Íran
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 21 ›
Íranir útvega Rússum hundruð eftirlits- og árásardróna Bandaríkjastjórn segir stjórnvöld í Íran með í undirbúningi að útvega Rússum hundruð eftirlits- og árásar dróna og að þjálfa Rússa í notkun þeirra. Að minnsta kosti tólf óbreyttir borgarar særðust í árás Rússa á heilsugæslu og íbúðarhúsnæði í borginni Mykolaiv í suðurhluta Úkraínu í nótt. Erlent 12.7.2022 12:01
Íranir hyggjast sjá Rússum fyrir hundruðum sprengjudróna Íranir ætla að láta Rússum í té mörghundruð drónasprengjuvélar sem nota á í stríðinu í Úkraínu. Erlent 12.7.2022 08:02
Fimm létust í jarðskjálfta í Íran Fimm eru látnir eftir snarpan jarðskjálfta í suðurhluta Íran í morgun. Jarðskjálftinn mældist 6,3 stig og fundu íbúar nágrannalanda Írans einnig fyrir honum. Erlent 2.7.2022 10:17
Rúmlega tuttugu látnir í lestarslysi í Íran Að minnsta kosti tuttugu og einn er látinn og tugir til viðbótar slasaðir eftir að farþegalest fór út af sporinu í austanverðu Íran. Viðbragðsaðilar segja að lestin hafi rekist á skurðgröfu og hrokkið út af. Erlent 8.6.2022 10:12
Mótmæli eftir mannskætt húshrun halda áfram í Íran Reiði ríkir enn í garð íranskra yfirvalda eftir að 37 manns fórust þegar íbúðablokk hrundi í suðvestanverðu landinu í síðustu viku. Mótmælendur hafa meðal annars hrópað slagorð gegn Ali Khamenei, æðsta leiðtoga Írans. Erlent 2.6.2022 10:24
Aftökur sjaldan færri en fjölgaði mikið milli ára Kippur var í fjölda aftaka í fyrra eftir að þeim fækkaði umtalsvert í kórónuveiruheimsfaraldrinum árið 2020. Mest fjölgaði þeim í Íran og Sádi-Arabíu. Þrátt fyrir það voru sögulega fáir teknir af lífi í fyrra. Erlent 24.5.2022 14:16
Liðsforingi hjá íranska byltingarverðinum skotinn til bana Liðsforingi hjá írönsku byltingarvörðunum, sem eru ein valdamesta stofnun Írans, var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í gær. Erlent 23.5.2022 07:19
Átta létust eftir landadrykkju Átta létust í írönsku borginni Bandar Abbas eftir að hafa drukkið heimabruggað áfengi. Minnst 51 til viðbótar gekkst undir læknishendur vegna áfengiseitrunar og sautján þeirra liggja á gjörgæslu. Erlent 3.5.2022 22:50
Zaghari-Ratcliffe á leið heim eftir að hafa verið haldið í Íran í sex ár Nazanin Zaghari-Ratcliffe, bresk-írönsk kona sem hefur verið haldið fanginni í Íran í nærri sex ár, er á leið heim. Þingmaður Zaghari-Ratcliffe greindi frá þessu á Twitter í morgun og sagði hana á flugvellinum í Tehran. Erlent 16.3.2022 11:46
Íranir grunaðir um loftárás á ræðismannsskrifstofu í Erbil Um tug flugskeyta var skotið á höfuðborg Kúrda í Írak, Erbil, í gær. Bandarískir embættismenn hafa Írana grunaða um árásina en flugskeytum var meðal annars beint að nýrri ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í borginni. Erlent 13.3.2022 10:29
Saka Íran um að spila með karlmann í markinu Jórdanía hefur ásakað nágrannaþjóð sína Íran um að stilla upp karlmanni í marki sínu er þjóðirnar mættust í A-landsleik kvenna í knattspyrnu á dögunum. Knattspyrnusamband Jórdaníu vill staðfestingu þess efnis að markvörður Íran sé kvenkyns. Fótbolti 18.11.2021 07:00
Heimsleiðtogar uggandi yfir kjarnorkuáætlun Írana Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands, Þýskalands og Frakklands segjast hafa miklar og stígvaxandi áhyggjur af kjarnorkuáætlun Írans. Leiðtogarnir ræddu málið á G20 fundinum í Róm í dag. Erlent 30.10.2021 23:26
Kjarnorkusamningaviðræður hefjist aftur fyrir nóvemberlok Samningaviðræður um endurlífgun kjarnorkusamnings frá árinu 2015 milli Íran og sex annarra stórvelda munu hefjast aftur fyrir nóvemberlok. Þetta sagði helsti samningarmaður Íran í gær. Erlent 28.10.2021 10:29
Íranar leyfa aftur eftirlit með kjarnorkuframleiðslu Stjórnvöld í Íran samþykktu í dag að heimila eftirlitsfólki Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) að hefja eftirlitsupptökur að nýju í kjarnorkurannsóknarstöðvum landsins. Erlent 12.9.2021 16:00
Íranir halda áfram að auðga úran Stjórnvöld í Teheran halda áfram að bæta í forða sinn af auðguðu úrani sem hægt væri að nota til framleiðslu á kjarnavopnum, að sögn Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar (IAEA). Eftirlitsmenn hennar hafa átt erfitt um vik að fylgjast með þróun mála í Íran á þessu ári. Erlent 7.9.2021 20:24
Reiðir heimamenn handsömuðu meðlimi Hezbollah sem skutu eldflaugum að Ísrael Reiðir þorpsbúar í Chouya í suðurhluta Líbanons stöðvuðu bílalest á vegum Hezbollah hryðjuverkasamtakanna sem virðist hafa verið notuð til að skjóta eldflaugum að Ísrael í morgun. Erlent 6.8.2021 13:45
Nýr forseti sór embættiseið í Íran Harðlínuklerkurinn Ebrahim Raisi sór embættiseið sem nýr forseti Írans í dag. Hann tekur við embættinu af Hassan Rouhani sem þótti hófsamur á íranskan mælikvarða. Erlent 5.8.2021 17:46
Ræningjarnir yfirgáfu skipið Vopnaðir menn sem fóru um borð í olíuflutningaskip undan ströndum Óman í gær, yfirgáfu skipið Sjóher Bretlands tilkynnti þetta í morgun og var skipinu siglt í átt að Óman skömmu seinna. Erlent 4.8.2021 10:10
Vopnaðir menn fóru um borð í olíuflutningaskip á Persaflóa Sjóher Bretlands tilkynnti í dag að olíuflutningaskipi hafi líklegast verið rænt undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna í dag. Hópur vopnaðra manna eru sagðir hafa farið um borð í skipið Asphalt Princess. Erlent 3.8.2021 16:50
Ákæra Írana fyrir að ætla að ræna konu frá New York Saksóknarar í Bandaríkjunum hafa ákært fjóra Írana fyrir að hafa ætlað að ræna bandarískri blaðakonu og aðgerðasinna. Konan, sem heitir Masih Alinejad, hefur verið gagnrýnin á klerkastjórn Írans en mennirnir fjórir eru taldir vera útsendarar hennar. Erlent 14.7.2021 14:48
Gerðu loftárásir á skotmörk á landamærum Íran og Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gær loftárásir á landamærum Íraks og Sýrlands. Skotmörkin voru bækistöðvar og vopnabúr vígamanna sem halda til á svæðinu og njóta stuðnings Íransstjórnar. Erlent 28.6.2021 06:44
Lokuðu tugum íranskra vefsíðna sem eru sakaðar um upplýsingafals Bandarísk yfirvöld lokuðu tugum fréttavefsíðna sem tengjast írönskum stjórnvöldum sem þau saka um að dreifa fölskum upplýsingum. Á meðal þeirra voru vefsíður sjónvarpsfréttastöðvar Húta í Jemen og vefmiðils herskárra Palestínumanna. Erlent 22.6.2021 22:35
Nýkjörinn forseti Íran þverneitar að hitta Biden Ebrahim Raisi, nýkjörinn forseti Íran, hefur ekki nokkurn áhuga á því að hitta Joe Biden Bandaríkjaforseta. „Nei,“ svaraði hann einfaldlega, spurður á blaðamannafundi í dag. Erlent 21.6.2021 12:33
Gripið til neyðarstöðvunar í eina kjarnorkuveri Írans Stjórnendur eina kjarnorkuvers Írans gripu til neyðarstöðvunar þess um helgina. Stjórnvöld hafa ekki gefið skýringar á á stöðvuninni en varað við því að rafmagni gæti slegið út tímabundið í nokkra daga. Erlent 21.6.2021 07:54
Raisi sigurvegari í Íran Ebrahim Raisi bar sigur úr býtum í forsetakosningum í Íran. Níutíu prósent atkvæða hafa verið talin og Raisi hefur hlotið rúmlega helming þeirra. Erlent 19.6.2021 10:21
Íranir ganga að kjörborðinu Forsetakosningar fara fram í Íran í dag þar sem allir þeir fjórir sem til greina koma sem arftaki Hassan Rouhani eru taldir vera harðlínumenn. Erlent 18.6.2021 06:26
Vonleysi kjósenda fyrir forsetakosningar í Íran Kjósendur í Íran eru ekki vongóðir um úrslit forsetakosninganna sem fara fram í landinu á morgun hafi merkjanleg áhrif á lífsgæði þeirra. Búist er við slakri kjörsókn í kosningunum sem eru taldar munu festa völd Ali Khamenei, æðstaklerks, enn frekar í sessi. Erlent 17.6.2021 09:01
Lík 15 mánaða gamals drengs fannst við strendur Noregs Líkamsleifar fimmtán mánaða gamals drengs, sem hvarf á Ermarsundi í fyrra, hafa fundist við strendur Noregs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku lögreglunni. Erlent 7.6.2021 11:37
Skoða að fjölga frambjóðendum fyrir forsetakosningarnar í Íran Sérstök kjörnefnd sem fer yfir hæfi forsetaframbjóðenda í Íran segist ætla að endurskoða ákvörðun sína um að hafna nokkrum þekktum frambjóðendum. Rouhani forseti er á meðal þeirra sem hafa mótmælt fákeppni í frambjóðendahópnum. Erlent 4.6.2021 14:24
Vita ekkert um auðgun úrans í Íran frá því í febrúar Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) segist ekki hafa fengið upplýsingar um auðgun Úrans í Íran frá 23. febrúar. Þá hófu yfirvöld í Íran að takmarka aðgengi eftirlitsaðila að kjarnorkurannsóknarstöðvum sínum en þar eru Íranar að auðga úran meira en þeir hafa gert hingað til. Erlent 31.5.2021 18:28