Evrópusambandið

Áróðurinn gegn Evrópusambandinu á Íslandi – Framhald
Það er ónefndur maður sem skrifar stöðugt rugl greinar um Evrópusambandið hérna á Vísir. Þessi maður er ekkert annað en lygari og skrifar greinar sem eru í andstöðu við raunveruleikann. Þar er öllu mögulegu haldið fram og ekkert að því er satt svo að ég sjái. Núna er umræðuefnið fríverslunarsamningar og hvernig þeir eru betri en Evrópusambandið.

Hvar er stóraukna fylgið?
Mögulega hefur það farið framhjá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni Viðreisnar, en þjóðin ræður því hverjir taka sæti á Alþingi. Það er kjósendur. Þeir tveir stjórnmálaflokkar sem hafa í gegnum tíðina talað fyrir inngöngu í Evrópusambandið og þjóðaratkvæði í þeim efnum, flokkur Þorgerðar og Samfylkingin, fengu í síðustu þingkosningum haustið 2021 samanlagt um 18% fylgi. Minna fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn einn.

Má þjóðin ráða?
Hvert sem ég fer er fólk að ræða við mig um stöðu heimilisbókhaldsins. Efnahagsástandið er farið að rífa verulega í hjá fólkinu okkar. Fólki sem hefur gert allt samkvæmt bókinni en finnur samt fyrir því að róðurinn þyngist og erfiðara er að láta reikningsdæmið ganga almennilega upp.

Með of mikil völd
Meirihluti Norðmanna telur Evrópusambandið hafa of mikil völd yfir norskum málum í gegnum aðild Noregs að EES-samningnum. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem fyrirtækið Sentio gerði fyrir norsku samtökin Nei til EU.

Hægt að nota hvaða nafn sem er
Vegna aðildar Íslands að Schengen-svæðinu er í raun hægt að koma hingað til lands undir hvaða nafni sem er þegar ferðast er til landsins frá öðrum aðildarríkjum svæðisins enda þarf í þeim tilfellum allajafna ekki að framvísa vegabréfum.

Óáreiðanleg Evrópuríki
Fullyrðingar þess efnis að ekki sé hægt að treysta á Bandaríkin í varnarmálum standast ekki nánari skoðun. Hið sama á við um fullyrðingar um að hægt sé að treysta á ríki Evrópusambandsins í þeim efnum.

Vilja fríverzlunarsamning í stað EES
Meirihluti þeirra Norðmanna sem afstöðu taka með eða á móti vilja skipta aðild Noregs að EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar þar í landi.

Sigurinn fordæmdur af evrópskum og bandarískum stjórnvöldum
Stjórnvöld í Evrópu og Bandaríkjunum hafa fordæmt úrslit forsetakosninganna í Rússlandi sem fram fóru um helgina. Á meðan hafa stjórnvöld í Kína, Indlandi, Norður Kóreu og Íran óskað Pútín til hamingju með sigurinn.

„Við áttum aldrei möguleika“
Fyrir réttum tíu árum síðan sömdu Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar um makrílveiðar í kjölfar þess að sambandið hafði knúið Færeyinga að samningaborðinu með refsiaðgerðum vegna síldveiða þeirra í sinni eigin lögsögu.

Hindrar fríverzlun við Bandaríkin
Flest bendir til þess að fríverzlunarsamningur við Bandaríkin sé ekki í kortunum á meðan Ísland er aðili að EES-samningnum. Vandséð er þannig að stjórnvöld í Washington væru reiðubúin til þess að fallast á það að innfluttar bandarískar vörur til Íslands þyrftu að taka mið af regluverki Evrópusambandsins sem oft er mjög ólíkt því sem gerist vestra og gjarnan beinlínis hannað til þess að vernda framleiðslu innan þess.

Ef sænska krónan er of lítil hvað er þá sú íslenska?
Nú hefur Stefan Ingves, fyrrverandi seðlabankastjóri Svíþjóðar til sautján ára sagt það opinberlega að Svíar eigi að taka upp evru og leggja sænsku krónunni. Ástæðan? Jú – hún er of smár gjaldmiðill til að þjóna sænskum hagsmunum. Hann bendir réttilega á að land með lítið og opið hagkerfi megi sín lítils þegar það býr í nábýli við evrusvæðið.

Hungrinu beitt sem vopni segir utanríkismálastjóri ESB
Josep Borrell, framkvæmdastjóri utanríkismála hjá Evrópusambandinu, segir hungursneyð beitt eins og vopni á Gasa. Hann segir skort á neyðargögnum á svæðinu „manngerðan harmleik“.

Kolbrún tekin til starfa hjá Eurojust
Kolbrún Benediktsdóttir hóf í dag störf sem fyrsti sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust í dag. Hún segir um að ræða mikilvægt skref fyrir Ísland.

Segir íbúa Gasa ekki geta beðið en ítrekar rétt Ísrael til að verja sig
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur kallað eftir tafarlausu mannúðarhléi á átökum á Gasa en jafnframt ítrekað að Ísraelsmenn eigi rétt á því að verja sig gegn Hamas.

Áróðurinn gegn Evrópusambandinu á Íslandi (2024 útgáfan)
Andstæðingar Evrópusambandsins á Íslandi fullyrða að Ísland væri betur statt utan EES samningsins, sem er EFTA samningur. Fullyrðingin um að Íslandi væri betur statt utan EES samningsins stenst ekki nein rök eða nánari skoðun.

Fimm prósent af þingmanni
Hægt er að telja nánast á fingrum annarrar handar þá málaflokka þar sem enn er krafizt einróma samþykkis ríkja Evrópusambandsins við ákvarðanatöku í ráðherraráði þess. Þar á meðal eru hvorki sjávarútvegsmál né orkumál sem skipta okkur Íslendinga afskaplega miklu máli.

Apple sektað um 270 milljarða af ESB
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sektað Apple um tvo milljarða dala vegna einokunar. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru sagðir hafa beitt mætti þess til að kæfa samkeppni á sviði tónlistarstreymis.

Fæðingarorlofssjóður þarf ekki að miða við erlendar tekjur
Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið af öllum kröfum konu sem krafðist þess að ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, um áætlun um greiðslur til hennar í fæðingarorlofi úr sjóðnum, yrði dæmd ógild. Hún fékk lágmarksgreiðslur úr sjóðnum þar sem hún hafði þegið laun í Danmörku en ekki Íslandi í aðdraganda fæðingar.

Ítrekað bent á að gullhúðun ESB reglna draga úr samkeppnishæfni
Samtök iðnaðarins (SI) fagna skipan starfshóps utanríkisráðherra um aðgerðir gegn gullhúðun og telja tímabært að horft verði til samkeppnishæfni Íslands við hvers kyns lagasetningu, hvort sem um ræðir innleiðingu á regluverki Evrópusambandsins í gegnum EES, eða séríslensk lög. Samtökin nefna átta dæmi um gullhúðun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum og vekja athygli á að upptalningin sé ekki tæmandi.

Sprautuðu mykju yfir lögreglu í mótmælaskyni
Bændur í Evrópu eru reiðir yfir lágu matvöruverði, ódýrri innfluttri vöru og of mikilli skriffinsku sem tengist ýmsum reglugerðum Evrópusambandins. Bændur hafa nú mótmælt vikum saman víða um Evrópu.

Greinir í fyrsta sinn opinberlega frá mannfalli
Um það bil 31 þúsund hermenn hafa fallið í átökum eftir að innrás Rússa hófst í Úkraínu. Frá því greindi forseti landsins, Volodmír Selenskíj, á viðburði í Kænugarði í dag þar sem þess var minnst að tvö ár eru frá upphafi stríðsins.

Hvetja til aukinnar hernaðaruppbyggingar Evrópu
Forsætisráðherra Póllands og kanslari Þýskalands hvetja til tafarlausrar og aukinnar hernaðaruppbyggingar og samvinnu Evrópuríkja til að bregðast við útþenslustefnu Rússa. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkt loks aukna aðstoð við Úkraínu í gærkvöldi.

Bjarni segir bókun 35 ekki ráða löggjöf Alþingis
Utanríkisráðherra segir bókun 35 við EES-samninginn ekki fela í sér framsal á fullveldi Íslands. Formaður Miðflokksins geldur varhug við frumvarpi um bókunina og segist munu berjast gegn því með kjafti og klóm.

Óvissan í Evrópu
Eftir fall Sovétríkjanna árið 1991 lauk kaldastríðinu og eitt stórveldi Bandaríkin varð ráðandi í heiminum. En heimurinn hefur tekið breytingum og er nú orðinn „multipolar“ með þrjú stórveldi. Í hópi þeirra eru Bandaríkin ríkust og valdamest, Kína fjölmennast og vaxandi efnahagsveldi, og loks Rússland veikara en hin tvö.

Tusk segir Repúblikönum að skammast sín
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir Repúblikönum í öldungadeild Bandaríkjaþings að skammast sín. Er það í kjölfar að þingmennirnir felldu frumvarp sem þeir höfðu sjálfir beðið um og komið að því að semja. Það frumvarp sneri meðal annars að hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum.

Mótmæla líkt og franskir starfsbræður sínir
Spænskir bændur hafa nú bæst í hóp þeirra fjölmörgu úr starfsstéttinni sem hafa mótmælt undanfarið víða um Evrópu.

Viðreisn hætt við ESB?
Miðað við grein Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, á Vísir.is á dögunum mætti helzt halda að flokkurinn hafi gefið meginstefnumál sitt um inngöngu í Evrópusambandið upp á bátinn. Þar gagnrýndi formaðurinn umfang hins opinbera hér á landi og sagði að í ríkisstjórn yrði eitt af forgangsmálunum Viðreisnar að ganga hreint til verka í þeim efnum.

Viktor Orban gaf eftir: Ná saman um stuðning til Úkraínu
Leiðtogar Evrópusambandsins hafa náð saman um stuðning til handa Úkraínu. Áður hafði Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, sett sig upp á móti stuðningnum.

Amazon hættir við kaup á framleiðanda Roomba
Amazon hefur hætt við kaup á snjallryksuguframleiðandanum iRobot. Ákvörðunin liggur fyrir örfáum dögum eftir að fréttir bárust af því að Evrópusambandið hygðist ekki veita fyrirtækinu leyfi fyrir kaupunum.

Hvað gerir Bjarni við bókun 35?
Viðbúið er að ófáir sjálfstæðismenn velti því fyrir sér eftir að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók við utanríkisráðuneytinu hvað verði á hans vakt um frumvarp forvera hans sem kennt hefur verið við bókun 35 við EES-samninginn og ætlað er að festa það í lög að regluverk frá Evrópusambandinu, sem innleitt er hér á landi í gegnum samninginn, gangi framar almennri lagasetningu sem smíðuð er innanlands.