Kúba

Herða tökin á netinu eftir mótmæli á Kúbu
Kommúnistastjórnin á Kúbu hefur lagt fram nýjar og hertar reglur um samfélagsmiðla og internetið í kjölfar óvenjuáberandi mótmæla þar nýlega. Gagnrýnendur halda því fram að breytingunum sé ætla að þagga niður í andófsröddum.

Hækkuðu sig um þyngdarflokk milli Ólympíuleika en unnu aftur Ólympíugull
Kúbverjar eru konungar hnefaleikakeppni Ólympíuleikanna í Tókýó en þeir hafa unnið þrenn gullverðlaun í keppninni til þessa.

Af Kúbu og mótmælum upp á síðkastið
Undanfarið hefur verið fjallað nokkuð um ástandið á Kúbu og mótmæli gegn stjórnvöldum þar í landi. Þar er margt missagt og staðreyndum snúið á haus eins og oft þegar fjallað er um þetta ágæta land og hverju byltingin hafi áorkað.

Ungi sleggjukastarinn sem fékk sleggjuna í höfuðið er látinn
Frjálsíþróttakonan efnilega Alegna Osorio frá Kúbu er látin en hún varð fyrir skelfilegu slysi á æfingu í vor.

Rannsaka möguleg tilfelli „Havana-heilkennis“ í Austurríki
Bandarísk stjórnvöld rannsaka nú röð heilsufarstengdra atvika hjá erindrekum sínum í Vín, höfuðborg Austurríkis, og öðru starfsfólki á vegum utanríkisþjónustu Bandaríkjanna þar.

Viðurkennir mistök í fyrsta sinn og opnað á netið á Kúbu
Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, viðurkenndi að ríkisstjórn sín hefði ekki haldið rétt á spöðunum varðandi skort á eyjunni og önnur vandamál sem hafa leitt til stærstu mótmæla Kúbu í mörg ár. Mótmælendur komu fyrst saman á sunnudaginn en öryggissveitir Kúbu hafa tekið á mótmælendum með hörku.

Einn látinn í óeirðunum á Kúbu
Fyrsta dauðsfallið í óeirðunum sem verið hafa á Kúbu síðan um helgina hefur nú verið staðfest.

Skortir mat og lyf og verðbólga komin í 500 prósent
Fjöldi mótmælenda á Kúbu eru sagðir hafa verið handteknir í kjölfar umfangsmikilla mótmæla gegn ríkisstjórn landsins á sunnudaginn. Myndbönd hafa sýnt öryggissveitir handtaka og berja mótmælendur sem kallað hafa eftir umbótum í eyríkinu.

Forseti Kúbu segir Bandaríkin ábyrg fyrir mótmælum
Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, ávarpaði þjóð sína í morgun og sagði mótmælin sem hófust um helgina vera skipulagða aðför að kúbverskum stjórnvöldum. Þá sagði hann mótmælin studd af bandarískum yfirvöldum og keyrð áfram á samfélagsmiðlum.

Fjölmenn mótmæli á Kúbu
Þúsundir þustu út á götur helstu borga og bæja á Kúbu um helgina til að mótmæla ríkisstjórn landsins og er talað um fjölmennustu mótmæli í kommúnistaríkinu í áraraðir. Fólkið hrópaði „niður með einræðisstjórnina“ og lögregla mætti mótmælendum með táragasi og kylfum.

Elsa stefnir til Bandaríkjanna
Hitabeltisstormurinn Elsa, sem skilið hefur eftir sig slóð eyðileggingar í Karíbahafsríkjum undanfarna dag, stefnir nú norður til Bandaríkjanna.

Fluttu kúbanskan andófsmann nauðugan á sjúkrahús
Yfirvöld á Kúbu létu færa þekktan andófsmann sem hefur verið í hungurverkfalli nauðugan á sjúkrahús. Vinir hans og vandamenn óttast um heilsu hans en segjast ekki hafa fengið að hafa samskipti við hann.

Fyrsti leiðtogi kúbverska Kommúnistaflokksins utan Castro-ættarinnar
Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, verður næsti leiðtogi kommúnistaflokks landsins. Hann tekur við af Raúl Castro og verður þannig fyrsti leiðtogi flokksins sem ber ekki eftirnafnið Castro.

Segja það markmið forsetans að loka Guantanamo
Joe Biden Bandaríkforseti hefur falið ráðgjöfum sínum að ráðast í formlega endurskoðun á starfsháttum Guantanamo-herfangelsisins sem rekið er af Bandaríkjaher á Kúbu, með það að markmiði að fangelsinu verði lokað áður en Biden lætur af embætti.

Örbylgjur orsaka veikindin
Dularfullur sjúkdómur sem plagað hefur sendiráðsstarfsmenn Bandaríkjanna á Kúbu er að öllum líkindum orsakaður af örbylgjum sem beint var að sendiráðinu.

Þúsundir yfirgefa heimili sín vegna storma
Þúsundum hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í Karíbahafinu og í Suðurríkjum Bandaríkjanna.

Banna leiguflug milli Bandaríkjanna og Kúbu
Bandaríkjastjórn hefur bannað öll leiguflug frá landinu til eyríkisins Kúbu í Karíbahafi og setur þar með enn meiri þrýsting á ríkisstjórn Raúl Castro.

Stærðarinnar jarðskjálfti við Kúbu
Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna segir skjálftann hafa verið 7,7 stig.

Marrero útnefndur fyrsti forsætisráðherra Kúbu frá 1976
Forseti eyríkisins Kúbu, Miguel Diaz-Canel, hefur útnefnt ferðamálaráðherra ríkisins, Manuel Marrero Cruz sem næsta forsætisráðherra landsins,

Bandaríkjastjórn herðir á efnahagsstríðinu gegn Kúbu
Hinn 18. október síðastliðinn tilkynnti Bandaríkjastjórn um nýjar aðgerðir til þess að herða á 60 ára viðvarandi efnahagsstríði sínu gegn Kúbu.

ESB ætlar að skýla fyrirtækjum fyrir refsiaðgerðum gegn Kúbu
Trump-stjórnin afnam nýlega bann við því að bandarískir borgarar stefni erlendum fyrirtækjum sem fjárfesta á Kúbu.

Hafnar fullyrðingum um herlið í Venesúela
Bruno Rodriguez, utanríkisráðherra Kúbu, hafnar fullyrðingum ríkistjórnar Donald Trump Bandaríkjaforseta um að Kúba sé með herlið í Venesúela.

Mannskaði af völdum hvirfilbyls sem gekk yfir Kúbu
Þrír eru sagðir látnir og 172 slasaðir eftir að skýstrókur og flóð léku Havana grátt í nótt.

Skordýr mögulega sökudólgarnir í „hljóðárásunum“
Vísindamenn sem rannsakað hafa uppruna hljóðs sem talið er hafa orsakað heilsuvandræði starfsmanna bandaríska sendiráðsins í Kúbu telja að rekja megi hljóðið til skordýra af krybbutegund.

Kúbverskur herforingi úr Svínaflóainnrásinni látinn
Herforinginn tók þátt í að stöðva innrás útlagahers sem Bandaríkjastjórn studdi. Innrásin misheppnaða þótti niðurlæging fyrir ríkisstjórn Johns F. Kennedy, þáverandi Bandaríkjaforseta.

Fulltrúum Níkaragva meinað að sækja innsetningarathöfn Bolsonaro
Verðandi Brasilíu vill með þessu mótmæla ofsóknum stjórnar Daniel Ortega gegn eigin borgurum.

Neyðarástand vegna fellibyls
Fellibylurinn Michael stefnir á Flórída. Spár gera ráð fyrir því að hann gangi á land sem annars stigs fellibylur á morgun. Neyðarástandi lýst yfir og varað við hvassviðri, mikilli úrkomu, hækkandi sjávarborði og flóðum.

Kalla erindreka heim vegna gruns um hljóðárásir
Bandaríkjastjórn hefur kallað heim fjölda erindreka sinna í Kína vegna gruns um að þeir hafi veikst af sama sjúkdómi og bandarískir sendiráðsstarfsmenn á Kúbu.

Evrópuríki samsek í pyntingum CIA
Tveir grunaðir al-Qaeda-liðar voru geymdir í leynilegum fangelsum í Litháen og Rúmeníu.

Maduro einangraður alþjóðlega þrátt fyrir kosningasigur
Fjórtán ríki hafa kallað sendiherra sína heim frá Venesúela til að mótmæla framkvæmd forsetakosninga þar um helgina. Bandaríkjastjórn sakar forsetann um kosningasvindl og hefur tilkynnt nýjar viðskiptaþvinganir.