Bláskógabyggð

Sækja slasaðan gönguskíðamann á Langjökul
Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út um þrjúleytið í dag vegna gönguskíðamanns sem slasaðist á Langjökli. Ekki er talin hætta á ferðum að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg.

Fullkomið verkefni um Brennu-Njáls sögu á Laugarvatni
Sögupersónur Brennu Njáls sögu hafa öðlast nýtt líf í meðförum nemenda Menntaskólans að Laugarvatni, sem unnu nokkur myndbönd um söguna í stað þess að sitja í kennslustund og læra söguna þar, því það er bannað vegna heimsfaraldursins. Kennarinn segir verkefnið hafa heppnast fullkomlega.

Mótfallin hálendisþjóðgarði þrátt fyrir málamiðlun
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggst enn gegn frumvarpi umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð. Nýtt frumvarp var lagt fram á Alþingi í gær en í því er reynt að koma til móts við athugasemdir sveitafélaga.

Kvenfélagskonur nýttu nóttina í að baka
Hópur kvenfélagskvenna stendur nú fyrir áheitabakstri eftir að hafa fengið grænt ljós hjá almannavörnum og heilbrigðiseftirlitinu. Bakað er í deilieldhúsinu Eldstæðið í Kópavogi, sem er fullvottað eldhús. Baksturinn hófst klukkan 18:00 í gær og stendur til klukkan 18.:00 í dag. Í takt við tíðarfarið munu Kvenfélagskonur víða um land taka þátt með fjarbakstri heimavið.

Hvetur stjórnvöld til að gyrða sig í brók og fara að girða
Kolbeinn Sveinbjörnsson, sem á sæti í sveitarstjórn Bláskógabyggðar segir að allt of víða sé ástand girðinga, sem eiga að gegna hlutverki varnarlína á milli beitihólfa mjög slæmt og það hafi ekki verið farið með þeim til að sinna viðhaldi í fjölda ár.

Kórónuveira og kreppa stoppa ekki garðyrkjubændur
Miklar framkvæmdir eiga sér stað hjá garðyrkjubændum í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð en þrjár stöðvar eru að stækka starfsemi sína.

Herdís nýr framkvæmdastjóri Skálholts
Herdís Friðriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Skálholts.

Þrjátíu punda náttúrulausir urriðar á Þingvöllum
Fjöldi fólks lagði leið sína á Þingvelli um helgina til að fylgjast með urriðanum, sem er að ganga upp í Öxará. Össur Skarphéðinsson, doktor í fiskeldi var einn af þeim, sem mætti á staðinn til að fylgjast með fiskunum.

Berjast fyrir hjólhýsunum sínum á Laugarvatni
Hjólhýsaeigendur á Laugarvatni vinna nú að því að fá að vera áfram með hýsin sín á svæðinu en sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir það ekki koma til greina, það verði að fjarlægja öll hjólhýsi vegna mikillar brunahættu. Um tvö hundruð hjólhýsi eru á svæðinu.

Hrollvekjandi hugsanir undirstrika mikilvægi hvíldarinnar
Íbúi á Selfossi sem lýkur brátt einangrun eftir að hafa smitast af Covid-19 leggur áherslu á að fólk fari vel með sig enda margir sem glími við eftirköst.

Fjallkóngur segir réttirnar skemmtilegri en jólin
Sauðfé er ekki að fækka hjá bændum í Biskupstungum í Bláskógabyggð ólíkt víða annars staðar á landinu.

Kuldamet líklega slegið á Þingvöllum í nótt
Líklegt er að kuldamet í september hafi verið slegið á Þingvöllum þegar hitamælir í þjónustumiðstöðinni í þjóðgarðinum sýndi -9,5°C frost í nótt. Veðurfræðingur segir að heiðríkja og þurrt loft í háloftunum hafi stuðlað að kuldanum.

Ekki auðveld ákvörðun að loka hjólhýsasvæðinu á Laugarvatni
Sveitarstjórn ákvað í síðustu viku að loka svæðinu þar sem öryggi fólks á svæðinu er mjög ábótavant komi þar upp eldur.

Ætla að loka hjólhýsasvæðinu á Laugarvatni
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum í dag að rekstri hjólhýsasvæðisins við Laugarvatn verði hætt.

Bráðahjúkrun og leikfangabílar á Laugarvatni
Um fimmtíu hjúkrunarfræðingar víðsvegar af landinu sóttu þriggja daga námskeið á Laugarvatni í vikunni en þeir eiga það allir sameiginlegt að vera í viðbótarnámi í bráðahjúkrun.

Söngurinn klikkaði ekki í Tungnaréttum
Mikið var sungið í Tungnaréttum í Biskupstungum í morgun en réttirnar voru óvenjulegar fyrir þær sakir að aðeins mátta tvö hundruð manns mæta í réttirnar. Um fimm þúsund fjár voru hins vegar í réttunum.

Útinám vinsælt á Laugarvatni
Mikil ánægja er með útinám, sem Bláskógaskóli á Laugarvatni er með fyrir nemendur sína. 74 börn eru í skólanum og starfsmennirnir eru um 20.

„Hræðileg tilfinning að vera fastur úti í vatni“
Skotveiðimaðurinn sem var hætt kominn eftir að hafa fest sig í leðju í Sandvatni á Haukadalsheiði í nótt segir það hafa verið hræðilegt að verða jafn bjargarlaus og raun bar vitni.

Björguðu manni sem hafði sokkið djúpt með annan fótinn í sand
Lögreglan á Suðurlandi var kölluð út um klukkan tíu í gærkvöldi vegna skotveiðimanns sem hafði sokkið í sandinn í Sandvatni á Haukadalsheiði, sunnan Langjökuls.

Sex sveitarfélög fá styrk vegna hruns í ferðaþjónustu
Framlagið mun fara í að styðja við atvinnulíf og samfélag sveitarfélaganna og styrkja stoðir þeirra.

„Rúgbrauð í fernu frá Sigrúnu Ernu“ hafa slegið í gegn
Rúgbrauð, sem bökuð eru í hver í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð hafa slegið í gegn í sælkeragöngum í Reykholti þar sem gestir hafa fengið að smakka á rúgbrauðinu.

Tjaldsvæðin búa sig undir að vísa fólki frá
Hert samkomubann sem tekur gildi á morgun hefur mikil áhrif starfsemi tjaldsvæða sem bjuggu sig undir eina stærstu ferðahelgi ársins um helgina. Forsvarsmaður tjaldsvæðanna á Akureyri ræður fólki sem ætlaði sér að tjalda þar frá því að leggja í hann.

Lögregla kölluð til vegna ófriðar í menntaskólaútilegu
Samkvæmt heimildum fréttastofu voru fjölskyldur á svæðinu sem ákváðu að yfirgefa tjaldsvæðið um miðnætti vegna láta í menntaskólahópnum.

Pílagrímar gengu 120 kílómetra leið í Skálholt á Skálholtshátíð
Skálholtshátíð lauk í dag með hátíðarmessu í Skálholtskirkju. Pílagrímar gengu til messunnar.

„Bjóðum ömmu og afa í ferðalag“ um uppsveitir Árnessýslu
Fjögur sveitarfélög í uppsveitum Árnessýslu eru að hefja verkefni sem kallast; Bjóðum ömmu og afa í ferðalag" en tilgangur verkefnisins er að afi og amma fari í ferðalag með fjölskyldu sinni um uppsveitirnar.

Hálfur milljarður í nýtt hótel í Bláskógabyggð
Framkvæmdir eru að hefjast við bygginu fjörutíu herbergja hótels í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð, sem mun kosta um hálfan milljarð króna. Hótelið verður tilbúið næsta vor.

Sex sveitarfélög fái samtals 150 milljónir króna
Sex sveitarfélög fá samtals 150 milljóna króna framlag frá ríkinu nái tillögur meirihluta fjárlaganefndar fram að ganga. Þá er gert ráð fyrir allt að 4,5 milljarða króna heimild til Ferðaábyrgðasjóðs vegna endurgreiðslu pakkaferða.

Mikill hugur og kraftur í íslenskum garðyrkjubændum
Vegna mikillar eftirspurnar eftir íslensku grænmeti og afskornum blómum hafa nokkrir garðyrkjubændur ákveðið að stækka stöðvar sínar, m.a. í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð.

Geysir friðlýstur á þjóðhátíðardegi Íslendinga
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði friðlýsingu Geysis í Haukadal í dag, 17. júní. Geysissvæðið er eitt þekktasta goshverasvæði jarðar.

Góð veiði í Apavatni
Vatnaveiðin hefur víðast hvar verið góð það sem af er sumri þó svo að veður hafi suma daga gert veiðimönnum erfitt fyrir.