Reykjavík

Flýta flugeldasýningu og breyta hlaupaleiðum á Menningarnótt
Breytingar á hlaupaleiðum Reykjavíkurmaraþons og kvölddagskrá Menningarnætur voru samþykktar á fundi borgarráðs í gær eftir tillögum starfshóps Reykjavíkurborgar. Á meðal þess sem var samþykkt var að tónleikar við Arnarhól myndi ljúka klukkustund fyrr, klukkan 22 en ekki 23.

Brjálaðist út í barn í bíó
Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum vegna atviks sem átti sér stað í bíósal í júlí á þessu ári, nánar tiltekið í Sambíóunum í Kringlunni.

Útlit fyrir svalasta árið í Reykjavík í þrjátíu ár
Allt stefnir nú í að árið sem er að líða verði það svalasta í Reykjavík í tæp þrjátíu ár. Veðurfræðingur segir hitafarið í ár bera mörg einkenni kalds tímabils sem stóð yfir í þrjátíu ár á síðustu öld.

Ráðist á ferðamann í borginni
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til eftir að ferðamaður hafði orðið fyrir líkamsárás í Reykjavík í gær.

Dagsljósið hafi gleymst í þéttingu byggðar
Ásta Logadóttir, verkfræðingur hjá Lotu og sérfræðingur í birtu og lýsingu í húsum, segir dagsbirtuna oft gleymast þegar verið er að hanna hús. Hún fagnar nýrri reglugerðarbreytingu á byggingarreglugerð og óskar þess að nýr ráðherra taki hana föstum tökum.

Búseti segir margvíslega galla á deiliskipulaginu
Búseti hefur krafið borgina svara um deiliskipulag sem uppbygging ellefu þúsund metra vöruhúss við Álfabakka 2 byggir á. Skipulagið hafi komið borgarfulltrúum í opna skjöldu og breytingar sem gerðar voru árið 2022 hafi ekki verið í samræmi við lög.

Samið um lagningu skíðagöngubrauta á Hólmsheiði og Rauðavatni
Reykjavíkurborg hefur gert þjónustusamning við Sporið um lagningu skíðagöngubrauta á Hólmsheiðinni og á Rauðavatni í vetur.

Rafbyssu beitt í fyrsta sinn
Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu beittu síðdegis í gær rafbyssu í fyrsta sinn hér á landi. Það var gert vegna vopnaðs einstaklings sem mun hafa sýnt af sér ógnandi hegðun við Miklubraut í gær og var lögreglan með mikinn viðbúnað á svæðinu.

Nauðsynlegt og löngu tímabært
Loksins, segja KR-ingar sem sáu vinnvélar komnar til starfa við aðalvöll félagsins í vikunni. Fyrsta skref í átt að nýrri ásýnd svæðis félagsins hefur verið tekið.

Vöruhúsið ekki hannað af arkitekt
„Arkitektar eru sérmenntaðir í að hanna út frá þörfum manneskjunnar á fagurfræðilegum grundvelli, en það er mikill misskilingur að halda að þeir einir komi að mótun borgarumhverfisins. Það gera einnig byggingarfræðingar, byggingatæknifræðingar, verkfræðingar, landslagsarkitektar og fleiri.“

Steinvala á fleygiferð varð að skærum vígahnetti
Skær vígahnöttur náðist á mynd á föstudagsmorgni í nóvember. Þrátt fyrir að vera á stærð við steinvölu varð hann talsvert bjartari en skærustu stjörnuhröp er hann splundraðist á heiðskírum morgunhimninum.

Ekki nauðgun heldur kynferðisleg áreitni í leigubíl
Landsréttur hefur dæmt erlendan leigubílstjóra í tólf mánaða fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gagnvart sautján ára stúlku í leigubíl hans haustið 2022. Hann hafði áður hlotið tveggja ára dóm fyrir brotið í héraði en þá taldi dómurinn að um nauðgun væri að ræða.

Stakk mann þrisvar og reyndi svo að stela hjólinu hans
Ívar Aron Hill Ævarsson var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stunguárás og önnur brot. Það er niðurstaða Landsréttar, en áður hafði Ívar Aron hlotið tveggja ára dóm í Héraðsdómi Reykjaness í málinu.

Segir engan hafa sagt neitt fyrr en nágranni fór í stríð við ísbúðina
Framkvæmdastjóri Skúbb Ísgerðar hefur kært ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að honum sé skylt að fjarlægja ljósaskilti sem er við ísbúð Skúbb, sem er við Laugarásveg í Reykjavík. Í kærunni segir að nágranni heyi stríð gegn ísbúðinni.

Sigga Heimis selur slotið
Hönnuðurinn og listakonan Sigga Heimis hefur sett fallega hæð við Flókagötu 39 á sölu. Um er að ræða 178 fermetra eign í reisulegu húsi sem var byggt árið 1944. Ásett verð er 154,9 milljónir.

Þrjú teymi vilja hanna og byggja nýju þjóðarhöllina
Þrjú teymi hafa verið valin til þátttöku í samkeppnisútboði um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir í Laugardal í Reykjavík.

Endurbætur hefjist nú ekki fyrr en í fyrsta lagi 2031
Ekki verður hafist handa við endurbætur á innilaug Sundhallar Reykjavíkur fyrr en í fyrsta lagi árið 2031. Upphaflega stóð til að endurbætur hæfust vorið 2023 og átti þeim að vera lokið 2025.

„Sundlaug“ á Sogavegi til sölu
Sérlega athyglisvert parhús í botnlanga á Sogavegi er nú komið á sölu. Það er sérstaklega athyglisvert enda er stór heitur pottur í garði hússins sem mætti ganga svo langt að hreinlega kalla sundlaug.

Nýr verkefnastjóri svæðisbundins farsældarráðs
Hanna Borg Jónsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri farsældar á höfuðborgarsvæðinu. Hún mun leiða saman fagfólk sem vinnur að málefnum barna til þess að undirbúa svæðisbundið farsældarráð.

Hægt að borga með korti í strætó
Frá og með deginum í dag er hægt að borga snertilaust með korti í Strætó í gegnum Klapp greiðslukerfið. Fyrirkomulagið hefur verið í prófun hjá fyrirtækinu og er nú komið í fullna virkni að því er segir í tilkynningu frá Strætó.

Segir fæsta spyrja að því hvað sé best fyrir börnin
Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, virðist gefa lítið fyrir áform um aukna aðkomu atvinnulífsins að leikskólamálum. Hugsanavilla virðist vera í gangi um að einkafyrirtækjum muni ganga betur en hinu opinbera að laða til sín kennara og fæstir spyrji að því hvað sé best fyrir sjálf börnin.

„Bíðum í ofvæni eftir veðurspá næstu daga“
Snjór þekur nú götur og stræti á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Skrifstofustjóri borgarlandsins segir vetrarþjónustu hefjast í borginni í fyrramálið og að beðið sé í ofvæni eftir veðurspá næstu daga.

Fyrirtækjaleikskólar innleiði mismunun og stéttaskiptingu í menntakerfið
Kennari og bæjarfulltrúi í Garðabæ segir að áform fyrirtækja á borð við Alvotech og Arion banka að koma á fót leikskólum og dagvistunarúrræðum á höfuðborgarsvæðinu séu til þess fallin að innleiða mismunun og stéttaskiptingu í menntakerfið.

Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ
Komnar eru gröfur á KR-völl til að fjarlægja gras af aðalvelli félagsins. Leggja á gervigras á völlinn í staðinn.

27 lundabúðir á Laugaveginum
Á leiðinni í vinnuna í morgun gekk ég niður Laugaveginn frá Snorrabraut að Lækjargötu og gerði óvísindalega rannsókn. Ég taldi 27 lundabúðir, 24 gististaði, og 73 verslanir sem voru einungis markaðssettar ferðamönnum. Ég gafst upp á að telja fjölda ferðamanna, en auðvelt var að telja Íslendinga sem ég mætti - þeir voru aðeins fjórir.

Sagðist vera vopnaður og ruddist inn
Lögregla sinnti útkalli í gærkvöldi eða nótt vegna manns sem hafði sagst vera vopnaður og ruðst inn í íbúð. Hann var handtekinn í íbúðinni en reyndist óvopnaður.

Búseti sættir sig ekki við vöruhúsið
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti sættir sig ekki við stærðarinnar vöruhús sem reist var fáum metrum frá fjölbýlishúsi í þeirra eigu. Framkvæmdastjórinn segir stjórnendur munu funda með lögmanni sínum á morgun.

Loka verslun í Smáralind
Vodafone lokar verslun sinni í Smáralind í lok mánaðarins. Í staðinn munu viðskiptavinir geta farið í verslun Vodafone á Suðurlandsbraut 8 um helgar. Síðasti dagurinn í Smáralind er 29. desember og ný helgaropnun á Suðurlandsbraut hefst strax eftir áramót.

Einkaframtakinu sé ekki alltaf treystandi fyrir miklu svigrúmi í skipulagi
Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata segir augljóst að einkaframtakinu hafi ekki verið treystandi fyrir rúmum skipulagsheimildum í Breiðholti. Þess vegna séu reglur og kvaðir á skipulag mikilvægar. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir reglur of strangar en tekur þó fram að mikilvægt sé að borgin hafi afskipti þegar það varði heildarhagsmuni.

Talið að hamri hafi verið beitt
Tveir voru handteknir og einn fluttur á slysadeild eftir vopnaða árás á Álfinum, krá í Breiðholti, seint í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að hamri hafi verið beitt við árásina.