

Ný bæjarstjórn sameinaðs sveitarfélags Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps samþykkti á fyrsta fundi sínum í dag að sveitarfélagið fengi nafnið Húnabyggð.
D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningum nýsameinaðs sveitafélags Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps.
Húnvetningar samþykktu í dag sameiningu sveitarfélaganna Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps með miklum meirihluta. Ný sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags verður kjörin 14. maí.
Kosið verður um sameiningu í sex sveitarfélögum í dag. Oddviti eins af smærri sveitarfélögunum segir það rökrétta þróun að lítil sveitarfélög sameinist þeim stærri um alla þjónustu við íbúa.
Haustið er tíminn sem stóru hængarnir fara á stjá og þrátt fyrir að veiðitölur séu víða undir væntingum eru veiðimenn eng að síður duglegir við bakkann að leita að þeim stóra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Birgi Jónasson í embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra frá 19. júlí.
Þrátt fyrir að Blanda hafi farið afar rólega af stað er vonandi að lyftast brúnin á veiðimönnum sem standa þar vaktina.
Búið er að opna veginn um Vatnsskarð að fullu eftir að honum var lokað vegna slyss fyrr í kvöld þegar bifreið stóð alelda á veginum.
Eldur logaði í bíl í Vatnsskarði á áttunda tímanum í kvöld. Þetta má sjá í myndbandi sem fulltrúi fréttastofu náði á svæðinu.
Ekkert verður af sameiningu Skagabyggðar, Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og sveitarfélagsins Skagastrandar eftir að íbúar Skagabyggðar höfnuðu henni í atkvæðagreiðslu í gær. Sjötíu voru á kjörskrá og greiddu 29 atkvæði gegn sameiningu en 24 með.
Ekkert verður úr sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu eftir að íbúar Skagabyggðar felldu sameiningartillögu í íbúakosningu í dag. Þar mátti ekki muna mörgum atkvæðum en 29 kusu gegn tillögunni en 24 með henni.
Skiptar skoðanir eru á sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Oddviti Húnavatnshrepps segist bjartsýnn á að af sameiningu verði.
Páll Pétursson, bóndi á Höllustöðum, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, er látinn, 83 ára að aldri.
Kona var flutt á Landspítalann í Reykjavík með sjúkraflugi frá Sauðárkróki eftir að bíll hennar lenti utan vegar á þjóðvegi 1, skammt frá bænum Stóru-Giljá í Austur-Húnavatnssýslu. Mbl greindi fyrst frá.
Tveggja ára gamall tvinnbíll fuðraði upp á Svínvetningabraut suðaustan af Blönduósi á sunnudag. Enginn slasaðist en bóndi sem varð vitni að brunanum segir hafa verið skuggalegt að sjá hve skammur tími leið frá því eldur kviknaði þar til bíllinn var að engu orðinn.
Út frá eldinum í bílnum kviknaði svo í sinu. Slökkvistarf gekk vel.
Hemlabúnaður fólksbifreiðar sem lenti í banaslysi á Norðurlandsvegi í Langadal í apríl í fyrra reyndist bilaður þegar slysið varð.
Ingunn Reynisdóttir, dýralæknir á Syðri-völlum á Hvammstanga, segist hafa samgt upp þjónustusamningi við Húnavatnssýslur í dag.
„Þetta er það furðulegasta og óþægilegasta sem ég hef upplifað,“ segir Aron Kristján Sigurjónsson 26 ára Hafnfirðingur.
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, hefur svarað gagnrýni Guðmundar Hauks Jakobssonar um skort á viðhaldi við Blönduósflugvöll.
Nauðsyn flugvallarins á Blönduósi sannaði sig enn og aftur í gær að sögn Guðmundar Hauks Jakobssonar, formanns byggðaráðs Blönduósbæjar.
Rútuslysið við Blönduós í gærkvöld má að líkindum rekja til flughálku, en að sögn aðalvarðstjóra á Blönduósi breyttust aksturskilyrðin á svæðinu á örskotsstundu.
María Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðinemi segir það hafa verið lán í óláni að þeir hjúkrunarnemar sem voru í rútunni með þeirri sem valt nærri bænum Öxl í gær séu að vinna á bráðamóttökunni.
Vilhjálmur Stefánsson, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, segir vinnu vegna rútuslyssins sem varð við bæinn Öxl skammt frá Blönduósi hafa gengið eins vel og mögulegt var.
Ekki þurfti að beita klippum til þess að ná farþegum úr rútunni sem valt nærri Öxl skammt suðvestan af Blönduósi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti þrjá farþega rútunnar sem valt við bæinn Öxl nærri Blönduósi til Reykjavíkur.
Slysið varð á fimmta tímanum í dag og var allt tiltækt lið sjúkrabíla og lögreglu sent á vettvang auk slökkviliðsbíla.
Lögreglan á Norðurlandi vestra sinnir nú alvarlegu umferðarslysi sem varð í umdæmi lögreglunnar á fimmta tímanum í dag. Um meiriháttar útkall er að ræða og er verið að senda allt tiltækt lið sjúkrabíla og lögreglu á vettvang auk slökkviliðsbíla.
Garnaveiki greindist í kind á bænum Reykjjum í Húnavatnshreppi skömmu fyrir jól.
Þrír björgunarsveitarmenn sem eru félagar í björgunarsveitinni Brák héldu norður í Húnavatnssýslu í gær til þess að aðstoða félaga sína við að sinna verkefnum sem safnast hafði upp vegna óveðursins.