Dýr
1 2 3 4 5 6 7 … 71 ›
Sebrahestur gengur laus á Jótlandi Dýrafræðingur óttast að erfitt verði að hafa hendur í hári sebrahests sem slapp úr dýragarði á Jótlandi í Danmörku í gær. Tveir aðrir sebrahestar sem sluppu voru fangaðir fljótt en sá þriðji er ófundinn. Erlent 13.2.2025 11:25
Fuglaflensugreiningum fækkar Tilkynningum um dauða fugla og spendýr hefur fækkað mikið undanfarna daga og öll sýni sem rannsökuð hafa verið síðustu tvær vikur hafa verið neikvæð. Í ljósi þessa álítur Matvælastofnun að dregið hafi verulega úr smithættu. Innlent 7.2.2025 17:48
Hátt í fimm milljónir fiska drápust í sjókvíaeldi í fyrra Um 4,8 milljónir laxa drápust í sjókvíaeldi í fjörðum landsins í fyrra samkvæmt tölum Matvælastofnunar. Hún rannsakar enn dauða meira en milljónar laxa hjá fiskeldisfyrirtæki á Austfjörðum í lok síðasta árs. Innlent 5.2.2025 15:58
Leðurblökur og aðrir laumufarþegar Ein vinsælasta fréttin í íslenskum fjölmiðlum undanfarna daga hefur verið lítil leðurblaka sem fannst á förnum vegi í Reykjavík. Allsendis óljóst er hvernig leðurblakan laumaði sér til landsins, en lögregla var kölluð á staðinn. Leðurblakan náði að sleppa undan löggæslumönnum þann daginn en fannst að lokum af dýraþjónustunni tveim dögum seinna, var fönguð í net og svæfð svefninum langa. Skoðun 3.2.2025 07:00
Refur með fuglainflúensu Fuglainflúensa hefur greinst í refi í Skagafirði. Refurinn var aflífaður í vikunni, en íbúi hafði fundið hann og séð að hann væri augljóslega veikur. Innlent 31.1.2025 15:31
„Þá gerist það bara mjög skyndilega að hundurinn ræðst að mér“ Hundurinn sem réðst á konu á Akureyri fyrir tæpri viku síðan var af Rottweiler-tegund. Konan segir þetta eitt það skelfilegasta sem hún hefur lent í í viðtali við Vikublaðið á Akureyri og í viðtali við Akureyri.net. Innlent 29.1.2025 15:36
Gómuðu leðurblökuna Leðurblakan sem hefur verið á sveimi um Hlíðar og Laugardal undanfarna daga hefur verið fönguð af Dýraþjónustu Reykjavíkur. Hún var varla með lífsmarki og hefur verið svæfð. Innlent 28.1.2025 18:21
Fjórtán metra hvalur í Guðlaugsvík Fjórtán metra hvalur fannst í Guðlaugsvík á Ströndum í upphafi þessarar viku. Í tilkynningu Lögreglunnar á Norðvesturlandi segir að um sé að ræða búrhval og að til samanburðar megi áætla að hvalurinn sé jafnlangur og þrjár Tesla Y bifreiðar eða sjö Cleveland þriggja sæta sófar lagðir samsíða hvalnum. Innlent 28.1.2025 14:08
Óvæntur afrakstur ástarævintýris á Grund gerði allt vitlaust Páfagaukapar á dvalarheimilinu Grund eignaðist óvænt unga fyrir áramót, heimilisfólki til ómældrar gleði. Sérstakur fuglahirðir Grundar segir dýr ómetanlegan félagsskap á dvalarheimilum. Lífið 28.1.2025 08:02
Engin leit í gangi að leðurblökunni Dýraþjónusta Reykjavíkur hefur ekki fengið neinar tilkynningar í dag um leðurblökuna sem lék lausum hala í Reykjavík í gær. Greint var frá því um helgina að leðurblaka hefði sést við Laugardalslaug og nærri Listaháskólanum í Laugarnesi. Innlent 27.1.2025 11:42
Leðurblaka flögrar um Hlíðarnar Lögreglu barst tilkynning um leðurblöku á flugi í hlíðunum í dag en þegar lögreglumenn mættu á vettvang hafði hún flogið á braut. Innlent 26.1.2025 21:51
Þetta heita „glöðustu hundar“ bræðranna Hundar tónlistarmannanna og bræðranna Friðriks Dórs Jónssonar og Jóns Jónssonar, sem bættust við fjölskyldur þeirra um jólin, hafa verið nefndir Nóra og Prins. Hundarnir eru báðir af tegundinni Havanese, sem hefur verið mjög vinsæl meðal fjölskyldufólks hér á landi á síðustu árum. Lífið 23.1.2025 17:19
Gervais minnist hundsins úr After Life Breski grínistinn Ricky Gervais hefur greint frá því að hundurinn sem fór með hlutverk Brandy í þáttunum After Life sé allur. Lífið 23.1.2025 08:52
Andrés Ingi ráðinn framkvæmdastjóri DÍS Andrés Ingi Jónsson, fyrrverandi þingmaður, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) og hefur hann þegar hafið störf. Innlent 20.1.2025 07:41
Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn Hafnarfjarðarhöfn iðaði af lífi fyrr í dag þegar hvalir spókuðu sig þar um og léku listir sínar. Innlent 18.1.2025 17:59
Dýr eiga skilið samúð og umhyggju Líf og lifnaðarhættir mannfólksins í samfélagi sem byggir á samúð og samkennd ætti ekki að leiða af sér ótta né þjáningu annarra. Þetta er í grunninn afar einföld heimssýn. Því miður er fjarri því að hún náist eins og staðan í dag því lifnaðarhættir okkar vestrænna þjóða, velmegun okkar og neysla, leiðir til mikilla þjáningar og ótta sumra dýra. Skoðun 17.1.2025 12:32
Hafa hirt tugi hræja í höfuðborginni og fleiri kettir sendir í sýnatöku Dýraþjónusta Reykjavíkur hefur hirt tugi hræa af dauðum fugli í dag og um helgina sem talið er að hafi drepist úr skæðri fuglaflensu. Minnst tveir kettir hafa greinst sýktir en þeim gæti farið fjölgandi en sýni hafa verið tekin úr fleiri köttum. Gæludýraeigendur eru hvattir til að sýna aðgát og hafa ketti inni eða í taumi þegar út er farið. Þótt veiran hafi ekki greinst í hundum til þessa eru hundaeigendur hvattir til að gæta að því að hundar þeirra leiti ekki í hræ. Innlent 13.1.2025 19:31
Heimilisköttum haldið inni og hundaeigendur á varðbergi Dýraþjónusta Reykjavíkurbiður íbúa höfuðborgarsvæðisins sem verða varir við veika eða dauða fugla að meðhöndndla þá ekki heldur hafa samband við þjónustuna tafarlaust. Þá eru íbúar beðnir um að halda heimilisköttum innandyra. Innlent 13.1.2025 17:28
„Ég man ekki eftir álíka faraldri“ Fjöldi tilkynninga hefur borist vegna veikra og dauðra fugla sökum fuglaflensu um helgina. Um skæðan faraldur virðist vera að ræða að mati deildarstjóra hjá dýraþjónustu Reykjavíkur sem sinnir veikum dýrum, tekur sýni og hirðir hræ sem fundist hafa á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.1.2025 11:59
Kiðlingarnir Frosti og Snær bræða alla í kringum sig Brosið fer ekki af geitabónda á Suðurlandi þessa dagana því tveir kiðlingar voru að koma í heiminn, sem hafa fengið nöfnin Frosti og Snær. Tveir geithafrar eru grunaðir um að vera feður kiðlinganna, annars vegar Lennon og hins vegar Lubbi. Innlent 12.1.2025 21:04
Fann nítján dauðar gæsir í Vatnsmýrinni Gunnar Þór Hallgrímsson, prófessor í dýrafræði, fann nítján dauðar grágæsir í Vatnsmýrinni í dag. Hann telur það hafið yfir allan vafa að fuglaflensa hafi verið banamein þeirra. Möguleikinn á að smit berist í mannfólk er alltaf til staðar á meðan ástandið varir. Innlent 12.1.2025 21:00
Almenningur þurfi ekki að hafa áhyggjur af fuglaflensu Sóttvarnalæknir segir almenning ekki þurfa að hafa áhyggjur af fuglaflensu. Sú veira sem greindist í kettlingi hér á landi hafi aldrei greinst í fólki og þá smitist veiran ekki á milli manna. Engu að síður sé mikilvægt að þeir sem hafi einkenni og hafa verið í umgengni við dýr sem hafa verið veik vegna fuglaflensu fari í sýnatöku. Innlent 9.1.2025 12:11
Fékk krampa og drapst vegna fuglaflensu Kettlingur sem drapst hér á landi er fyrsta heimilisdýrið á heimsvísu sem greinist með skætt afbrigði fuglaflensu. Læðan sem kettlingurinn var undan og annar kettlingur úr sama goti drápust líka. Fólki sem sá um veiku dýrin hefur verið gert að fara í sýnatöku. Innlent 8.1.2025 21:12
Kettlingur í Reykjavík greindur með H5N5 Kettlingur sem barst tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum til krufningar greindist með skætt afbrigði fuglainflúensu (H5N5). Um er að ræða sama afbrigði og greinst hefur í villtum fuglum hér á landi og á einu alifuglabúi. Innlent 8.1.2025 10:00
Asninn að baki Asna allur Asninn Perry sem var fyrirmyndin að Asna í myndunum um Shrek er dauður en hann varð 30 ára. Lífið 5.1.2025 19:09
Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Matvælastofnun vara við Chrisco tyggerulle med kylling & kyllingelever frá Kína sem Lífland flytur inn vegna eituráhrifa hjá hundum eftir neyslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Matvælastofnun. Viðskipti innlent 2.1.2025 11:45
„Alltof mikið að gera“ hjá Dýrfinnu yfir áramótin Tíu hundaeigendur höfðu samband við dýraverndunarsamtökin Dýrfinnu yfir áramótin til að óska eftir aðstoð við að finna hunda sem höfðu horfið sjónum. Sex þeirra hafa fundist en fjögurra hunda er enn leitað. Innlent 1.1.2025 19:01
Íslenski fjárhundurinn viðurkenndur af Kennel samtökunum Bresku hundaræktarsamtökin Kennel Club hefur viðurkennt íslenska fjárhundinn sem eina af 224 viðurkenndum hundategundum jarðar. Erlent 31.12.2024 12:31
Ekki séð stærri hval reka í Víkurfjöru Hvalreki varð í Víkurfjöru í gær. Íbúi segist ekki hafa séð svo stóran hval reka á land í fjörunni. Innlent 28.12.2024 19:14
Komu hesti til bjargar úr gjótu Björgunarsveitir á Suðurlandi stóðu í ströngu síðdegis við að bjarga hesti sem hafði fest sig í gjótu. Innlent 26.12.2024 22:01