Umboðsmaður Alþingis
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Umbi slær á putta stjórnar Miðstöðvar íslenskra bókmennta Nýtt álit umboðsmanns Alþingis hlýtur að setja styrkveitingar á Íslandi í uppnám. Í álitinu kemur fram að gögn skorti sem skýri hvers vegna þessi fær styrk og annar ekki. Innlent 1.6.2022 11:57
Páll Vilhjálmsson fór bónleiður til búðar frá umboðsmanni Hinn umdeildi Páll Vilhjálmsson, kennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og bloggari, sendi umboðsmanni Alþingis erindi þar sem hann taldi fyrirliggjandi að Kristinn Þorsteinsson skólameistari hafi reist tjáningarfrelsi sínu skorður. Umboðsmaður tekur ekki undir það með Páli. Innlent 11.5.2022 09:34
Fár í Flensborg vegna nýskipaðs skólameistara Gríðarleg ólga er nú innan veggja Flensborgarskólans í Hafnarfirði en spjótin beinast að nýskipuðum skólameistara, Erlu Sigríði Ragnarsdóttur. Nemendur finna henni flest til foráttu og segja samstarf við hana afar erfitt. Innlent 6.5.2022 15:58
Umboðsmaður Alþingis ætlar ekki að skoða söluna á Íslandsbanka Umboðsmaður Alþingis hyggst ekki skoða sölu á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka að svo stöddu en embættinu hafa borist þrjár kvartanir vegna bankasölunnar. Umboðsmaður telur ekki skilyrði til þess að fjalla efnislega um þær kvartanir eða taka málefni tengd sölunni upp að eigin frumkvæði að svo stöddu. Innlent 3.5.2022 10:56
Hafi farið eftir leiðbeiningum við ólögmæta skipun ráðuneytisstjóra Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra segist hafa farið eftir leiðbeiningum í minnisblaði vegna verklags við breytingar á skipulagi Stjórnarráðs Íslands þegar hún setti Ásdísi Höllu Bragadóttur sem ráðuneytisstjóra til þriggja mánaða án auglýsingar. Umboðsmaður Alþingis segir ráðninguna hafa verið ólögmæta. Innlent 4.3.2022 19:02
Áslaug Arna braut lög með ráðningu Ásdísar Höllu Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var óheimilt að setja Ásdísi Höllu Bragadóttur sem ráðuneytisstjóra til þriggja mánaða án auglýsingar. Innlent 4.3.2022 12:56
Svarar umboðsmanni um setningu ráðuneytisstjóra Setning Ásdísar Höllu Bragadóttur í embætti ráðuneytisstjóra í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu var heimil samkvæmt lögum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu á vef ráðuneytisins. Innlent 3.2.2022 21:34
Starfsmannalög gilda um ríkisendurskoðanda, óháð þrískiptingu ríkisvaldsins Ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins taka til embættis ríkisendurskoðanda og til starfsmanna ríkisins almennt, án tillits til þess geira ríkisvalds sem þeir starfa í þjónustu fyrir. Innlent 3.2.2022 07:11
Umbi vill svör um skipan tveggja ráðuneytisstjóra Umboðsmaður Alþingis hefur sent erindi á tvö ráðuneyti þar sem hann vill fá skýringar á skipan og setningu tveggja ráðuneytisstjóra í síðasta mánuði. Innlent 1.2.2022 16:45
Fyrri hugmyndir um Janssen löngu úreltar Allar hugmyndir um góða virkni eins skammts af bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni úreltust um leið og ný afbrigði veirunnar, delta og ómíkron, tóku yfir. Gegn þeim virkar Janssen alveg eins og hin bóluefnin; einn skammtur af Janssen verndar mun minna en tveir skammtar af öðrum efnum og því ákvað heilbrigðisráðuneytið að líta það sömu augum og hin bóluefnin þegar það breytti reglum um sóttkví þríbólusettra. Innlent 15.1.2022 08:52
Umboðsmaður segir notkun gulra herbergja helst bundna við börn með sérþarfir Umboðsmaður Alþingis skrifar í bréfi sem sent var á mennta- og barnamálaráðherra á miðvikudag að notkun svokallaðra gulra herbergja í grunnskólum sé í yfirgnæfandi fjölda tilvika bundin við börn með sérþarfir. Almennir grunnskólar telji sig þá standa frammi fyrir óleysanlegum vanda gagnvart nemendum með sérþarfir og alvarlegan hegðunarvanda. Innlent 10.12.2021 15:47
Hafa beint því til grunnskóla að loka börn ekki inni í „gulum herbergjum" Umboðsmaður Alþingis telur ljóst að mál sem tengjast frelsissviptingu barna í grunnskólum séu flóknari og víðtækari en almennt hafi verið talið. Menntamálaráðherra segir að afstaða ráðuneytisins sé skýr; það sé ólöglegt að vera með sérstök herbergi í grunnskólum þar sem nemendur séu læstir inni. Innlent 11.11.2021 07:00
Umboðsmaður Alþingis kannar hvort innilokanir barna séu kerfislægur vandi Starfsmenn grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kærðir til lögreglu vegna meðferðar barns í skólanum. Umboðsmaður Alþingis er með innilokanir barna og önnur brot á réttindum þeirra til skoðunar eftir að hafa fengið fjölda ábendinga um slíkt. Innlent 2.11.2021 12:31
Undir stöðugu eftirliti og færðir í dómsal í lögreglubíl með ferðasalerni Umboðsmaður Alþingis gerir margvíslegar athugasemdir við húsnæði lögreglunnar á Suðurnesjum og verklag í tengslum við vistun þeirra sem eru grunaðir um að flytja fíkniefni innvortis hingað til lands. Dæmi er um að slíkir einstaklingur hafi dvalið í sérútbúnum fangaklefa í tuttugu daga og eru þeir undir stöðugu eftirliti við allar athafnir sínar. Innlent 28.10.2021 13:06
Óskar aftur eftir upplýsingum vegna ábendinga um að börn séu lokuð inn í sérstökum rýmum Umboðsmaður Alþingis hefur á nýjan leik óskað eftir upplýsingum frá nokkrum sveitarfélögum um aðstæður barna sem eru aðskiliðin frá samnemendum sínum í grunnskólum. Ábendingar hafi borist frá foreldrum um að börn hafi verið lokuð inni í sérstökum rýmum, jafnvel einsömul. Innlent 12.10.2021 17:44
Hreyfihamlaðir megi leggja í almenn stæði á göngugötum Handhafi stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða kvartaði til umboðsmanns Alþingis yfir ákvörðun Bílastæðasjóðs Reykjavíkur um að leggja á hann stöðubrotsgjald. Handhafinn hafði lagt bíl sínum í almennt stæði á göngugötu en Bílastæðasjóður taldi honum aðeins heimilt að leggja í sérmerkt bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða á göngugötu. Innlent 4.10.2021 17:32
Afstaða efast um lögmæti þess að fangelsa menn á reynslulausn vegna meintra brota Afstaða, félag fanga, hefur kvartað til Umboðsmanns Alþingis fyrir hönd skjólstæðings síns en málið varðar meðal annars efasemdir félagsins um lögmæti þess að senda menn á reynslulausn aftur í fangelsi vegna nýrra brota sem lögregla hefur til rannsóknar. Innlent 17.9.2021 08:11
Umboðsmaður leggur til gjafsókn fyrir foreldra Heklu Lindar Umboðsmaður Alþingi hefur lagt til við dómsmálaráðherra að foreldrum Heklu Lindar Jónsdóttur verði veitt gjafsókn í skaðabótamáli gegn íslenska ríkinu vegna andláts dóttur þeirra í kjölfar afskipta lögreglu af henni. Innlent 15.9.2021 15:01
„Þetta er grafalvarlegt mál“ Á þriðja tug kvenna hafa kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna stöðu skimana fyrir leghálskrabbameini hér á landi. Umboðsmaður segir um grafalvarlegt mál að ræða og að hann fylgist grannt með stöðu mála. Innlent 30.6.2021 14:37
Áttu „mjög góðan“ fund með umboðsmanni „Hann hefur verið að fylgjast með málinu, er að gera það og mun gera það,“ segir Erna Bjarnadóttir, forsvarsmaður Facebook-hópsins Aðför að heilsu kvenna, sem fundaði með Umboðsmanni Alþingis nú í morgun. Innlent 30.6.2021 13:05
Kærir fjölmiðlanefnd fyrir að hlíta ekki eigin reglum Hafliði Breiðfjörð, framkvæmdastjóri fótbolti.net, hefur sent inn kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna þess sem hann telur óásættanlega og mótsagnakennda framgöngu fjölmiðlanefndar. Innlent 29.6.2021 14:12
Veittu ekki viðunandi leiðbeiningar vegna heimsóknarbanns Heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis og hjúkrunarheimili veittu manni sem óskaði eftir undanþágu til að geta heimsótt eiginkonu sína á hjúkrunarheimili þegar heimsóknarbann var við lýði vegna kórónuveirufaraldursins í fyrra ekki viðunandi leiðbeiningar um rétt til að kæra ákvörðunina. Innlent 29.4.2021 19:10
Skúli Magnússon kjörinn umboðsmaður Alþingis Skúli Magnússon, dómsstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur, hefur verið kjörinn umboðsmaður Alþingis til næstu fjögurra ára. Hann var kosinn af Alþingi í morgun og tekur við embætti þann 1. maí. Innlent 26.4.2021 14:10
Afar sértæk beiðni kom á óvart Áslaug Björgvinsdóttir lögmaður ákvað að gefa ekki áfram kost á sér sem umboðsmaður Alþingis í liðinni viku eftir að henni barst tölvupóstur frá ráðgjafarnefnd forsætisnefndar um ráðninguna, þar sem hún var beðin um mjög tiltekin gögn í tengslum við umsókn sína. Innlent 17.4.2021 07:00
Sækist ekki lengur eftir starfi umboðsmanns Alþingis Áslaug Björgvinsdóttir, lögmaður og fyrrverandi héraðsdómari, hefur dregið umsókn sína um starf umboðsmanns Alþingis til baka. Segir hún í Facebook-færslu að loknu vel ígrunduðu máli hafi störf hennar, bakgrunnur og hæfni ekki verið að sem leitast var eftir fyrir starfið. Innlent 11.4.2021 18:01
Gerir ekki athugasemd við að stúlka fái að kenna sig við móður sína Settur umboðsmaður Alþingis gerir ekki athugasemdir við úrskurð dómsmálaráðuneytisins þess efnis að stúlka gæti kennt sig við móður sína í stað föður. Innlent 29.3.2021 17:39
Áslaug, Ástráður, Kjartan Bjarni og Skúli vilja verða næsti umboðsmaður Alþingis Áslaug Björgvinsdóttir lögmaður, Ástráður Haraldsson dómari, Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari og settur umboðsmaður, og Skúli Magnússon dómari hafa gefið kost á sér í embætti umboðsmanns Alþingis. Innlent 29.3.2021 13:43
Engin frumkvæðisathugun í kortunum hjá umboðsmanni Umboðsmaður Alþingis hefur enga ákvörðun tekið um að hefja frumkvæðisathugun á samskiptum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðherra á aðfangadag síðastliðinn. Málið er enn á borði ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 29.3.2021 11:44
Tryggvi hættir sem umboðsmaður Alþingis Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, hefur beðist lausnar frá embættinu sem hann hefur gegnt frá ársbyrjun 2000. Frá þessu greindi Steingrímur J. Sigúfsson forseti Alþingis, við upphaf þingfundar klukkan 13. Forsætisnefnd Alþingis hefur fallist á beiðni Tryggva. Innlent 25.2.2021 13:21
Stjórnvöld hafni of oft beiðnum umsækjenda um gögn í ráðningarmálum Stjórnvöld hér á landi eiga almennt nokkuð í land með að beita reglum um aðgang að gögnum með viðunandi hætti. Þörf er bæði á viðhorfsbreytingu og aukinni fræðslu innan stjórnsýslunnar að því er fram kemur í áliti setts umboðsmanns Alþingis. Innlent 13.1.2021 13:00