Danmörk
1 2 3 4 5 6 7 8 … 42 ›
Fljúga til Álaborgar næsta sumar Flugfélagið Play mun hefja áætlunarflug til Álaborgar í júní næsta sumar. Þetta er þriðja borgin sem Play hefur flugferðir til en fyrir er flogið til Kaupmannahafnar allan ársins hring og til Billundar yfir sumarið. Viðskipti innlent 21.8.2024 10:32
Ofurskvísur heimsins í íslenskri skóhönnun Áhrifavaldar Danmerkur flykktust að þegar hönnuðurinn Katrín Alda frumsýndi nýja KALDA skólínu í Kaupmannahöfn á tískuvikunni og andrúmsloftið einkenndist af hátískustemningu. Blaðamaður var á svæðinu og ræddi við Katrínu Öldu. Tíska og hönnun 13.8.2024 18:00
Sól meðal tískuhönnuða erlendis sem vert er að fylgjast með Fatahönnuðurinn Sól Hansdóttir vakti mikla athygli fyrir sýningu sína á Tískuvikunni í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Forsvarsmenn hátíðarinnar völdu Sól sem ein af þeim hönnuðum sem áhugavert er að fylgjast með og hún sýndi hönnun sína í arkítektúr- og hönnunarmiðstöðinni Blox við höfnina. Tíska og hönnun 13.8.2024 07:01
Tískugyðjur komu saman í Kaupmannahöfn Það var hátísku líf og fjör í Kaupmannahöfn í síðastliðinni viku þar sem hin sívinsæla tískuvika fór fram. Vikan var stærri en nokkru sinni fyrr og sóttu stórstjörnur á borð við Pamelu Anderson sýningarnar og tóku púlsinn á norrænu tískunni. Tíska og hönnun 12.8.2024 11:01
Á lífi þökk sé þrjóskum engli „Það er voða skrítið að hugsa til þess að eitthvað svona lagað geti hent mann, algjörlega fyrirvaralaust og kippt manni snögglega út úr lífinu,“ segir Hildur Kjartansdóttir sem fór óvænt í hjartastopp á vinnustað sínum fyrir hálfu öðru ári. Hún þakkar þrautseigri samstarfskonu fyrir líf sitt í dag og lýsir henni sem „engli“. Lífið 10.8.2024 08:00
Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og brottvísað fyrir árásina á Mette Pólskur maður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í héraðsdómi Kaupmannahafnar til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa veist að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, í júní síðastliðinn Erlent 7.8.2024 10:24
„Ég vildi óska að það væru fleiri konur í þessu starfi“ Þegar Guðríður Aðalbjörg Þorsteinsdóttir flutti til Horsens í Danmörku árið 2006 átti hún síst von á því að hún myndi enda sem leigubílstjóri- nánar tiltekið annar af tveimur kvenkyns leigubílstjórum sem starfa í bæjarfélaginu. Lífið 28.7.2024 10:11
Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Um vorið 2018 hnaut Ragnheiður Pétursdóttir um skakka gangstéttarhellu á leið sinni á fund og við tóku sex ár af óbærilegum sársauka og baráttu við danska heilbrigðiskerfið um að fá hann viðurkenndan. Draumum um framtíðina hefur verið gert að víkja fyrir stöðugu stríði við sveitarfélagið, læknasamfélagið, tryggingafélög og eigin líkama. Innlent 27.7.2024 11:01
Til fyrirmyndar? Allar leiðir liggja frá Íslandi til Kaupmannahafnar, hér er saga þjóðarinnar á hverju götuhorni, hverjum rennustein og á Strikinu heyrir maður íslensku í öðru hvoru skrefi. Skoðun 24.7.2024 15:00
Frakklandsforseti blandar sér í mál hvalavinarins Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt dönsk yfirvöld til þess að framselja ekki hinn bandarísk-kanadíska umhverfis- og aðgerðarsinna Paul Watson í hendur Japönum. Paul sætir gæsluvarðhaldi á Grænlandi eftir að hafa verið handtekinn við höfnina í Nuuk á sunnudaginn síðasta. Erlent 24.7.2024 13:41
Lenti í ofbeldissambandi með frönskum bíl Dagur Kári Pétursson kvikmyndaleikstjóri er búsettur um þessar mundir í Danmörku. Hann hefur að undanfarin misserin ekið á bílaleigubíl, sem hann kunni vel við framanaf en gamanið fór að kárna þegar bíllinn fór að sýna honum megnasta yfirlæti. Innlent 22.7.2024 14:23
Lítil börn slösuðust í hestvagnsslysi Mjóu munaði að tvö lítil frönsk börn slösuðust alvarlega þegar þau lentu í hestvagnsslysi í gamla bæ Árósa í gær. Erlent 18.7.2024 11:53
Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö Sænska lögreglan rannsakar nú mál þar sem tvö lík fundust skotin og brunnin í bílaleigubíl á iðnaðarsvæði í Malmö. Um var að ræða ökumann og farþega sem virðast hafa verið drepnir á sunnudag, samkvæmt Aftonbladet. Erlent 17.7.2024 06:33
Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku 33 ára íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Danmörku fyrir líkamárás á unnustu sína. Innlent 13.7.2024 11:00
Meðalhiti lægri í júní en í maí í fyrsta sinn Meðalhiti í Bretlandi og Danmörku var lægri í júní heldur en var í maí. Þetta er í fyrsta sinn sem júní er kaldari en maí síðan að mælingar hófust í Danmörku fyrir rúmlega 150 árum samkvæmt fréttastofu DR. Veður 6.7.2024 09:26
Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Maðurinn sem réðst á Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, á Kolatorgi Kaupmannahafnar í síðasta mánuði hefur verið ákærður fyrir árás á embættismann. Erlent 3.7.2024 16:18
Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Sex menn hafa verið ákærðir fyrir manndráp af gáleysi fyrir að hafa þann þrettánda mars síðastliðinn fellt tré sem hafnaði á bíl akandi vegfaranda sem lést síðar af sárum sínum. Atvikið átti sér stað í grennd við Slagelse á Sjálandi. Erlent 3.7.2024 13:44
Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Maður á þrítugsaldri lést af völdum sára sinna í nótt eftir að hafa verið stunginn í Amagerhverfi Kaupmannahafnar. Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið 25 ára konu í tengslum við málið. Erlent 3.7.2024 09:10
„Pabbi er að senda þér skilaboð og mamma vill fá að sjá hvað stendur“ Börnum á aldrinum 3 til 17 ára sem eiga foreldra sem hafa skilið stendur nú til boða nýtt úrræði á netinu þar sem þau geta fræðst um skilnað og áhrif þess á líf þeirra og tilfinningar. Um er að ræða 28 áfanga á netinu sem eru sérsniðin að aldri og flokkuð eftir þemum. Fjallað er um söknuð, samsettar fjölskyldur, hvernig eigi að bregðast við þegar foreldrar rífast, tilfinningar og réttindi barna. Innlent 3.7.2024 06:12
Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Félögunum Jakobi Magnússyni og Kolbeini Tuma var heldur betur brugðið í brún þegar þeir vöknuðu á tjaldstæðinu við Hróarskeldu í morgun og allt var á floti. Þeir hafi vaknað, stigið út, og drullan hafi náð upp að hnjám. Þetta var „kyngimagnað“ segja þeir. Erlent 30.6.2024 17:39
Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Philip Westh, 33 ára Dani, hefur verið dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að myrða hina sautján ára Emilie Meng árið 2016 og fjölda kynferðisbrota. Erlent 28.6.2024 13:09
Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Philip Westh, 33 ára Dani, hefur verið sakfelldur fyrir að myrða hina sautján ára Emilie Meng árið 2016. Hann er einnig sekur um að hafa reynt að nauðga henni og fjölda brota gegn tveimur öðrum stúlkum. Erlent 28.6.2024 10:52
Eldur kviknaði í ráðuneyti Eldur kviknaði í húsakynnum skattamálaráðuneytis Danmerkur í miðborg Kaupmannahafnar í morgun. Stórir reykjarstólpar stigu upp úr byggingunni við síkið í Kristjánshöfn. Erlent 27.6.2024 10:04
Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Unnur Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits hjá Seðlabanka Íslands, er komin í stjórn danska fjármálaeftirlitsins. Viðskipti innlent 24.6.2024 15:16
Hefja könnun á nýjum flugvelli fyrir Færeyjar Borgarstjórn Þórshafnar hefur samþykkt að verja andvirði tíu milljóna íslenskra króna í að rannsaka nýtt flugvallarstæði á Glyvursnesi. Kanna á hvernig 2.700 til 3.000 metra langri flugbraut af nægilegri breidd til að uppfylla staðla alþjóðaflugvallar verður best komið fyrir á nesinu, sem er aðeins þrjá kílómetra sunnan við höfuðstað Færeyja. Erlent 23.6.2024 10:52
Danadrottning klæddi af sér kuldann með íslenskri hönnun Dönsku konungshjónin sendu í dag kveðju á grænlensku þjóðina í tilefni þjóðhátíðardags Grænlands sem haldinn er hátíðlegur í dag. Með kveðjunni fylgdu myndir af konungshjónunum sem teknar voru á Grænlandi. Þar klæddist María Danadrottning íslenskri hönnun. Lífið 21.6.2024 13:12
Óttast að árásarmaðurinn flýi land Dómari í héraðsdómi Kaupmannahöfn hefur ákveðið að framlengja gæsluvarðhald yfir manninum sem ákærður er fyrir að hafa veist að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, þann sjöunda júní síðastliðinn um tvær vikur. Dómari segist óttast að hann muni flýja land. Erlent 20.6.2024 18:25
Búa sig undir ákvörðun um stærsta mannvirki Færeyja Færeyingar búa sig núna undir stærstu ákvörðun færeyskrar mannvirkjagerðar, hvort grafa eigi 26 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar. Þeir stefna að ákvörðun eftir hálft ár og vonast til að framkvæmdir hefjist innan þriggja ára. Erlent 19.6.2024 22:00
Konungsskip Dana í Reykjavík Við Grandabryggju er heilmikið sjónarspil um þessar mundir þar sem danska konungsskipið liggur þar. Áhöfnin gerði sér glaðan dag í Reykjavík og hleður nú batteríin áður en haldið er til Grænlands. Innlent 15.6.2024 22:28
Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segist enn ekki með sjálfri sér eftir að karlmaður réðst á hana í Kaupmannahöfn á föstudag. Hún er sannfærð um að maðurinn hafi ráðist á sig sem forsætisráðherra og árásin hafi þannig í raun verið á alla Dani. Erlent 12.6.2024 10:52