
Sameinuðu þjóðirnar

Höfnuðu því að svissnesk lög yrðu æðri alþjóðalögum
Meirihluti svissneskra kjósenda hafnaði í dag að svissnesk landslög skyldu verða æðri alþjóðalögum og alþjóðasamningum.

Sigrún Sif mun leiða Ljósagöngu UN Women
Sigrún Sif Jóelsdóttir mun leiða Ljósagöngu UN Women sem fram fer klukkan 17 í dag, á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi.

Versti ebólufaraldur í sögu Austur-Kongó
Á fjórða hundrað hafa sýkst af ebólu í Afríkuríkinu Austur-Kongó. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur áhyggjur af gangi mála. Nokkur fjöldi ungra barna greinist með ebólu og árásir skæruliða hafa torveldað starf stofnunarinnar.

Spennandi samstarfsmöguleikar fyrir atvinnulíf í þróunarsamvinnu
Utanríkisráðuneytið auglýsir nú í fyrsta sinn eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr nýjum Samstarfssjóði við atvinnulíf um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum.

Yfirmaður Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna segir af sér vegna óhóflegs ferðakostnaðar
Solheim starfaði áður sem formaður Efnahags-og framfararstofnunar Evrópu OECD og tók við starfi yfirmanns UNEP í maí 2016.

Meira til Jemens
Matarhjálp Sameinuðu þjóðanna (WFP) ætlar að tvöfalda matargjafir til Jemens og þannig sjá fjórtán milljónum fyrir mat. Þetta sagði í tilkynningu sem stofnunin sendi frá sér í gær.

Tugir þúsunda í fjöldagröfum
Rannsakendur Sameinuðu þjóðanna hafa fundið 202 fjöldagrafir fórnarlamba ISIS í Sýrlandi.

Ósonlagið byrjað að gróa en tekur áratugi að ná bata
Þó að merki séu um að ósongötin séu byrjuð að lokast verður ekki hægt að hrósa sigri fyrr en eftir miðja öldina.

Bandaríkin hætta að veita samkynja mökum starfsmanna SÞ vegabréfsáritanir
Breytingarnar tóku gildi í gær og hefur fólkinu sem um ræðir verið gefinn frestur til 1. desember að ganga í hjónaband, verða sér út um nýja áritun eða yfirgefa Bandaríkin.

Guðlaugur lagði áherslu á verndun hafsins á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hélt í gær ræðu þar sem hann ávarpaði 73. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Þar fór hann um víðan völl og snerti á hinum ýmsu málefnum sem brenna á alþjóðasamfélaginu um þessar mundir.

Segir Kínverja ætla að vasast í kosningunum
Kínverk stjórnvöld eru að reyna að hafa áhrif á komandi þingkosningar í Bandaríkjunum að sögn Donalds Trump, Bandaríkjaforseta.

Hlegið að grobbi Trump hjá Sameinuðu þjóðunum
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var tiltölulega nýbyrjaður á ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag þegar aðrir þjóðarleiðtogar hlóu að honum.

Stöndum vörð um mannréttindi
Það er af nógu að taka hjá Michelle Bachelet, sem í dag flytur mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna sína fyrstu yfirlitsskýrslu frá því að hún var skipuð mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna í sumar.

Geta ekki látið milljónir flóttamanna hverfa
Forstjóri Palestínuflóttamannahjálparinnar gagnrýnir harðlega áform Bandaríkjastjórnar um að hætta fjárveitingum til hennar.

Ísland ætlar að halda áfram aðhaldi í mannréttindaráðinu
Fastanefnd Íslands tekur við sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í næstu viku.

Forseti Palestínu segir ákvörðunina „svivirðilega árás“
Ráðamenn í Palestínu segja ákvörðun Bandaríkjanna um að hætta fjárveitingum til stofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir palestínskt flóttafólk vera "svívirðilega árás“.

Telja alla stríðsaðila í Jemen seka um stríðsglæpi
Stjórnarherinn, bandalagsherinn sem styður hann og uppreisnarmenn Húta eru sagðir hirða lítið um að takmarka fall óbreyttra borgara.

Kofi Annan fallinn frá
Kofi Annan, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er látinn.

Fyrrverandi forseti Síle tilnefndur mannréttindastjóri SÞ
Michelle Bachelet hefur áður stýrt stofnun Sameinuðu þjóðanna um jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna.

Tuttugu tonn af smjörlíki eyðilögðust á leið til landsins
Samskip hf. var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmt til að greiða VÍS ríflega fjórar milljónir króna vegna smjörlíkis sem eyðilagðist í flutningum hingað til lands.

Ísland setur jafnrétti og málefni hinsegin fólks á oddinn
Réttindi kvenna og hinsegin fólks verða framarlega á dagskrá Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna en Ísland var kjörið í ráðið í dag. Utanríkisráðherra segir að þótt oft þurfi að gera málamiðlanir innan alþjóðastofnana verði enginn afsláttur gefinn af stefnu Íslendinga í mannréttindamálum.

Hlátrasköll hjá Sameinuðu þjóðunum eftir rússneska kosningu Íslands í mannréttindaráð
Ísland hefur tekið sæti í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna eftir atkvæðagreiðslu á allsherjarþinginu.

Ísland kjörið í mannréttindaráðið í dag
Utanríkisráðherra segir stöðuna þá æðstu sem Ísland hefur fengið á alþjóðavettvangi. Staðan muni kalla á málamiðlanir en gildin breytist ekki. Deildarstjóri mannréttindamála segir aðstæðurnar sem leiddu að kjörinu sérstakar.

Guterres til Eþíópíu í kjölfar friðarsamkomulags
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna er nú á leiðinni til Eþíópíu, daginn eftir undirritun sögulegs friðarsamkomulags stjórnvalda í Eþíópíu og Erítreu.

Ísland gefur kost á sér í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna
Ísland gefur kost á sér í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna. Samstaða hefur náðst í ríkjahópi Vesturlanda hjá Sameinuðu þjóðunum um að Ísland gefi kost á sér til að taka sæti Bandaríkjanna í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.

Bandaríkin draga sig úr Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna
Mike Pompeo og Nikki Haley hafa tilkynnt að Bandaríkin hætti þátttöku í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.

Sakar háttsettan embættismann SÞ um kynferðislegt ofbeldi
Konan segir að henni hafi verið boðið stöðuhækkun ef hún samþykkti afsökunarbeiðni af hálfu mannsins.

Harðorður í garð Venesúela og Egyptalands
Grunnstoðir lýðræðisins rotna í Venesúela og yfirvöld í Egyptalandi grafa undan lýðræðinu.

Utanríkisráðherra Filippseyja vonsvikinn yfir málflutningi Íslendinga
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fund með Peter S. Cayetano, utanríkisráðherra Filippseyja.

Aðstoðarforstjóri Unicef stígur til hliðar vegna ásakana um áreitni
Hann er sakaður um að hafa sent ungum samstarfskonum kynferðisleg smáskilaboð og haft uppi athugasemdir um klæðaburð þeirra á fyrri vinnustað.