
Vinnumarkaður

Kaffiboðið í Karphúsinu
Styrkur íslensks vinnumarkaðar endurspeglast í kröftugu og fjölbreyttu atvinnulífi, og lífskjörum sem eru á við það besta gerist í heiminum.

Öllum starfsmönnum Menntamálastofnunar sagt upp
Öllum starfsmönnum Menntamálastofnunar var sagt upp í morgun. Alls störfuðu 46 hjá stofnuninni. Forstjóri stofnunarinnar, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, segir þetta ekki hafa komið starfsmönnum á óvart. Meiri stuðningur við skólasamfélagið verði í nýrri stofnun.

Gervigreindin gefur ráð: Svona færðu draumastarfið þitt
Að sjálfsögðu leitar Atvinnulífið í AI Chat þegar það á við og auðvitað klárum við ekki árið nema að athuga hvað gervigreindin segir okkur með starfsframann og draumastarfið.

Elsti hópurinn drekkur oftast og unga fólkið staldrar stutt við í vinnu
Uppgangskynslóðin, eða „baby boomers“ kynslóðin drekkur oftast áfengi þegar fjórar kynslóðir eru bornar saman. Unga fólkið í Z-kynslóðinni staldrar stutt við á vinnustöðum.

Styrkleiki en ekki aumingjaskapur að þora að hætta við og prófa sig áfram
„Ég man mómentið þegar himnarnir hreinlega opnuðust,“ segir Katrín Aagestad Gunnarsdóttir og skælbrosir þegar hún rifjar upp þá tilfinningu sem fylgdi að vera loksins búin að finna sína rétta hillu.

Atvinnuleitendur af erlendum uppruna með íslenskukennslu í símanum
Vinnumálastofnun hefur hafið innleiðingu á stafræna íslenskukennaranum Bara tala hjá Akademias. Fólk í atvinnuleit af erlendum uppruna, þar með talið flóttafólk, á nú kost á að fá aðgang að Bara tala í gegnum Vinnumálastofnun. Frá þessu er greint í tilkynningu.

Margföldunaráhrif: Að ráða einn alþjóðlegan sérfræðing skapar vinnustaðnum fimm sérfræðinga
„Það er talað um að einn alþjóðlegur sérfræðingur sem ráðinn er inn á íslenskan vinnustað, skapi fimm sérfræðinga,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins (SI) sem dæmi um hversu mikil verðmæti geta falist í því fyrir íslensk fyrirtæki að ráða erlenda sérfræðinga til starfa.

Sigurlín mátti sín lítils í baráttunni við RÚV
Ríkisútvarpið hefur verið sýknað af kröfu Sigurlínar Margrétar Sigurðardóttur sem flutti táknmálsfréttir í sjónvarpinu í 36 ár. Hún vildi fá staðfest að vinnusamband hennar við RÚV hefði verið launþegasamband en ekki verktakavinna. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og var afdráttarlaus.

Vöntun á erlendum sérfræðingum: Eins og hljóð og mynd fari ekki saman í ráðningum
Það er eins og hljóð og mynd fari ekki saman þegar kemur að starfsframa og atvinnumöguleikum erlendra sérfræðinga á Íslandi.

Sjötíu og níu starfsmönnum Controlant á Íslandi var sagt upp
Sjötíu og níu starfsmenn Controlant á Íslandi misstu vinnuna í hópuppsögn í nóvember. Um var að ræða einu hópuppsögnina sem tilkynnt var til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði.

Útilokar ekki að leita réttar síns: „Hafna því alfarið að hafa beitt eða hvatt til ofbeldis“
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ekki átta sig á hvers vegna forsvarsmenn Gildis lífeyrissjóðs hafi kvartað formlega undan framgöngu hans í mótmælum gagnvart stjórnendum og starfsmönnum lífeyrissjóðsins. Hann útilokar ekki að leita réttar síns vegna málsins.

Saka Ragnar um að hafa brotið gróflega gegn hagsmunum félagsfólks
Forsvarsmenn Gildis lífeyrissjóðs hafa sent formlega kvörtun á stjórn VR vegna framgöngu og hegðunar Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, gagnvart stjórnendum og starfsmönnum lífeyrissjóðsins.

Helmingi sagt upp hjá KOM og tveir eigendur keyptir út
Fjórum starfsmönnum, KOM, elsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði almannatengsla, hefur verið sagt upp störfum. Eftir uppsagnirnar starfa fjórir hjá fyrirtækinu. Einn þriggja eigenda félagsins stefnir að því kaupa hina tvo út úr félaginu.

„Lúmskar“ skattbreytingar hafa áhrif á jólagjafir
Lögmaður segir takmörk á því hversu mikið má hafa gaman, allavega í augum skattyfirvalda. Nýlegar breytingar á skattmati Ríkisskattstjóra gera það að verkum að hámarksfjárhæð viðburða á vegum fyrirtækis og gjafa samanlagt nemur 163.000 krónum á hvern starfsmann. Þá verður ekki lengur hægt að gefa bankakort með inneign skattfrjálst.

Minni afköst á vinnustöðum í desember
Rannsóknir sýna að það hægir á hjá flestum vinnustöðum í desember. Væntanlega að undanskildum verslunum eða þjónustufyrirtækjum þar sem viðskiptavinum fjölgar í aðdraganda jóla.

Íslendingar vinna einna minnst en þéna mest
Íslendingar vinna einna minnst en þéna mest á mánuði, talsvert meira borið saman við aðrar Norðurlandaþjóðir, samkvæmt gögnum frá OECD. „Við getum varðveitt þessa stöðu svo lengi sem verðmætasköpun stendur undir henni,“ segir aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Skoða að taka „stórt skref aftur á bak“ og bíða átekta
Samninganefnd Alþýðusambands Íslands kom saman til fundar í morgun til að ræða hvort gera eigi hlé á samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins vegna þeirrar óvissu sem miklar gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga skapi í tengslum við nýja kjarasamninga.

Flestir sem missa vinnuna á Íslandi
Flestir þeirra áttatíu starfsmanna Controlant, sem var tilkynnt í morgun að yrði sagt upp störfum, starfa í starfsstöð félagsins á Íslandi. Forstjóri félagsins segir hagræðinguna vegna samdráttar í Covid-tengdum verkefnum fyrirtækisins.

Áttatíu missa vinnuna hjá Controlant
Áttatíu misstu vinnuna hjá Controlant í hópuppsögn í morgun. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn fyrirtækisins það sem af er degi.

Fjöldauppsagnir hjá Controlant
Að minnsta kosti tíu starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Controlant. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Fær 24 milljónir vegna ólögmætrar uppsagnar í ráðuneyti
Landsréttur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða fyrrverandi skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu 23,6 milljónir króna í skaða- og miskbætur vegna ólögmætrar niðurlagningar ráðherra á embætti hans.

Vonar að frumvarpið skili fullum launum til Grindvíkinga
Frumvarp félagsmálaráðherra um launagreiðslur til Grindvíkinga mun gilda frá 11. nóvember, verði það að lögum. Þar er kveðið á um hámarkgreiðslu upp á 633 þúsund krónur til atvinnurekenda, fyrir hvern starfsmann. Ráðherra segist þó gera ráð fyrir því að frumvarpið tryggi full laun til þeirra sem hafa hærri tekjur en hámarkið sem kveðið er á um.

Vísa frá kæru Hreyfils í Hopp-máli
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur vísað kæru leigubílastöðvarinnar Hreyfils á hendur Samkeppniseftirlitinu frá. Kæra Hreyfils sneri að bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins að Hreyfli sé óheimilt að banna eða hamla leigubílstjórum sem eru í þjónustu Hreyfils, að nýta sér jafnframt þjónustu annarra leigubifreiðastöðva.

Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar
„Ég myndi segja að verkaskiptingin okkar heima sé góð og maðurinn minn meira að segja oft að taka meira þegar að ég er að vinna svona mikið. En þriðja vaktin felur svo margt í sér,“ segir Arna Harðadóttir framkvæmdastjóri Helix.

Stuðningur vegna launa fólks sem starfar í Grindavík
Grindvíkingar takast nú á við nýjan veruleika fjarri heimilum sínum. Verkefnin fram undan eru mörg og snúa meðal annars að húsnæðismálum, skólagöngu barna, afkomu fólks og sálrænum stuðningi. Sveitarstjórn Grindavíkur er leiðandi í að halda utan um málefni íbúa sinna og nýtur stuðnings og aðstoðar annarra sveitarfélaga, ríkisins og ríkisstjórnarinnar.

Faraldur ofbeldis og áreitni
Það er þyngra en tárum taki að skoða niðurstöður úr nýlegri könnun sem VR lét gera meðal félagsfólks. Þar sögðust 54% svarenda hafa orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í starfi. Verst er staðan hjá konum á aldrinum 25-34 ára þar sem 67% segjast hafa orðið fyrir áreitni eða ofbeldi.

Taldi Skattinn aftur hafa gengið fram hjá sér vegna kynferðis
Skatturinn braut ekki gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna þegar kona var ráðin í starf sérfræðings á Eftirlis-og rannsóknasviði hjá stofnuninni. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála. Um er að ræða í annað sinn á þremur árum sem maðurinn kærir ráðningu embættisins til nefndarinnar.

Mjúk lending í karlaríkinu á Keflavíkurflugvelli
Í áratugi var það þannig að karlar réðu lögum og lofum hér við viðhald flugvéla hjá Icelandair. Það er nú svosem þannig enn þá í dag en nú eru þeir að minnsta kosti ekki aleinir um hituna. Konur eru í auknum mæli að sækja inn á svið flugvirkjunar og nú er svo komið að aldrei hafa fleiri kvenkyns flugvirkjar verið starfandi hjá félaginu.

Bætur afturvirkar og óþarfi að sækja um strax
Í ljósi aðstæðna munu umsóknir um atvinnuleysisbætur gilda frá því að almannavarnir ákváðu að rýma Grindavík. Það er því ekki nauðsynlegt að sækja strax um atvinnuleysisbætur meðan óvissa er til staðar.

Bein útsending: Réttlát umskipti á vinnumarkaði
Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á störf og lífskjör launafólks og munu markmið stjórnvalda um réttlát umskipti nást?