Lettland

Vesturlönd eiga ekki að hafa áhyggjur af líðan Putins
Artis Pabriks varnarmálaráðherra Lettlands fer í engar grafgötur með að Vesturlönd eigi að bregðast af hörku við innrás Rússa í Úkraínu og varast undirróður hans sem miði að því að afvegaleiða Vesturlönd til málamiðlana.

Framlag Lettlands tók íslenska lagið í beinni fyrir blaðamenn
Hljómsveitin Citi Zēni keppti fyrir hönd Lettlands í Eurovision í ár. Lagið þeirra Eat Your Salad komst ekki áfram úr undanriðlinum en þeir náðu þó að dreifa boðskap sínum, sem snýst um að velja grænmetisfæðu og hugsa vel um plánetuna. Júrógarðurinn átti líflegt spjall við hljómsveitina, sem söng meðal annars fyrir okkur eigin útgáfu af Með hækkandi sól.

Fulltrúar Lettlands í Eurovision gerðu ábreiðu af Með hækkandi sól
Hljómsveitin Citi Zēni, fulltrúar Lettlands í Eurovision í ár, voru að senda frá sér skemmtilega ábreiðu af framlagi okkar Íslendinga, Með hækkandi sól.

Lettlandsbryggja 1
Í gær, 4. maí, voru 32 ár síðan Lettland lýsti yfir endurheimt sjálfstæðis. Það er því táknrænt að það var á þessum degi sem skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur samþykkti að gefa þremur götum í nýja Ártúnshöfðahverfinu nöfn sem undirstrika vináttu Íslands og Eystarsaltsríkjanna.

Nefna þrjár götur á Ártúnshöfða til heiðurs Eystrasaltsríkjunum
Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í morgun að þrjár götur í nýja Ártúnshöfðahverfinu yrðu nefndar til heiðurs Eystrasaltsríkjunum. Verða samliggjandi göturnar nefndar Litháenbryggja, Lettlandsbryggja og Eistlandsbryggja.

Vilja rússneska hermenn frá landamærum Úkraínu
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti ráðamenn í Rússlandi til að flytja hermenn sína á brott frá landamærum Úkraínu. Hann sagði að innrás í Úkraínu myndi hafa afleiðingar og meðal annars yrðu hinum ströngustu refsiaðgerðum beitt gegn Rússlandi.

Tilkynnti um fjögurra vikna útgöngubann og bað bólusetta afsökunar
Forsætisráðherra Lettlands tilkynnti á mánudag um fjögurra vikna útgöngubann vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita í landinu síðustu daga. Á sama tíma bað hann bólusetta landsmenn afsökunar á að þurfa að grípa til þessara aðgerða, en bólusetningarhlutfall í Lettlandi er eitt það lægsta í ríkjum ESB.

Vilja draga Lúkasjenka fyrir Alþjóðadómstólinn
Evrópuþingið mun mögulega samþykkja á morgun þingsályktunartillögu um að ákæra ætti Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, fyrir pyntingar og bælingu.

Jón Baldvin heiðursgestur á sjálfstæðishátíð í Lettlandi
Þrjátíu ára afmæli endurfengins sjálfstæðis var fagnað í gær og fyrradag í Lettlandi. Í tilkynningu frá Kolfinnu Baldvinsdóttur, dóttur Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að hann hafi verið heiðursgestur hátíðarinnar.

Hópur afgansks flóttafólks fastur við landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur beðið pólsk og lettnesk stjórnvöld um að hjálpa flóttafólki, sem er fast á landamærunum, við að komast í öruggt skjól. Flestir flóttamannanna eru frá Afganistan og Írak.

Var staddur á heimili þjálfara síns þegar hann lenti í flugeldaslysinu á 4. júlí og lést
Íshokkí markvörðurinn Matiss Kivlenieks sem lést eftir flugeldaóhapp í fjórða júlí hátíðarhöldum í Bandaríkjunum var staddur á heimili markvarðarþjálfara liðsins, Manny Legace.

Markvörður Lettlands látinn aðeins 24 ára að aldri
Matiss Kivlenieks, markvörður Lettlands og Columbus Blue Jackets í NHL-deildinni í íshokkí, er látinn aðeins 24 ára að aldri. Aðeins rúmur mánuður er síðan Kivlenieks stóð í markinu er Lettland vann frækinn 2-0 sigur á Kanada á HM í íshokkí.

Eystrasaltslönd í brennidepli: Byggjum brýr með barnastarfi
Nú í vor býður Norræna húsið til baltneskrar barnamenningarhátíðar í tilefni Barnamenningarhátíðar í Reykjavík.

Evrópuríki lýsa yfir óánægju með breytingar Pfizer
Nokkur Evrópuríki hafa lýst yfir óánægju vegna fyrirhugaðra breytinga á afhendingaráætlun Pfizer. Færri skammtar af bóluefni lyfjaframleiðandans munu berast til Evrópu frá og með næstu viku vegna þess að Bandaríkjadeild framleiðandans ætlar að hægja á flutningi efnisins til Evrópu.

Ísland komið á rauða lista Eystrasaltsríkjanna
Ekki er mælst með því að Lettar ferðist til Íslands sökum smithættu. Þá er ferðalöngum sem koma til Lettlands og Eistlands frá Íslandi skylt að sæta fjórtán daga sóttkví.

Íslendingar þurfa að fara í fjórtán daga sóttkví í tveimur Eystrasaltsríkjanna
Íslendingar sem fara til Lettlands munu þurfa að fara í fjórtán daga sóttkví við komuna til landsins. Sama gildir um ríkisborgara annarra landa sem ferðast til ríkisins héðan frá. Stjórnvöld munu bregðast við málinu og segja upplýsingar sem stuðst er við gefa ranga mynd af ástandinu hér á landi.

Eystrasaltslöndin opna sín innri landamæri
Eistland, Lettland og Litháen hafa nú opnað fyrir landamæri sín gagnvart hvort öðru og geta íbúar svæðisins nú ferðast frjálst á milli landanna þriggja.

Jón Baldvin talaði um trúðinn Trump í hátíðarávarpi til Letta
Það voru ekki aðeins tímamót hér á landi þann 4. maí þegar tilslökun var gerð á samfélagsbanni því Lettar fögnuðu því jafnframt að þrjátíu ár eru liðin frá endurreisn sjálfstæðis landsins.

Sjáðu gleðina er Lettar tryggðu sig inn á EM í fyrsta sinn
Lettneska tröllið Dainis Kristopans skoraði sigurmarkið er Lettar skrifuðu nýjan kafla í handboltasögu sína í gær og gleðin var mikil þar í gær.

Letti búsettur á Íslandi varð fyrir auðkennisþjófnaði í Bretlandi án þess að hafa komið þangað
Forsaga málsins er sú að árið 2016 lenti Edmunds í þeirri óheppilegu lífsreynslu að veski hans var stolið í heimalandinu.

Annar hermaður látinn eftir að jarðsprengja sprakk í Lettlandi
Jarðsprengjan var frá tímum seinni heimsstyrjaldarinnar og sprakk þann 6. maí þar sem verið var að hreinsa jarðsprengjusvæði undir forystu NATO-sveita.

Fjölga flugferðum milli Íslands og Ríga
AirBaltic hyggst fljúga þrisvar í viku milli Keflavíkur og Ríga í sumar.

Evrópuflokkar bæta við sig fylgi í Lettlandi
Kosningar fóru fram í Lettlandi í dag og munu niðurstöður verða tilkynntar á morgun. Útgönguspár benda til þess að flokkar sem aðhyllast Evrópusambandið munu bæta við sig fylgi.

Primera Air efst á svörtum lista í Svíþjóð
Af þeim 23 flugfélögum sem rötuðu á "svartan lista“ sænsku neytendasamtakanna Råd & Rön og tímaritsins Vagabond trónir Primera Air á toppnum.

Blaðamaður Business Insider hraunar yfir „nýjasta lággjaldaflugfélag Íslands“
Blaðamaður Business Insider er afar óvæginn í garð flugfélagsins Primera Air í upplifunarpistli sem birtur var á vef miðilsins í gær.

Telja spillingarásakanir gegn seðlabankastjóra geta verið hluta af áróðursherferð
Varnarmálaráðuneyti Lettlands telur að utanaðkomandi aðilar reyni að hafa áhrif á innanríkismál og kosningar sem fara fram í haust.

Forstjóri lettneska seðlabankans í gæsluvarðhald grunaður um spillingu
Lögregluyfirvöld ruddust inn á heimili hans og skrifstofu fyrr í dag til að leita að vísbendingum vegna spillingarmáls.

Mannslát Íslendings í Lettlandi rannsakað
Lögreglan í Lettlandi rannsakar hvernig á því stóð að dyrnar að spennistöð í miðborg Riga voru opnar en íslenskur karlmaður lést þar af völdum raflosts í gærmorgun. Að meðaltali verður eitt banaslys af þessum toga á hverju ári í Lettlandi.