Danmörk

Hrikaleg tilfinning að vita að fólk svelti
Nýr svæðisstjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna á Norðurlöndum segir stöðuna sífellt versna og fleiri upplifa hungur. Færri gefi og neyðin sé meiri. Það verði að bregðast við til að koma í veg fyrir að hungursneyðin verði alvarlegri.

Sveitapiltur úr Biskupstungum fékk myndarlegan styrk frá ESB
Þorvaldur Skúli Pálsson, sveitastrákur frá Laugarási í Biskupstungum er kátur þessa dagana því teymi, sem hann stýrir við Háskólasjúkrahúsið í Álaborg var að fá á þriðja hundrað milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu (ESB), sem fer í að útbúa gagnvirkt upplýsingaefni vegna stoðkerfisverkja fólks.

Friður sé forsenda framfara í loftslagsmálum
Utanríkisráðherra Danmerkur segir stríðsátök í heiminum geta haft neikvæð áhrif á samstarf þjóða í loftslagsmálum. Hringborð norðurslóða hafi því sjaldan verið eins mikilvægt. Forsætisráðherra er á sama máli. Friður sé forsenda framfara.

Skotinn til bana í miðborg Kaupmannahafnar
37 ára gamall karlmaður var skotinn til bana í miðborg Kaupmannahafnar upp úr klukkan 15.30 í dag. Árásarmaðurinn er ófundinn.

Níunda gagnaver atNorth rís í Danmörku
Nýtt gagnaver atNorth rís í Danmörku. Varmi frá gagnaverinu verður nýttur til að hita fjölda heimila á Kaupmannahafnarsvæðinu. Gagnaverið verður níunda gagnaver atNorth, en með þessari viðbót verður fyrirtækið með starfsemi í fjórum af Norðurlöndunum fimm.

Danskir ellilífeyrisþegar mala gull á megrunarlyfjum
Ofsagróði danska lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk vegna sölu þess á megrunalyfinu Wegovy mun hafa gríðarleg áhrif á efnahagslegan uppgang í Danmörku og mikinn gróða í för með sér fyrir fjölmarga Dani sem eru hluthafar í fyrirtækinu. Hagfræðingur segir þó ýmsar hættur felast í ástandinu fyrir efnahag Dana.

Fær fangelsisdóm fyrir ansi taktlaust grín á flugvellinum í Kaupmannahöfn
Þjálfari sænska undir átján ára landsliðs Svíþjóðar í handbolta hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi eftir að hafa grínast með að hann hefði í fórum sínum sprengju er hann fór um flugvöllinn í Kaupmannahöfn.

Booking.com í tugmilljóna skuld við danska hótelrekendur
„Við höfum heyrt að það eru einhverjir aðilar sem eru ennþá að verða varir við þetta en við höfum ekki heyrt af því að vandamálið hafi aukist eða að það hafi batnað.“

Enn lítið um svör, ári frá sprengingunum
Ár er liðið frá því Nord Stream gasleiðslurnar voru skemmdar í sprengingum á botni Eystrasalts. Skemmdarverkið er til rannsóknar í nokkrum ríkjum en enn er ekki búið að varpa ljósi á því hverjir sprengdu leiðslurnar.

Danir slaufa „nítján gráðu reglunni“ í opinberum byggingum
Stjórnvöld í Danmörku hafa ákveðið að slaufa reglunni um að einungis megi kynda opinberar byggingar upp í nítján gráður að hámarki vegna orkusparnaðar. Reglunni var komið á fyrir um ári síðan vegna stöðunnar á evrópskum orkumarkaði í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.

Lego gefst upp á að nota endurnýtanlegar plastflöskur í kubbana
Leikfangaframleiðandinn Lego hefur fallið frá hugmyndum um að framleiða kubba úr endurnýttum plastflöskum í stað efna úr jarðefnaeldsneytum. Fulltrúar fyrirtækisins segja að breytingin hefði leitt til meiri losunar á „líftíma“ plastkubbanna.

Hulunni svipt af banamanni Guðmundar Kambans
Nafn danska andspyrnumannsins, sem banaði rithöfundinum Guðmundi Kamban í Kaupmannahöfn árið 1945, hefur verið sveipað leyndarhjúp í rúm 78 ár. Sá hét Egon Alfred Højland.

Rússar segja sig úr Barentsráðinu
Yfirvöld í Rússlandi hafa ákveðið að segja sig úr Barentsráðinu og saka nágranna sína um að hafa gert ráðið óstarfhæft. Rússar segja Finna ekki hafa viljað afhenda þeim forsæti ráðsins.

Myrti hvítvoðung sinn
Kona á þrítugsaldri verður sótt til saka fyrir að hafa myrt nýfætt barn sitt stuttu eftir að hafa fætt það í gærmorgun í bænum Næstved á Sjálandi í Danmörku.

Hræðist framtíðina og hefur beðið um frið
Móðir ellefu ára drengs með ólæknandi taugahrörnunarsjúkdóm og krabbamein segir það hafa gert honum erfiðara fyrir hvað hann sé klár. Hann geti því reiknað út hvað bíði hans. Það sé hræðilegt að horfa upp á drenginn sinn, sem þrái að verða betri í fótbolta, verða sífellt lélegri sama hvað hann æfi sig. Vinir og vandamenn standa fyrir tónleikum til styrktar Mikael í kvöld.

Andrea Eyland flutt til Danmerkur
Andrea Eyland þáttastjórnandi Kviknar hlaðvarpsins er flutt frá Íslandi til Danmerkur. Þetta segir Andrea á Instagram þar sem hún tekur við spurningum fylgjenda sinna um breytta stöðu.

Grunaður um að drepa tvær ungar konur í Árósum
Karlmaður á þrítugsaldri er grunaður um að hafa drepið tvær ungar konur í úthverfi Árósa í Danmörku. Hann var handtekinn í tengslum við dauða átján ára stúlku um helgina en er nú talinn hafa átt þátt í dauða annarrar konu í júlí. Konurnar eru taldar hafa látist af völdum eitrunar.

Gæsluvarðhald framlengt í skútumáli
Þrír menn, sem grunaður eru um umfangsmikið smygl á hassi til landsins, verða í áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 15. september.

Grínistinn sem sagði Íslendinga opnari fyrir gríni en Danir er látinn
Danski grínistinn og tónlistarmaðurinn Eddie Skoller er látinn, 79 ára að aldri. Hann hafði glímt við langvarandi veikindi og lést á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn í gær, umvafinn fjölskyldu.

Árásarmaðurinn í Kristjaníu átján ára
Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið átján ára gamlan mann í tengslum við skotárás í Kristjaníu í gærkvöldi. Hann er grunaður um morð og tilraunir til morðs í félagi við óþekktan vitorðsmann.

Einn látinn eftir skotárás í Kaupmannahöfn
Þrítugur karlmaður lést í skotárás tveggja grímuklæddra manna í Kristjaníu í Kaupmannahöfn fyrr í kvöld. Alls voru fimm skotnir, þar af einn lífshættulega en líðan hans er nú stöðug. Skotmennirnir flúðu á rafskútum og eru enn ófundnir.

Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna skotárásar í Kristjaníu
Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í umfangsmiklum aðgerðum í Kristjaníu vegna skotárásar sem átti sér stað þar klukkan 19:25 að staðartíma. Lögreglan segir að fólk hafi lent í skothríðinni en gefur ekki upp fjölda særðra.

Íslenskur faðir hræddur um líf sitt eftir árásir unglingspilta
„Mér finnst erfitt að trúa því að unglingar í dag geti verið svona hættulegir. Þetta eru ekki bara einhverjir strákar að fíflast. Þetta er komið á það stig að ég er í alvörunni hræddur um líf mitt, og ég er líka hræddur um konuna mína og barnið mitt,“ segir Daníel Viðar Hólm sem búsettur er í Árósum í Danmörku en hann varð í tvígang fyrir aðkasti og árásum af hálfu unglingahóps sem ógnuðu honum með hníf og hótuðu honum lífláti.

Danir banna brennslu trúar- og helgirita
Stjórnvöld í Danmörku hyggjast banna brennur trúar- og helgirita á opinberum stöðum, það er að segja á almannafæri. Ákvörðunin var tekin í kjölfar nokkurra brenna fyrir utan erlend sendiráð nú í sumar.

Elleman-Jensen og Lund Poulsen hafa stólaskipti
Jakob Ellemann Jensen, leiðtogi danska stjórnarflokksins Venstre, verður nýr ráðherra efnahagsmála í dönsku ríkisstjórninni og Troels Lund Poulsen, samflokksmaður hans, verður nýr varnarmálaráðherra.

Mínimalískur lífstíll íslenskrar fjölskyldu vekur athygli erlendis
Dagbjört Jónsdóttir byrjaði að taka upp mínimalískan lífsstíl fyrir tíu árum eftir að henni ofbauð hversu mörgum hlutum hún og fjölskylda hennar höfðu sankað að sér í gegnum tíðina. Síðan þá hefur fjölskyldan losað sig við yfir þúsund hluti af heimilinu og í dag á hver fjölskyldumeðlimur til að mynda einungis einn disk og eitt hnífapar til afnota, og eitt handklæði.

Bandaríkjamenn samþykkja formlega að Úkraínumenn fái F-16
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er sagður hafa lagt blessun sína yfir að F-16 herþotur verði fluttar frá Danmörku og Hollandi til Úkraínu um leið og þjálfun flugmanna er lokið.

Al-Qaeda lýsir Danmörku og Svíþjóð stríð á hendur
Íslömsku hryðjuverkasamtökin Ríki íslams kalla eftir árásum á Danmörk og Svíþjóð vegna nýlegra Kóranbrenna í löndunum tveimur. Fyrrverandi leyniþjónustumaður segir að taka verði hótanir samtakanna grafalvarlega.

Óveðrið Hans veldur usla á Norðurlöndum
Yfirvöld í Noregi og Svíþjóð hafa sagt íbúum að búa sig undir gríðarmikið úrhelli næsta sólarhringinn, þegar óveðrið Hans gengur yfir. Miklar rigningar og öflugar vindhviður hafa nú þegar valdið aurskriðum sem truflað hafa vegasamgöngur og þá hafa tilkynningar borist um að þök hafi rifnað af húsum.

Dani er orðinn milljónamæringur
Heppinn Dani var einn með fyrsta vinning í útdrætti kvöldsins í Vikinglottó og hlýtur hann rúmar 432 milljónir króna í vinning.