

Póst- og fjarskiptastofnun hyggst í sumar í samstarfi við fjarskiptafélögin ráðast í átak til að vinna bug á ítrekuðum truflunum sem hafa orðið á farsímasambandi á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Framkvæmdir við byggingu nýs miðbæjar á Selfossi ganga vel en þar verða 35 hús á sex hektara svæði.
Selfoss tekur á móti Snæfelli í fyrstu umferð Mjólkurbikars karla í kvöld. Guðmundur Tyrfingsson, hinn ungi og efnilegi leikmaður Selfyssinga, kveðst spenntur fyrir leiknum.
Eldri karlmaður sem lést í sundlauginni á Selfoss í gær hafði verið á botni laugarinnar í sjö mínútur þegar hann fannst. Slysið gerðist á vaktaskiptatíma sundlaugarvarða.
Eldri karlmaður lést við sundiðkun skömmu fyrir hádegi í dag.
Mikill viðbúnaður var við Sundhöll Selfoss á ellefta tímanum í dag og var byggingin rýmd þegar eldri maður slasaðist alvarlega.
Maðurinn hafði hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt að hann hefði fallið í Ölfusá, en reyndist svo fylgjast með björgunaraðgerðum úr felum.
Karlmaður um tvítugt gisti fangageymslur á Selfossi í nótt eftir að hafa verið staðinn að því að plata lögregluna. Karlmaðurinn hringdi í Neyðarlínuna og tilkynnti að hann hefði fallið í Ölfusá en reyndist svo fylgjast með björgunaraðgerðum úr felum.
Mikill viðbúnaður var hjá öllum viðbragðsaðilum í Árnessýslu eftir að tilkynning barst til lögreglu um að maður hefði fallið í Ölfusá í nótt. Tilkynningin og málið allt reyndist gabb frá upphafi. Haft var upp á tilkynnanda og var hann handtekinn vegna málsins.
Elísabet Jóhannsdóttir, eigandi tjaldsvæðisins Gesthúsa á Selfossi, hefur beðið hóp ungmenna sem varð fyrir áreiti og aðkasti ungra manna á tjaldsvæðinu aðfaranótt laugardags afsökunar á viðbrögðum starfsmanns svæðisins.
Lögreglan á Suðurlandi auglýsir eftir mögulegum vitnum að líkamsárás sem átti sér stað fyrir utan Lyfju á Selfossi um klukkan 13 í dag.
Vigfús Ólafsson, 54 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir brennu og manndráp með því að hafa orðið fólki að bana með íkveikju í húsi á Kirkjuvegi á Selfossi í október 2018.
Bíl sem lögreglan á Suðurlandi hafði tekið af eiganda var stolið úr porti lögreglustöðvarinnar á Selfossi aðfaranótt laugardags. Bíllinn hafði verið tekinn vegna ítrekaðra umferðarlagabrota eiganda.
Sveitarfélög landsins hafa sl. áratug barist fyrir því að gerð yrði breyting á lögum um virðisaukaskatt í þá veru að sveitarfélög fái 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna fráveituframkvæmda.
Það er hætta á auknu brotthvarfi að loknu samkomubanni að mati skólameistara Tækniskólans. Starfsfólk skólans hafi hringt í á annað þúsund nemendur til að hvetja þá áfram. Yfirlögregluþjónn biðlar til samninganefnda að afstýra verkfalli sem hefði áhrif á skólastarf.
Lægsta boð í endurbyggingu og lagningu bundins slitlags á fimm kílómetra vegarkafla í Grafningi reyndist 80,4 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Þetta var eitt þriggja útboða sem opnuð voru hjá Vegagerðinni í dag.
Kjartan Björnsson, rakarinn góðkunni á Selfossi segist varla geta beðið eftir því að mega opna rakarastofu sína á Selfossi á nýjan leik þegar slakað verður á samkomubanninu.
Kveikt var í gaskútum á fjórum stöðum innan bæjarmarka á Selfossi og rétt fyrir utan bæinn upp úr miðnætti í nótt. Málið er talið tengjast stuldi á gaskútum.
Guðmundur Hólmar Helgason gengur í raðir Selfoss frá West Wien í Austurríki.
Breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss fer á fullt strax eftir páska. Skrifað var undir fimm milljarða króna verksamninga í dag, sem eru einhverjir þeir stærstu í sögu vegagerðar hérlendis.
Vinnumálastofnun á Suðurlandi reiknar með að atvinnuleysi í Mýrdalshreppi fari upp í 31% og í Skaftárhreppi í 20,6% í apríl vegna Covid-19.
Brunavarnir Árnessýslu sinna nú útkalli vegna elds sem kom upp í húsi utan við Stokkseyri.
Lögregla og almannavarnanefndir á Suðurlandi vekja athygli á því, að gefnu tilefni, að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan á sóttkví stendur.
Bæjarráð Svf. Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 19. mars sl. ályktun um örvun hagkerfis með þátttöku sveitarfélaga, til að lágmarka efnahagslegt tjón af völdum COVID-19 heimsfaraldurins.
Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sean Aloysius Marius Bradley sem fæddur er 22. apríl 1957 og skráður til búsetu að Austurvegi 34 á Selfossi.
Fyrirtæki tilkynna um lokun. Það á við um fleiri fyrirtæki en tilmæli stjórnvalda ná til.
Fimm sjúkrarúm eru á nýrri deild, sem var opnuð á sjúkrahúsinu á Selfossi í gær vegna Covid 19 veirunnar.
Bílvelta varð við Eyrarbakka nú seint á tíunda tímanum.
Sökum villandi fréttaflutnings sem oddviti sjálfstæðisflokksins í Árborg hratt af stað í viðtali við Fréttablaðið tel ég mig knúinn til að leiðrétta staðreyndarvillur.
Tæplega 100 nemendur og starfsmenn Fjölbrautaskóla Suðurlands eru nú í sóttkví eftir að kennari skólans greindist með kóróvaveiruna. Verknámskennsla fer fram í skólanum um helgina áður en honum verður lokað í fjórar vikur.