Vinnumarkaður

Meirihluti Eflingarfólks var hlynntur verkfalli í haust
Tveir af hverjum þremur félagsmönnum Eflingar voru síðastliðið haust hlynntir því að fara í verkfallsaðgerðir til að ná fram betri kjörum. Fjórir af hverjum fimm sem tóku afstöðu reyndust hlynntir. Fram undan er könnun meðal félagsfólks hvort fara eigi í verkfall eftir að Efling sleit samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins í dag.

Tilboð Eflingar óaðgengilegt
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að tilboð Eflingar til samtakanna um gerð kjarasamnings sé óaðgengilegt og að því hafi verið lýst yfir á fundi í kjaradeilunni í húsnæði ríkissáttasemjara í dag. Himinn og haf sé á milli tilboðsins og þeirra kjarasamninga sem þegar hafi verið gerðir. Hann er hugsi yfir því að starfsmenn á opinberum vinnumarkaði séu í samninganefnd Eflingar.

Stefnir í verkfall eftir að Efling sleit viðræðum
Efling hefur ákveðið að slíta viðræðum. Þetta staðfestir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður félagsins sem gekk út af fundi í húsakynnum ríkissáttasemjara rétt í þessu.

Frumvarp um lágmarksþjónustu í verkfallsaðgerðum lagt fram í breska þinginu
Breska ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp sem er ætlað að tryggja lágmarksþjónustu í verkfallsaðgerðum. Frumvarpið er afar umdeilt og meira að segja sagt skaðlegt í skýrslu stjórnvalda um möguleg áhrif þess.

Jálisti - góð breyting á lögum um atvinnuréttindi útlendinga
Til að Ísland tapi ekki í samkeppni þurfa nýsköpunar- og tæknifyrirtækin okkar að geta ráðið til sín fólk. Lög um atvinnuréttindi útlendinga eru of stíf og hindra okkur í þessari samkeppni. Í rúm fimm ár hefur því ítrekað verið lofað að til standi að auðvelda ráðningar erlendra sérfræðinga en lítið gerst hingað til.

Sakar Eflingu um að ala á klofningi milli verkafólks eftir búsetu
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags, sakar forystufólk Eflingar um að ala á klofningu á milli verkafólks á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Þetta sé gert með því að halda því fram að félagsmenn Eflingar þurfi hærri laun sökum þess að þeir starfi á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að svo virðist sem að Efling stefni í að verða eyland í íslenskri verkalýðsbaráttu.

Leikhús fáránleikans
Það hefur ekki verið auðvelt að sitja undir gegndarlausum árásum forystumanna Eflingar undanfarnar vikur, þar sem þeir hafa haldið uppi óskiljanlegum áróðri gegn nýlegum kjarasamningi Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, auk þess að tala niður formann SGS og aðildarfélög sambandsins.

Hlustar ekki á „hótanir“ Halldórs Benjamíns
Formaður Eflingar segir að félagið muni slíta kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins og hefja verkfallsundirbúning, fallist samtökin ekki á að hafa nýtt tilboð Eflingar til grundvallar í frekari viðræðum. Hún kveðst þó bjartsýn á að ná góðum samningi fyrir Eflingarfólk og gefur lítið fyrir „hótanir“ framkvæmdastjóra SA um brottfall afturvirkni.

Segja nýjasta útspilið koma verulega til móts við SA
Tilboð Eflingar í kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins sem lagt var fram í gær kemur verulega til móts við SA miðað við upphaflega kröfugerð stéttarfélagsins og fyrri tilboð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu.

Segir Eflingu ekki hlusta á SA sem muni ekki draga fólk í dilka
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að samtökin muni ekki draga fólk í dilka eftir búsetu í yfirstandandi kjaraviðræðum. Hann segir Eflingu ekki hafa viljað hlusta, og segir að afturvirkni í tilboði SA til Eflingar verði ekki í boði eftir 11. janúar.

Um 500 manns óskast til starfa á Egilsstöðum og næsta nágrenni
Um fimm hundruð manns vantar nú til starfa við ýmis störf á Egilsstöðum og næsta nágrenni. En það sem verra er, það er ekkert húsnæði til fyrir það fólk, sem vildi ráða sig til starfa á svæðinu.

Á döfinni í fyrra: Vinnan okkar, verkefnin og líðanin
Vegvísir í umfjöllun Atvinnulífsins á Vísi er eftirfarandi skilgreining: „Atvinnulíf fjallar á fjölbreyttan hátt um stjórnun, mannauðsmál, fyrirtækjamenningu, jafnvægi heimilis og vinnu og fleira.“

Eigum að horfa meira til framkvæmdastjóraskipta og nýrra aðila í stjórn
„Ég kalla eftir samstarfi við háskólasamfélagið eða aðra rannsóknaraðila því hér er mikið til af raungögnum umfram það sem þekkist víða erlendis og því væri hægt að rannsaka það frá ýmsum hliðum hvort einhver munur er á rekstri fyrirtækja eftir því hvort framkvæmdastjóri er karl eða kona,“ segir Dr. Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður Greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo.

„Gífurlega væn gulrót“ að flýta launahækkunum
Samtök á opinberum vinnumarkaði funda í dag með samninganefnd ríkisins um nýja kjarasamninga. Formaður BHM segir félagsmenn óþreyjufulla og vill undirrita samning sem fyrst. Þannig megi kannski flýta launahækkunum til að vega á móti miklum kjarabruna.

Sólveig Anna reiknar með að Efling geri gagntilboð
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að samninganefnd stéttarfélagsins muni nú leggjast yfir samningstilboð Samtaka atvinnulífsins um gerð nýs kjarasamnings sem lagt var fram í dag. Hún reiknar með því að SA verði gert gagntilboð.

Lögðu fram samningstilboð til Eflingar
Samtök atvinnulífsins hafa gert samninganefnd Eflingar tilboð um gerð kjarasamningsins, sem sé efnislega samhljóða kjarasamningnum sem gerður var nýverið við Starfsgreinasambandið. Samtökin segjast tilbúin til þess að ræða aðlögun samningsins að stöðu félagsmanna Eflingar, þó innan kostnaðarramma og meginlína samningsins sem gerður var við Starfsgreinasambandið.

Sex hópuppsagnir á nýliðnu ári
Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum desembermánuði. Tilkynnt var um sex hópuppsagnir á árinu 2022 þar sem 229 var sagt upp störfum.

Efling og Samtök atvinnulífsins funda klukkan 13 í dag
Samninganefndir Eflingar og Samtaka atvinnulífsins koma saman til fundar í húsakynnum Ríksisáttasemjara klukkan 13 í dag.

Hundruð karlmanna forstjórar en sautján ár á milli kvenráðninga
„Sautján ár liðu á milli ráðninga á konu í forstjórastól í skráðu félagi á Íslandi. Á sama tíma hafa karlmenn sem gegnt hafa stöðu forstjóra í skráðum félögum skipta hundruðum,“ segir Ásta Dís Óladóttir dósent við Háskóla Íslands og formaður Jafnvægisvogar FKA en nýlega birti hún, auk Þóru H. Christiansen, Sigrúnar Gunnarsdóttur og Erlu S. Kristjánsdóttur, grein í TVE-Tímariti um viðskipti og efnahagsmál þar sem er rýnt er í skýringar á því hvers vegna þróun á ráðningum kvenstjórnenda í forstjórastöður er jafn hægfara og raun ber vitni.

3000 ungmenni hvorki í skóla né vinnu á aldrinum 16-24 ára á höfuðborgarsvæðinu?
Þetta er ekki gamlar tölur heldur síðan í desember 2022 og eru fengnar frá geðræktar hóp sem er á vegum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Ragnar Erling kominn með vinnu og horfir fram á veginn
Ragnar Erling Hermannsson hefur látið að sér kveða í umræðunni um málefni heimilislausra undanfarin misseri. Hann fékk vinnu á dögunum og á nú sér þann draum heitastan að eignast heimili.

Fögnum nýju ári, kveðjum þreytta frasa
Varla var blekið þornað á nýgerðum kjarasamningum á almennum markaði nú fyrir jólin þegar forystufólk í atvinnulífi, ritstjórar dagblaða og alþingismenn hófu hefðbundna áróðursherferð gegn „hinu opinbera“. Inntaki hennar mætti lýsa svo: Hagkerfinu er ógnað vegna komandi kjarasamninga á opinberum markaði og sérstaklega í ljósi óhóflegs launastigs opinberra starfsmanna. Opinber rekstur er dragbítur á verðmætasköpun og vegur að samkeppnishæfni fyrirtækja á almennum markaði. Fyrirtæki og starfsfólk á almennum vinnumarkaði skapa verðmæti fyrir samfélagið, annað en starfsfólk á opinberum vinnumarkaði.

Brú yfir óvissutíma
Það blasir við hverjum sem sjá vill að Samtök atvinnulífsins geta ekki samið um aðrar og meiri launahækkanir en felast í þegar gerðum samningum. Í því myndi felast trúnaðarbrot gagnvart verkalýðsfélögunum sem þegar hafa samið og starfa um allt land en ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Vonast er til að verkalýðsfélög sem enn hafa ekki samið muni viðurkenna þessa óumflýjanlegu staðreynd.

Frí Hagstofunnar kosti skattgreiðendur hátt í 25 milljónir króna
Frí starfsfólks Hagstofunnar milli jóla og nýárs kostar skattgreiðendur milli 20 og 25 milljónir króna.

Fundi Eflingar og SA frestað fram á nýtt ár
Fyrirhuguðum fundi samninganefnda Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, sem fara átti fram í dag, hefur verið frestað fram á næsta ár. Þess í stað mun vinnufundur minni hóps fara fram á morgun.

„Það var ekki mikill hljómgrunnur fyrir okkar sjónarmiðum“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að Samtök atvinnulífsins hafi ekki fallist á það tilboð sem Efling hafði gert þeim. Það hafi verið niðurstaða fundarins sem fram fór í húsnæði ríkissáttasemjara í morgun. „Það var ekki mikill hljómgrunnur fyrir okkar sjónarmiðum,“ segir Sólveig Anna.

Tilboð Eflingar gæti aldrei orðið grundvöllur kjarasamnings
Framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins segir að tilboð sem Efling kynnti í dag sé ekki í neinu samræmi við þá línu sem lögð hefur verið í kjaraviðræðum undanfarið. Það gæti aldrei orðið grundvöllur kjarasamninga.

Sólveig Anna segir Eflingu hafa komið til móts við SA en vill meiri hækkanir
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að félagið hafi komið til móts við Samtök atvinnulífsins með nýju samningstilboði sem kynnt var í gær. Hún segir þó alveg ljóst að verka- og láglaunafólk á höfuðborgarsvæðinu þurfi meiri hækkanir en samið hafi verið um í samningum við Starfsgreinasambandið.

Hvernig líður fólki í orkugeiranum?
Hlutverk félagsins Konur í orkumálum (KÍO) er að stuðla að jafnrétti í orkumálum. Eitt af okkar verkfærum til þess að geta haft jákvæð áhrif á jafnréttismenningu fyrir öll kyn er könnun um líðan starfsfólks í orku- og veitugeiranum.

Vikulangt jólafrí Hagstofunnar skjóti skökku við
Hagstofa Íslands hefur ákveðið að veita starfsmönnum sínum aukalega vikulangt jólafrí. Hagstofan verður lokuð á milli jóla og nýárs. Hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins segir fríið koma spánskt fyrir sjónir í ljósi aðstæðna á opinberum vinnumarkaði.