Kynferðisofbeldi

Sýknaður af nauðgun eftir tveggja ára dóm í héraði
Landsréttur hefur sýknað karlmann á þrítugsaldri af ákæru fyrir nauðgun með því að hafa samræði við unga konu sem gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunarástands og svefndrunga.

Ákærður fyrir árásir á kærustu til viðbótar við vændi og nauðgunartilraun
Karlmaður sem sætir ákæru fyrir kaup á vændi, tilraun til nauðgunar og sérstaklega hættulega líkamsárás í júní í fyrra er sömuleiðis sakaður um ofbeldi í nánu sambandi á þessu ári.

Smáskilaboð vógu þungt í nauðgunardómi sem var mildaður
Landsréttur hefur mildað fangelsisdóm sem karlmaður á þrítugsaldri hlaut á síðasta ári fyrir að hafa nauðgað vinkonu sinni úr tveimur árum niður í 21 mánuð.

Sagður hafa gengið í skrokk á konu eftir endurtekin vændiskaup
Karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ákærður fyrir að tilraun til nauðgunar og sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu í júní 2019. Karlmaðurinn hafði í tvígang sömu nótt greitt konunni fyrir vændi.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni á þjóðhátíð
Karlmaður á sjötugsaldri var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa áreitt stúlku sem þá var átján ára gömul á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina árið 2018.

Tímamót með byggingu nýs neyðarathvarfs fyrir konur og börn
Það var mjög ánægjulegt að skrifa í vikunni undir samning við Samtök um kvennaathvarf um 100 milljón króna fjárveitingu sem ætlað er að styðja við byggingu nýs neyðarathvarfs í Reykjavík og styrkja þjónustu athvarfsins vegna áhrifa kórónaveirunnar.

Dómgreindarbrestur saksóknara en ekki lögbrot í máli Epstein á Flórída
Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að alríkissaksóknarar sem gerðu umdeilda sátt sem kom Jeffrey Epstein hjá ákæru árið 2008 hafi ekki brotið lög. Þeir hafi aftur á móti sýnt af sér „lélega dómgreind“.

Páfi heitir því að uppræta misnotkun innan kirkjunnar
Frans páfi hét því að uppræta kynferðislega misnotkun innan veggja kaþólsku kirkjunnar í kjölfar umfangsmikillar skýrslu um kynferðisbrot bandarísks fyrrverandi kardinála sem var birt í gær.

Ljótar lýsingar í nauðgunarmáli á skemmtistað í Reykjavík
Karlmaður er sakaður um að hafa á kvennasalerni skemmtistaðar í Reykjavík í febrúar í fyrra nauðgað konu.

Páfar vissu af ásökunum á hendur kardinála í áratugi
Bandarískur fyrrverandi kardináli hlaut framgang innan kaþólsku kirkjunnar þrátt fyrir að páfum, kardinálum og æðstu mönnum kirkjunnar vestanhafs hefði verið kunnugt um ásakanir um kynferðislega misnotkun á hendur honum.

Fróaði sér fyrir utan sólbaðsstofu
Karlmaður hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot með því að hafa berað og handleikið kynfæri sín í vitna viðurvist, fyrir utan sólbaðsstofu í júlí á síðasta ári.

Börn með sjálfsvígshugsanir vegna nektarmynda
Dæmi eru um að börn fái sjálfsvígshuganir eftir að nektarmynd af þeim fer í dreifingu á netinu. Verkefnastjóri Hjálparsíma Rauða krossins segir nokkuð algengt að börn í slíkri stöðu hafi samband.

Skaðabætur frá borginni færi honum ekki barnsárin aftur
Reykjavíkurborg hefur hafið samningaviðræður um skaðabætur við ungan mann sem varð fyrir grófu kynferðisofbeldi af hálfu stuðningsfulltrúa sem starfaði hjá Barnavernd Reykjavíkur. Ungi maðurinn fagnar því að þurfa ekki að ganga í gegnum annað dómsmál.

Greiðir hálfa milljóna í bætur fyrir kynferðislega áreitni á Hressó
44 ára karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða konu sem hann áreitti kynferðislega hálfa milljón króna í miskabætur. Maðurinn hafði áður verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar.

Íslendingur á flótta grunaður um barnaníð handtekinn á Spáni
Lögreglan á Spáni hefur handtekið íslenskan karlmann búsettan í Danmörku sem grunaður er um að hafa misnotað dóttur sína kynferðislega.

Sýknaður af nauðgun á sambýliskonu sinni
Landsréttur sýknaði í dag mann sem var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa nauðgað þáverandi sambýliskonu sinni með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung.

Þóttist ætla að kaupa vændi af kærustunni en réðst svo á hana með hótunum
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Óttar Gunnarsson í tveggja ára fangelsi fyrir brot í nánu sambandi, hótanir og brot á blygðunarsemi gegn fyrrverandi kærustu sinni árið 2017.

Opna rafræna allsherjargátt vegna ofbeldis
Sameiginleg rafræn gátt fyrir þolendur, gerendur og aðstandendur ofbeldis var formlega tekin í notkun í dag.

Tók upp samfarir í heimildarleysi
Karlmaður nokkur hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið gegn blygðunarsemi konu aðfaranótt laugardagsins 29. desember 2018 á heimili hans.

Dóms að vænta í grófu nauðgunarmáli
Aðalmeðferð lauk í síðustu viku í grófu kynferðisbrotamáli í Héraðsdómi Reykjavíkur. Meint brot átti sér stað í ágúst 2008 í hótelherbergi utan landsteinanna.

Heldur áfram að brjóta á konum á Vestfjörðum
Karlmaður á Vestfjörðum hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa gripið tvisvar utanklæða um brjóst konu á skemmtistað á Ísafirði. Þá þarf hann að greiða konunni 200 þúsund krónur í miskabætur.

Sökuð um að smána fyrrverandi eiginmann sinn
Kona nokkur hefur verið ákærð fyrir hótanir í garð fyrrverandi eiginmanns síns og brot gegn blygðunarsemi hans með því að senda öðru fólki myndir af eiginmanninum fáklæddum og í kynferðislegum athöfnum.

Staðfesti fimm ára dóm fyrir gróft ofbeldi og nauðgun
Landsréttur staðfesti í dag fimm ára fangelsisdóm yfir karlmanni sem beitti sambýliskonu sína grófu ofbeldi og nauðgaði í íbúðargámi. Maðurinn hefur áður hlotið fangelsisdóm fyrir að beita sömu konu ofbeldi.

Brotaþoli í nauðgunarmáli nuddara fær að bera vitni í gegnum Teams
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að kona búsett í Bandaríkjunum fái að bera vitni í gegnum fjarfundarbúnað í dómsmáli gegn nuddara sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum. Konan sem fær að bera vitni er brotaþoli í málinu.

60 daga fangelsi fyrir að hafa slegið á rass sjö ára drengja
Karlmaður hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ítrekað áreitt tvo sjö ára drengi kynferðislega í ótilgreindri sundlaug á höfuðborgarsvæðinu.

Kynferðisbrotamál á hendur starfsmanni frístundaheimilis fellt niður
Mál á hendur starfsmanni frístundaheimilis sem grunaður var um að hafa brotið á tveimur börnum í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði hefur verið fellt niður.

Samþykki er grundvallaratriði
„Ég tók viðtöl við lögreglufólk, ákærendur og fólk sem styður við brotaþola í svona málum á Íslandi. Ég fór líka til Haag í Hollandi og tók viðtöl við sérfræðinga hjá Europol sem sjá um mál sem varða kynferðislegt ofbeldi í gegnum netið.“ Þetta segir María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur í viðtali við Vísi.

Uppeldið hafði meiri áhrif en kynferðisofbeldið: „Ég þráði að vera elskuð“
Anna Katrín Snorradóttir tók þá ákvörðun á fullorðinsárum að slíta öll tengsl við foreldra sína. Hún segir að þessi ákvörðun hafi vakið undrun sumra og jafnvel hneykslan en hún hvetur fólk til þess að hætta meðvirkni með foreldrum sem standa sig ekki í stykkinu.

Dómur yfir manni sem braut gegn eiginkonu og syni þyngdur
Hæstiréttur þyngdi í dag fangelsisdóm yfir karlmanni á fertugsaldri sem var sakfelldur fyrir að nauðga eiginkonu sinni og brjóta gegn syni sínum.

Óttaðist að mæta nauðgara sínum á fæðingardeildinni
Guðlaug Marín Gunnarsdóttir var greind með áfallastreituröskun, kvíða og þunglyndi eftir að henni var nauðgað á Akranesi 2014. Guðlaug segir að hún væri ekki á sama stað í dag ef hún hefði ekki leitað til sálfræðings.