Kosningar 2018

Göngugötur allt árið
Árið 1931 var Laugavegurinn gerður að einstefnu í vesturátt og samtímis varð Hverfisgata að einstefnu í austurátt.

Öll með í Reykjavík
Gott borgarsamfélag verður ekki til að sjálfu sér.

Launin fóru niður en lífsgæðin upp
Hilmar Sigvaldason, vitavörður, sagði upp vinnu sinni í Norðuráli á Grundartanga í lok ársins 2014 og vinnur nú allan ársins hring við það að taka á móti ferðamönnum, og einstaka blaðamanni, við Akranesvita.

Innflytjendur fá röng boð um kosningarétt
Innflytjendur fá símtöl frá skrifstofu Sjálfstæðisflokks með upplýsingum um að ríkisborgararétt þurfi til að kjósa í borgarstjórnarkosningum. Innflytjandi á lista Samfylkingar segir meirihluta innflytjenda ómeðvitaðan um kosningarétt

Lögbundin leiðindi
Í aðdraganda borgarstjórnarkosninga er gjarnan rætt hvort Reykjavík eigi eingöngu að sinna lögbundnum verkefnum og hætta öllu öðru sem gjarnan er slegið upp sem „gæluverkefnum“.

Samfylking nær að manna lista
Samfylkingin í Grindavík hefur kynnt framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

VG getur ekki mannað framboð á Skaganum
Þrír flokkar hafa stillt upp framboði til sveitarstjórnar á Akranesi. Athygli vekur að Vinstri græn, flokkur forsætisráðherra, gat ekki mannað lista í þessu stóra sveitarfélagi og býður ekki fram.

Vill hraðamyndavélar við alla grunn- og leikskóla
Auknar kröfur og snjallsímabann í grunnskólum, flugvöllurinn í Vatnsmýri og hraðamyndavélar í nágrenni skóla, er meðal þess sem framboðið "Borgin okkar - Reykjavík" ætlar að leggja áherslu á í komandi sveitastjórnarkosningum. Oddviti flokksins telur raunhæft að ná tveimur til þremur mönnum inn.

Rödd unga fólksins býður fram í Grindavík
Rödd unga fólksins mun bjóða sig fram til sveitarstjórnarkosninga í vor í Grindavíkurbæ. Um er að ræða nýtt framboð í bænum.

Núverandi meirihluti í borginni stendur tæpt samkvæmt könnunum
Núverandi meirihluti Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Pírata myndi rétt svo halda velli ef kosið væri til borgarstjórnar í dag samkvæmt nýrri könnun Morgunblaðsins sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.

„Forgangsröðunin hefur ekki verið það sem brennur mest á fólki“
Eyþór Arnalds segir að ársreikningur Reykjavíkuborgar líti vel út í fyrstu en þegar betur sé að gáð má sjá ýmislegt sem betur mætti fara.

Eyþór úr stjórn Árvakurs
Er áfram stærsti hluthafinn en útilokar ekki að selja hlutinn fái hann gott tilboð.

Barátta dólganna
Á dögunum undirrituðu fulltrúar allra stjórnmálaflokka á þingi yfirlýsingu þar sem andúð er lýst á þeim óhróðri og undirróðursstarfsemi sem er hvimleiður fylgifiskur kosningabaráttu.

Lundalíf
Nýlega bárust þær dapurlegu fréttir að alþjóðasamtök fuglaverndarfélaga hefðu sett lundann á válista fuglategunda sem væru í bráðri útrýmingahættu.

Perlan Öskjuhlíð
Við Reykvíkingar eigum frábært útivistarsvæði í miðbænum, Öskjuhlíð. En því miður virðist borginni ekki þykja vænt um þessa paradís.

Vilja lækka fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði í Reykjavík og hafa leikskóla opna yfir sumartímann
Viðreisn kynnti í dag stefnu sína fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Messað yfir kórnum
Sjálfstæðisflokkurinn kynnti kosningaloforð sín hinn 14. apríl. Fólkið er nýtt, en hugmyndirnar kunnuglegar; útþensla byggðar og fleiri bílamannvirki.

Frelsisflokkurinn gegn alþjóðavæðingu, fjölmenningarstefnu og mosku
Frelsisflokkurinn kynnti stefnumál sín fyrir næstu borgarstjórnarkosningar við Ráðhús Reykjavíkur í dag. Gunnlaugur Ingvarsson formaður flokksins leggur áherslu á innflytjendamál, niðurskurð í yfirstjórn borgarinnar og rafbílavæðingu. Flokkurinn hafni borgarlínu og mosku í Reykjavík.

Kvíðinn og bjargirnar í Garðabæ
Ég rakst á grein um daginn þar sem spjótum var beint að kvíða barna og ungmenna.

„Borgarlínu og Miklubraut í stokk strax“
Dagur B. Eggertsson kynnti áherslumál Samfylkingarinnar í Reykjavík í dag.

Bein útsending: Samfylkingin kynnir kosningaáherslur sínar
Kosið verður í borginni þann 26. maí.

Grunnur að geðheilbrigði
Geðheilbrigði er grunnstoð í heilbrigðu samfélagi. Það er órjúfanlegur hluti af almennri vellíðan og forsenda virkrar samfélagsþátttöku.

Kosningaloforð Eyþórs gæti komið Eyjamönnum í bobba
Ráðuneytið krefur Eyjamenn útskýringa á niðurfellingu fasteignagjalda eldri borgara.

Við styðjum ekki aldraða með skattalækkunum á hátekjufólk
Mörtu Guðjónsdóttur svarað.

Hafnfirðingur á sveitastjórnarkjörtímabilinu, sem er að líða
Ég er Hafnfirðingur, hef búið í bænum í 58 ár, síðan 1960.

Segir loforðinu beint að eignamesta þjóðfélagshópnum
Ef maður skoðar tölurnar þá er verið að fara að fella niður fasteignaskatta á þann aldurshóp sem á mestar eignir, á mest í fasteignum og þann aldurshóp sem hefur fengið mesta aukningu ráðstöfunartekna frá aldamótum, segir hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson.

Eyþór telur tvískinnung einkenna gagnrýni Lífar
Leiðtogi Sjálfstæðismanna segir gagnrýnendur sína kasta steinum úr glerhúsi.

Útivistarsvæði og útsýni eða ný úthverfi?
Eitt af því besta við Grafarvoginn er nálægðin við náttúruna. Það er nálægðin við náttúruna sem er ein af helstu ástæðum þess að margir hafa flutt í Grafarvoginn. Fjallasýnin, fjaran og útsýnið.

Eyþór í klemmu vegna kosningaloforða
Fullyrt að ólöglegt sé að fella niður fasteignagjöld á eldri borgara.

Innantóm kosningaloforð
Um helgina kynnti Sjálfstæðisflokkurinn í borginni kosningaloforðin sín í aðdraganda komandi borgarstjórnakosninganna.