Reykhólahreppur

Ákærður fyrir að aka stolnum bíl út af skakkur og dauðadrukkinn
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot með því að aka stolnum bíl undir miklum áhrifum áfengis og kannabiss.

Býður út næstsíðasta áfanga vegagerðar í Gufudalssveit
Vegagerðin hefur boðið út smíði tveggja steyptra brúa í Gufudalssveit, yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Gert er ráð fyrir verklokum eftir eitt og hálft ár, haustið 2026.

Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann
Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti.

Sex verslanir fá sautján milljónir í ríkisstyrk
Sex verslanir í dreifbýli fá úthlutað samtals sautján milljónum í verkefnastyrk frá hinu opinbera sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022 til 2036.

Krefst undanbragðalausra skýringa á því hversvegna Vestfirðir voru snuðaðir
Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður Vestfjarða og Norðvesturkjördæmis, krefst þess að samgönguyfirvöld skýri það undanbragðalaust fyrir komandi alþingiskosningar hversvegna vegaframkvæmdir í Gufudalssveit og á Dynjandisheiði stöðvuðust og hvort fjármunir, sem Alþingi hafði ráðstafað í verkin, hafi verið fluttir í Hornafjarðarfljót.

Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg
„Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri.

Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá
„Þetta er fyrsta steypan hér við Fjarðarhornsá í Kollafirði. Brúin verður vonandi komin í gagnið 1. desember,“ segir Páll Halldór Björgúlfsson, verkefnastjóri framkvæmdarinnar við brúna.

Þarf stórslys til ...
... þess að æðstu embættismenn ríkisfyrirtækis með aðsetur í Suðhrauni, Garðabæ átti sig á stórhættulegu ástandi Vestfjarðarvegar frá Bröttubrekku til Þorskafjarðar?

Hjalti Einarsson, stofnandi VHE, er látinn
Hjalti Einarsson vélvirki er látinn, 85 ára að aldri. Hjalti er kunnastur fyrir að hafa byggt upp VHE, eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins. Þá varð hann fyrir þeirri lífsreynslu níu ára gamall á bænum Reyðará á Siglunesi að vera lykilvitni í rannsókn mannskæðasta flugslyss á Íslandi en hann er talinn vera sá síðasti sem sá á lofti flugvélina sem fórst í Héðinsfirði með 25 manns árið 1947.

Tæplega fimmtungur þjóðarinnar erlendir ríkisborgarar
Tæplega fimmtungur landsmanna sem búsettur er hér á landi er af erlendu bergi brotinn. Þetta sýna nýjar tölur Þjóðskrár sem miðast við 1. desember síðastliðinn.

Gleðjast yfir því að þurfa ekki í hálkuna á Hjallahálsi
Vegfarendur sem ekið hafa nýja veginn um Teigsskóg eru byrjaðir að lýsa reynslu sinni og birta myndir á samfélagsmiðlum. Vegurinn var opnaður umferð í gær, átján mánuðum eftir að Vegagerðin og Borgarverk undirrituðu samning um vegagerðina, sem sannarlega má telja einhverja þá umdeildustu hérlendis, en áður hafði verið deilt hart um vegstæðið í tvo áratugi.

Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg
Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð.

Nýr Baldur siglir til Stykkishólms í dag
Nýja Breiðafjarðarferjan Baldur er að verða tilbúin í áætlunarsiglingar milli Stykkishólms og Brjánslækjar um Flatey. Komu skipsins verður fagnað með athöfn í Stykkishólmi á morgun.

Vegfarendum býðst að aka um Teigsskóg í mánuðinum
Bundið slitlag er núna komið á allan vegarkaflann um hinn umdeilda Teigsskóg í Þorskafirði. Vegagerðin stefnir að því að hleypa umferð á veginn síðar í þessum mánuði.

Siglingatími yfir Breiðafjörð styttist með nýjum Baldri
Siglingatími yfir Breiðafjörð styttist með nýjum Baldri, sem áformað er að hefji áætlunarsiglingar milli Stykkishólms og Brjánslækjar í næstu viku. Ferjan fór í reynslusiglingu síðdegis eftir endurbætur í Hafnarfirði.

Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú
Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra.

Boðað til vígsluhátíðar brúar yfir Þorskafjörð
Vegagerðin hefur boðað til vígsluathafnar í Þorskafirði í Reykhólasveit klukkan 14 á morgun, miðvikudag 25. október. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps, munu þá formlega opna nýju Þorskafjarðarbrúna með því að klippa á borða.

Lægsta boð í Vestfjarðaveg langt undir kostnaðaráætlun
Tilboð í næsta áfanga Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, vegfyllingu yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag og reyndist lægsta boð aðeins 74 prósent af kostnaðaráætlun. Brúin yfir Þorskafjörð verður tekin í notkun síðar í þessum mánuði, átta mánuðum á undan áætlun.

Nýja brúin yfir Þorskafjörð opnuð síðar í mánuðinum
Vegagerðin stefnir að því að nýja brúin yfir Þorskafjörð verði opnuð umferð miðvikudaginn 25. október næstkomandi, eftir tæpar tvær vikur. Það er átta mánuðum á undan áætlun en útboðsskilmálar gerðu ráð fyrir verklokum þann 30. júní á næsta ári.

Allt stefndi í björgun en eftir bátsbilun var háhyrningurinn aflífaður
Aflífa þurfti háhyrning eftir að björgunaraðgerðir í Gilsfirði, sem framan af gengu vonum framar, mistókust þegar bátur sem átti að toga dýrið út bilaði. Sérgreinadýralæknir hjá MAST segir að ekki hafi verið hægt að leggja meira á dýrið í ljósi þess að það hafði beðið í fimm daga.

Gátu ekki hjálpað háhyrningnum í kvöld
Ekki reyndist unnt að koma háhyrningi sem lokast hefur innan brúar í Gilsfirði út fyrir brúna. Stefnt hafði verið að því að losa háhyrninginn í kvöld, á háflóði.

Undirbúningur fyrir björgun háhyrningsins á lokametrunum
Undirbúningur fyrir björgun ungs háhyrnings sem er strandaglópur innan Gilsfjarðarbrúar er á lokametrunum. Þegar flæðir að í kvöld verður gerð tilraun til að fleyta dýrinu út fjörðinn.

Stefna á að hjálpa öðrum háhyrningi úr Gilsfirði á morgun
Háhyrningur hefur setið fastur í Gilsfirði í nokkra daga, en stefnt er að því að flytja hann úr firðinum og sleppa honum lausum á morgun. Ekki er um að ræða sama háhyrning og festist í firðinum um liðna helgi, þótt líklegt sé að dýrin tilheyri sama hópi.

„Tók strauið og rauk út fjörðinn um leið og hann komst i dýpri sjó“
Fjölmennu liði viðbragðsaðila tókst um miðnætti að bjarga háhyrningi sem hafði legið strandaður í fjöru við Gilsfjörð frá því á fimmtudag. Í fyrstu var talið að háhyrningurinn væri dauður en þegar hann komst á flot rauk hann út fjörðinn og kallaði á hópinn sinn.

Reyna að bjarga háhyrningnum
Reynt verður að bjarga ungum háhyrningi sem strandaði í Gilsfirði í dag. Stefnt er að því að koma honum út í sjó í kvöld.

Vegagerðin sem umbreytir samgöngum á Vestfjörðum
Endurbætur þjóðveganna um Dynjandisheiði og Gufudalssveit eru taldar umbreyta samgöngumynstri innan Vestfjarða. Vegagerðin sér núna fram á að lokaáfangarnir klárist á næstu þremur til fjórum árum.

Djúpadalsbóndi segir Teigsskóg snjóakistu
Bóndinn sem býr næst Teigsskógi varar við miklum snjóþyngslum þar og mælist til að Hjallahálsi verði haldið sem vetrarvegi. Í Vesturbyggð óttast menn að þurfa að aka um Ódrjúgsháls í nokkur ár enn og krefst bæjarstjórinn þess að framkvæmdum verði ekki seinkað.

Eins og vegurinn detti af himnum ofan í Teigsskóg
Verktakinn sem er að leggja veginn umdeilda um Teigsskóg stefnir að því að hann verði opnaður umferð í lok októbermánaðar. Hann segir vel hafa tekist að varðveita skóginn en athygli vekur að ekki er gert ráð fyrir neinum áningarstað fyrir vegfarendur.

Þorskafjarðarbrú klárast hálfu ári á undan áætlun
Horfur eru á að nýja brúin yfir Þorskafjörð verði opnuð umferð meira en hálfu ári á undan áætlun. Í dag var byrjað að leggja bundið slitlag á vegina sem tengja brúna við vegakerfið.

Bundið slitlag lagt á nýja þjóðveginn um Teigsskóg
Klæðningarflokkur frá Borgarverki hóf í dag að leggja bundið slitlag á nýja þjóðveginn um Teigsskóg í utanverðum Þorskafirði. Stefnt er að því að vegurinn umdeildi verði opnaður umferð í lok októbermánaðar.