Kópavogur

Umræða á Bylgjunni ekki ígildi stjórnvaldsákvörðunar
Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir fokið í flest skjól ef orð hennar um víkkun vaxtarmarka í viðtali í Bítinu teljist sem stjórnvaldsákvörðun. Beiðni um færslu vaxtarmarka á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki komið formlega inn á borð borgarstjórnar.

Snúrunni lokað fyrir fullt og allt
Hönnunarverslunin Snúran kveður íslenska fagurkerabransann innan tíðar en tíu ár eru síðan verslunin opnaði. Eigandi Snúrunnar kveðst ætla að snúa sér að öðru.

Segir Bjarna ekki hafa ruglast og Pawel fari sjálfur með rangt mál
Pawel Bartoszek segir Bjarna Benediktsson hafa ruglast þegar hann sagði ágreining milli Kópavogs og Reykjavíkur um vaxtamörk. Ágreiningurinn væri í raun milli Kópavogs og Garðabæjar. Hildur Björnsdóttir andmælir Pawel og segir fulltrúa meirihlutans víst hafa skotið niður áform utan vaxtarmarka.

Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár opin umferð
Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár í Víðidal, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hefur verið opnuð umferð. Brúin er við Grænugróf neðan við Fella- og Hólakirkju í Breiðholti á móts við félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks og var hún tengd við stígakerfi Elliðaárdals með malbiki fyrir helgi.

Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann
Fjögurra manna fjölskylda komst af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í Salahverfi í nótt.

Þjófnaður í verslun og eignaspjöll
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna þjófnaðs í verslun í hverfi 201 í Kópavogi og eignaspjalla í hverfi 111 í Reykjavík.

Töpuðu dómsmáli vegna húss sem reyndist fullt af myglu
Þau Jóhanna Guðný Gylfadóttir og Þorgils Sigvaldason fjárfestu í einbýlishúsi í Kórahverfinu í Kópavoginum árið 2017. Eftir að hafa búið í húsinu í nokkur ár kom í ljós nánast altjón á eigninni sökum myglu.

Loka hjúkrunarheimilinu Roðasölum: „Ég er miður mín að lesa þetta“
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum fyrr í vikunni að loka hjúkrunarheimilinu Roðasölum sem er hjúkrunarheimili fyrir heilabilaða. Vísað er til þjónustuþyngdar, óhentugs húsnæðis og að ekki sé ekki hægt að þjónusta fólk til æviloka.

Sárnar umræðan síðustu daga
Formanni Kennarafélags Mosfellsbæjar, Seltjarnarness og Kópavogs sárnar málflutning síðustu daga og umræða um úttektir Viðskiptaráðs og sveitarfélaganna. Mennta og barnamálaráðherra segir tímabært að meta störf kennara að verðleikum.

Læstu sig á kvennasalerni í tvígang og neituðu að fara
Tveir menn, sem hvorki halda heimili né hafa atvinnu, læstu sig inni á kvennasalerni verslunar í miðborginni í tvær klukkustundir og neituðu að fara þaðan þrátt fyrir beiðnir starfsmanna.

Einn enn í haldi vegna Elko-málsins
Einn er enn í haldi vegna þjófnaðar í verslunum Elko sem voru framin að kvöldi til og um nótt fyrir um mánuði síðan. Enn á eftir að taka ákvörðun um áframhaldandi gæsluvarðhald á hendur honum.

Þrír handteknir fyrir hótanir og brot á vopnalögum
Lögreglan sinnti að vanda fjölbreyttum verkefnum í gær og í nótt. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að átta gista nú í fangaklefa og að 125 mál hafi verið bókuð í kerfi lögreglu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun.

Reykjavík er þriðja hávaðamengaðasta flugvallaborg í Evrópu
Árið 2014 var gefin út skýrsla af Umhverfisstofnun Evrópu (EEA) um hávaða frá flugumferð í Evrópu (EEA, 2014). Í þeirri skýrslu kemur fram að Reykjavík er í þriðja sæti yfir borgir í Evrópu þar sem íbúar verða fyrir mestri hávaðamengun frá flugi.

Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu
Sextán ára piltur var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt fyrir að miða skammbyssu að lögreglumanni. Byssan reyndist vera eftirlíking af skammbyssu.

„Annað hvort væri ég ólétt eða að hætta“
Líkt og greint var frá í upphafi vikunnar hefur Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði nýkrýndra Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta ákveðið að leggja skóna á hilluna. Ákvörðun Ástu á sér aðdraganda og átti hún hjartnæma stund með liðsfélögum sínum fyrir nokkrum vikum síðan er hún greindi þeim frá ákvörðun sinni.

Nú má keyra á nagladekkjum í borginni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tilkynnt að hún sé hætt að sekta ökumenn bifreiða sem búnar eru nagladekkjum.

Handrit Ástu Eirar fékk fullkomin endalok
Eftir að hafa landað sjálfum Íslandsmeistaratitlinum með Breiðabliki um nýliðna helgi, þeim þriðja á ferlinum, greindi Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, frá því á sunnudaginn síðastliðinn að skórnir væru komnir á hilluna. Ákvörðun Ástu kom vafalaust mörgum á óvart en hún á þó sinn aðdraganda.

Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina
Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði nýkrýndra Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta, hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir frábæran feril og aðeins 31 árs að aldri. Hún er sátt í hjarta sínu með ákvörðunina og er þakklát fyrir tímana hjá uppeldisfélaginu. Bæði þá góðu, en einnig þá erfiðu og krefjandi.

Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum
Trjálundur í Hjallahverfinu í Kópavogi er uppspretta nágrannaerja sem hafa verið teknar fyrir á tveimur dómstigum. Landsréttur felldi dóm í málinu í gær og gerir konu, sem býr í einbýlishúsi í hverfinu, að klippa trjágróður við lóðarmörk nágranna hennar, sem búa í nærliggjandi parhúsi.

Ánægð með að stjórnvöld viðurkenni mönnunarvandann
Efling undirritaði í nótt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu sem nær til félagsmanna á hjúkrunarheimilum og sambærilegum stofnunum. Formaður Eflingar fagnar því að stjórnvöld viðurkenni loks mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna.

Skiltið skuli fjarlægt
Umdeilt auglýsingaskilti á útvegg bílskúrs á Digranesvegi í Kópavogi skal fjarlægt. Ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar um það stendur óhögguð, að því er fram kemur í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Nefndin hafnaði kröfu eigenda að Digranesvegi 81 um að fella ákvörðunina úr gildi.

Mikil umferð vegna áreksturs í Kópavogi
Árekstur varð skammt frá Hamraborg í Kópavogi í kvöld. Sjúkrabíll var sendur á vettvang.

Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir
Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, seldi einbýlishús sitt við Þrymsali 1 í Kópavogi á dögunum. Um er að ræða 404 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum sem var byggt árið 2008.

Stefnt á að koma upp 98 hleðslustöðvum í Kópavogi
Orka náttúrunnar, ON, mun á næstu vikum setja upp tugi hleðslustöðva í Kópavogi í samstarfi við bæinn. Hleðslustöðvar við Hálsatorg í Hamraborg voru teknar í notkun í vikunni. Þær eru fyrstu af 98 hleðslustöðvum á 14 stöðum í Kópavogsbæ sem verða sett upp í haust.

Tvímenningar taldir tengjast Elko-málinu
Tveir menn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir á föstudag eru grunaðir um að tengjast tugmilljóna þjófnaði úr tveimur verslunum Elko, annars vegar í Kópavogi og hins vegar í Skeifunni.

Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík
Ásgeir Sveinsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, segir áríðandi að farið verði strax í framkvæmdir nýs samgöngusáttmála. Ekki hafi verið farið í neinar stórar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu síðan 2011. Það sé farið að hafa áhrif. Ásgeir fór yfir stöðuna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann í Kópavogi í gærkvöldi eða nótt, þar sem viðkomandi ók á bifreið með bílnúmer sem var augljóslega ekki löggilt.

Kópavogur - Að virða og varðveita eigin sögu
Ég vil með þessum orðum minnast Héraðsskjalasafns Kópavogs sem bæjarstjórn Kópavogs ákvað að leggja niður á fundi sínum 25. apríl 2023 með sex atkvæðum meirihlutans gegn fimm atkvæðum minnihlutans. Nú um mánaðarmótin mun síðasti héraðsskjalavörðurinn í Kópavogi láta af störfum. Um leið leggst af virk söfnun á skjölum og heimildum um sögu bæjarins og óvissa er með afgreiðslu úr skjölum safnsins.

Eva flutt inn í verðlaunahús Kára
Eva Bryngeirsdóttir, þjálfari og jógakennari, hefur flutt lögheimili sitt til kærasta síns Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar í Kópavogi. Hús Kára er við Fagraþing í Kópavogi, með útsýni yfir Elliðavatn.

Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024
Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 og var valið kynnt við hátíðlega viðhöfn í Tónhæð, húsnæði Skólahljómsveitar Kópavogs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum.