækja eins og Microsoft, Apple og Google.

Einkunnir, launamál og heilsufarsupplýsingar undir í árásinni á HR
Upplýsingar um einkunnir, agamál, launamál og fleiri viðkvæmar persónuupplýsingar voru á drifum Háskóla Reykjavíkur sem gögnum var stolið af í upphafi þessa mánaðar.

Eir hakkaður í spað af óprúttnum þrjótum
Eiríkur Jónsson blaðamaður hefur haldið úti fréttavef nú í rúmlega 12 ár – þar sem sagðar eru fréttir af ýmsu kostulegu úr daglega lífinu. Frá því fyrir áramót hefur hins vegar einhver óværa komist í kerfið hjá honum sem hleypti öllu í hnút.

Ekki merki um stórfelldan gagnastuld
Það eru ekki merki um stórfelldan gagnastuld þegar tölvuárás var gerð á Háskólann í Reykjavík á föstudaginn. Þó sé ekki hægt að útiloka gagnastuld að hluta.

Rússneskir hakkarar taldir bera ábyrgð á tölvuárás á HR
Netöryggissérfræðingar og starfsmenn Háskólans í Reykjavík hafa unnið frá því í gærmorgun við að koma kerfum háskólans af stað og endurheimta gögn í kjölfar tölvuárásar sem gerð var á skólann. Talið er að rússneski tölvuárásarhópurinn Akira beri ábyrgð á árásinni.

Fyrstu vísbendingar benda til gagnagíslatöku
Fyrstu vísbendingar um tölvuárásina sem gerð var á Háskólanum í Reykjavík um klukkan 1:30 í nótt benda til þess að um sé að ræða gagnagíslatöku

Tölvuárás gerð á HR
Tölvuárás var gerð á Háskólann í Reykjavík í nótt. Persónuvernd og CERT-IS hafa verið upplýst.