Þjóðkirkjan

Pallborðið: Biskupskjör og staða þjóðkirkjunnar
Ár er liðið frá því að Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands greindi frá því að hún hygðist láta af störfum. Síðan þá hefur nokkuð vatn runnið til sjávar; Agnes sem var ekki lengur embættismaður samkvæmt nýjum lögum var „endurráðin“ að loknum skipunartíma sínum en úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar sagði þá ráðstöfun „markleysu“.

Séra Ninna Sif og séra Guðmundur Karl bætast í hópinn
Þau séra Ninna Sif Svavarsdóttir og séra Guðmundur Karl Brynjarsson munu gefa kost á sér í embætti biskups Íslands, að því gefnu að þau hljóti nægilega margar tilnefningar.

Þórarinn Snorrason í Vogsósum látinn
Þórarinn Snorrason, bóndi í Vogsósum 2 í Selvogi, er látinn, 92 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi á jóladag. Hann hafði legið á sjúkrahúsi um mánaðarskeið eftir að hafa lærleggsbrotnað er hann féll við útistörf við fjárhúsin í Vogsósum en þar stundaði hann sauðfjárbúskap.

Verið að afvatna íslenskt þjóðerni og menningu
Ármann Reynisson rithöfundur var fenginn til að halda jólapredikun í kirkju Óháða safnaðarins við Stakkahlíð og hann lét ekki segja sér það tvisvar. Ármann flutti hörku ádrepu og klöppuðu viðstaddir á stöku stað, sem ekki hefur tíðkast í kirkjum fram til þessa.

Allt muni snúast um persónurnar þrjár
Fyrrverandi vígslubiskup á Hólum reiknar með að fleiri prestar verði tilnefndir í biskupskjöri en þeir tveir sem gefið hafa kost á sér til embættisins hingað til. Hún telur presta sammála um að rödd kirkjunnar þurfi að heyrast hærra og það verði þeim efst í huga þegar gengið verður til kosninga.

Helga og Guðrún sækjast eftir embætti biskups
Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur í Háteigskirkju og prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi, og Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, hafa báðar gefið kost á sér í embætti biskups. Kosið verður í mars.

Trúarlegt óþol
Ég upplifi stundum að samfélagið okkar sé plagað af trúarlegu óþoli, já eða bara kristnu óþoli. Samfélagið sem flaggar því rækilega að fjölbreytileikanum sé fagnað virðist á köflum eiga afskaplega erfitt með að kyngja því að kristin trúfélög og kristin menningararfleið sé órjúfanlegur hluti af þessu fjölbreytta samfélagi samtímans.

Samverustund fyrir Grindvíkinga í Keflavíkurkirkju
Séra Elínborg Gísladóttir mun leið samverustund fyrir Grindvíkinga í Keflavíkurkirkju klukkan fimm í dag. Agnes M Sigurðardóttir, biskup Íslands, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Fannar Jónasson, bæjarstjórinn í Grindavík munu flytja ávörp.

Kirkjur og kór
Ég fylltist ánægju við að flytja í hverfið okkar. Bæði vegna fallegs og fjölskylduvæns umhverfis en ekki síst vegna þess að ég vissi að tónlist, kórastarf og skólahljómsveitastarf er í hávegum haft í bæjarfélaginu.

Vilja Agnesi áfram sem biskup yfir Íslandi
Framsögumenn ályktunar sem gengur út á að Agnes M. Sigurðardóttir verði eftir sem áður biskup yfir Íslandi eru Bryndís Malla Elídóttir og Kristrún Heimisdóttir.

Ef Agnes vígði prest sem gaf fólk saman, er hjónabandið löglegt?
Einar Gautur Steingrímsson hæstaréttarlögmaður segir að ef gengið sé út frá því að niðurstaða úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar um embættishæfi Agnesar M. Sigurðardóttur sé réttur sé enginn biskup yfir Íslandi.

Biskup taki ekki fjármálaákvarðanir
Biskup mun ekki taka fjármálaákvarðanir verði tillögur starfshóps á vegum þjóðkirkjunnar samþykktar. Meðlimur hópsins segir að það sé ekki sniðugt að biskup beri ábyrgð á ýmsum fjármálagjörningum innan þjóðkirkjunnar.

Þjóðkirkjan hafi greitt um 23 milljónir í lögfræðikostnað á árinu
Greiddar hafa verið 23 milljónir í lögfræðikostnað á árinu hjá Þjóðkirkjunni. Tillögur hafa verið lagðar fram af starfshópi að biskup fari ekki lengur með fjármál innan kirkjunnar og að sérstök stjórn taki við rekstri og fjármálum. Lagt er til að eini undirmaður biskups verði biskupsritari.

Að hengja prest fyrir biskup, að hengja manneskju fyrir stofnun
„Öllum skyldi tryggð sömu réttindi“. „Ég hef beitt mér sérstaklega fyrir því að taka á ofbeldismálum innan kirkjunnar til þess að kirkjan sé öruggur staður“.

„Breytingum fylgir alltaf pínu stormur og átök“
Biskup Íslands segist una úrskurði nefndar Þjóðkirkjunnar um að hún hafi ekki umboð til að taka stjórnsýslulegar ákvarðanir þrátt fyrir að hafa kært hann til dómstóla. Hún segir alla innan þjóðkirkjunnar verða að stefna í sömu átt til að sigla úr þeim ólgusjó sem hún er stödd í.

Biskup mun ekki stíga til hliðar
Biskup Íslands mun ekki stíga til hliðar þrátt fyrir að úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar hafi metið ákvarðanir hennar eftir síðasta sumar sem „marklausar“. Niðurstaðan verður kærð til héraðsdóms á næstunni.

Agnes ætlar með málið fyrir dóm
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ætlar að kæra niðurstöðu úrskurðarnefndar Þjóðkirkjunnar til dómstóla. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum.

Ákvarðanir Agnesar í máli séra Gunnars „markleysa“
Ákvörðun Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups Íslands, um að víkja séra Gunnari Sigurjónssyni úr starfi embættis sóknarprests í Digranesprestakall, vegna kynferðislegrar áreitni, var ólögmæt. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar Þjóðkirkjunnar, sem hefur komist að því að Agnes hafi ekki haft umboð til slíkra ákvarðana frá því um mitt síðasta ár.

Egill segir fjölskylduna fegna og segist ekki hafa sama áhuga
Egill Helgason segist skilja sáttur við Silfrið, þar sem hann verður ekki þáttastjórnandi í haust. Hann kveðst hafa minni áhuga á stjórnmálum nú en áður og segir fjölskylduna upplifa sig lausa úr prísund. Hann segist nú vinna að undirbúningi nýs sjónvarpsþáttar um pólitík en gefur ekkert upp um hvers eðlis sá þáttur er.

Kosið um nýjan biskup í mars
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur ákveðið að boða til kosninga um nýjan biskup Íslands 7. til 12. mars næstkomandi. Agnes M. Sigurðardóttir lætur af störfum í kjölfarið.

Kristaltært? Um umboð eða umboðsleysi
Í liðinni viku hélt höfundur því fram á þessum vettvangi að biskup væri ekki umboðlaus í embætti sínu. Sú niðurstaða var leidd af bráðabirgðaákvæði í lögum um þjóðkirkjuna frá 2021.

Séra Davíð Þór ráðinn tímabundið til Háteigskirkju
Séra Davíð Þór Jónsson hefur verið ráðinn tímabundið til Háteigskirkju. Hann hefur verið í veikindaleyfi frá störfum sínum í Laugarneskirkju síðastliðna níu mánuði en sér fyrir sér að snúa aftur tvíefldur eftir stopp í Háteigskirkju.

Biðst afsökunar á því að hafa ráðið Agnesi
Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, hefur sent formanni kjörstjórnar kirkjuþings, bréf þar sem hún biðst afsökunar á því að hafa gert ráðningarsamning við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands.

Er biskup Íslands biskup eða ekki?
Á síðustu dögum hafa margir stigið fram og túlkað regluverk kirkjunnar. Deilt er um hvort biskup Íslands sé í raun biskup og handhafi þess valds sem hlutverkinu fylgir. Það er óheppilegt að það sé umdeilt hvort sá sem embætti biskups gegnir hafi til þess umboð.

Yfirgnæfandi meirihluti presta styðji Agnesi
Prestafélag Íslands gaf í dag frá sér ályktun þar sem fram kemur að félagsmenn styðji séra Agnesi Sigurðardóttur til að gegna embætti biskups. Varaformaður félagsins segir ályktunina ekki koma umboði Agnesar til þess að sinna embættinu við.

Biskupabrölt
Það var árið 2000 og við fögnuðum þúsund ára kristnitöku á Íslandi. Haldin var mikil hátíð. Ég fékk að flytja bæn í útimessu á Laugardalsvelli sem fulltrúi Fríkirkjunnar í Reykjavík og mikið var kalt en ég var stolt af því að fá að taka þátt í þessum viðburði. Bænir mínar voru um heilbrigði þjóðar og heilbrigðis starfsmenn.

Biskupabrölt
Það var árið 2000 og við fögnuðum þúsund ára kristnitöku á Íslandi. Haldin var mikil hátíð.

Viðurkennir mistök en furðar sig á feluleik biskups
Forseti kirkjuþings segist hafa gert mistök þegar hann gerði samkomulag við biskup um að starfstími hans yrði framlengdur um eitt ár. Biskup hefði átt að láta vita af því að á sama tíma væri verið að gera við hann ráðningarsamning til meira en tveggja ára hjá Biskupsstofu.

Enginn vafi á því að ráðning biskups eigi sér stoð í lögum
Lögmaður biskups Íslands segir alrangt að Agnes M. Sigurðardóttir hafi ekki umboð til að sinna embættisverkum sínum. Fyrrverandi hæstaréttardómari fullyrti í gær að ákvörðun um nýjan ráðningarsamning ætti sér ekki stoð í lögum

Telur enga lagaheimild fyrir framlengingu samnings við biskup
Fyrrverandi hæstaréttardómari segir ákvörðun um nýjan ráðningarsamning við biskup Íslands ekki eiga sér stoð í lögum. Sá biskup sem nú sitji hafi ekki umboð til að sinna embættisverkum.