Sænski boltinn

Diljá gengin í raðir Norrköping
Nýliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, Diljá Ýr Zomers, er gengin til liðs við sænska liðið Norrköping frá Häcken.

Hinn 41 árs Zlatan gæti snúið aftur í sænska landsliðið
Janne Andersson útilokar ekki að velja hinn 41 árs Zlatan Ibrahimovic aftur í sænska landsliðið.

Nafnarnir skoruðu þrjú í stórsigri Norrköping
Nafnarnir Arnór Sigurðsson og Arnór Ingvi Traustason skoruðu þrjú af fjórum mörkum Norrköping er liðið vann öruggan 4-0 útisigur gegn IFK Gautaborg í sænsku bikarkeppninni í fótbolta í dag.

Hlín skoraði í endurkomusigri Kristianstad
Hlín Eiríksdóttir skoraði fyrra mark Íslendingaliðs Kristianstad er liðið vann 2-1 endurkomusigur gegn Linkoping í sænsku bikarkeppninni í fótbolta í dag.

Valgeir Lunddal í átta liða úrslit
Valgeir Lunddal Friðriksson lék allan leikinn er sænsku meistararnir í Häcken tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Íslendingalið Örebro og Sirius eru hins vegar fallin úr leik.

Kristianstad lagði meistarana í bikarnum
Elísabet Gunnarsdóttir stýrði liði sínu Kristianstad til sigurs í sænsku bikarkeppninni gegn Svíþjóðarmeisturum Rosengård.

Valgeir og Óli Valur í sigurliðum í sænska bikarnum
Valgeir Lunddal Friðriksson og Óli Valur Ómarsson voru báðir í byrjunarliðum sinna liða sem unnu sigra í sænsku bikarkeppninni í knattspyrnu í dag.

Adam Ingi sneri aftur eftir fjölda höfuðhögga á síðasta ári
Markvörðurinn Adam Ingi Benediktsson kom inn af bekknum þegar Gautaborg vann 3-2 sigur á Utsikten í sænsku bikarkeppninni í fótbolta. Hann hafði verið frá vegna fjölda höfuðhögga á síðasta ári.

Arnór tryggði Norrköping bikarsigur | Alfreð bjargaði stigi gegn toppliðinu
Það var nóg um að vera hjá íslenskum knattspyrnumönnum í hinum ýmsu deildum og bikarkeppnum í evrópskum fótbolta í dag. Arnór Ingvi Traustason tryggði Íslendingaliði Norrköping sigur gegn GAIS í sænska bikarnum og Alfreð Finnbogason bjargaði stigi fyrir LYngby gegn toppliði Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni.

Fyrrum forsætisráðherra Svía gæti orðið forseti sænska sambandsins
Fredrik Reinfeldt, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur verið orðaður við forsetastólinn hjá sænska knattspyrnusambandinu.

Íslensk samvinna af bestu gerð þegar Hlín opnaði markareikninginn sinn
Íslenska landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir færði sig um set í Svíþjóð í vetur og er nú farin að spila fyrir Elísabetu Gunnarsdóttur hjá Kristianstad.

Arnór flaug yfir skilti: „Ég var heppinn“
Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson segist hafa haft heppnina með sér að meiðast ekki rétt fyrir upphaf keppnistímabilsins í sænska fótboltanum, þegar honum var ýtt yfir auglýsingaskilti.

Hammarby með Hólmbert efstan á innkaupalista
Sænska knattspyrnufélagið Hammarby hefur í hyggju að fá til sín framherjann Hólmbert Aron Friðjónsson sem er samningsbundinn þýska 2. deildarfélaginu Holstein Kiel.

Hinn 16 ára Daníel Tristan fær tækifæri með aðalliði Malmö FF
Daníel Tristan Guðjohnsen hefur verið kallaður inn í aðallið Malmö FF en liðið er nú í æfingaferð á Spáni. Daníel Tristan er sonur fyrrum landsliðsmannsins Eiðs Smára Guðjohnsen.

Hákon skoraði í öruggum sigri FCK í Íslendingaslag
Hákon Arnar Haraldsson var á skotskótnum er FCK vann öruggan 4-1 sigur gegn sænska liðinu Elfsborg á Atlantic Cup mótinu sem fram fer á Algarve í Portúgal í kvöld.

Arnór í viðtali við Aftonbladet: Margir í Rússlandi sem eiga þetta ekki skilið
Arnór Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu segir í viðtali við sænska Aftonbladet að framtíð hans hjá rússneska félaginu CSKA sé óljós. Hann segir alla vilja að stríðsátökunum í Úkraínu ljúki.

Martröð Jóns Guðna ætlar engan enda að taka
Frá því skömmu eftir að Jón Guðni Fjóluson stóð í miðri vörn Íslands í leik gegn Þýskalandi, í undankeppni HM haustið 2021, hefur hann nánast ekkert getað spilað fótbolta og biðin hefur enn lengst.

Gamla liðinu hennar Glódísar Perlu hent út úr sænsku deildinni
Eskilstuna United endaði í áttunda sæti í sænsku kvennadeildinni í fótbolta á síðustu leiktíð og var 28 stigum frá fallsæti. Það breytir ekki því að liðinu hefur verið hent út úr sænsku deildinni.

Valgeir Lunddal á lista UEFA yfir mest spennandi leikmenn
Íslenski bakvörðurinn Valgeir Lunddal Friðriksson er á lista evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, yfir þá leikmenn sem gætu sprungið út á nýju ári.

Óskar Hrafn var á blaði hjá Kalmar
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta, var á blaði hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kalmar FF þegar liðið var í þjálfaraleit á dögunum. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Óskar Hrafn er orðaður við lið í Svíþjóð.

Brynjar Ingi orðaður við Gautaborg
Miðvörðurinn Brynjar Ingi Bjarnason, leikmaður Vålerenga í Noregi, er á jólagjafalista Gautaborgar í Svíþjóð.

„Eins og staðan er núna þá verð ég áfram en maður veit aldrei hvað gerist“
Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson lék frábærlega með Norrköping á nýafstöðu tímabili í Svíþjóð. Hann kom á láni til félagsins frá CSKA Moskvu og hefur lítinn áhuga á að fara aftur til Moskvu eins og staðan er í dag. Arnór var meðal gesta í útvarpsþættinum Fótbolti.net sem er alla laugardaga á X-977.

Svekkelsi hjá Brynjari sem bíður eftir jólunum
Brynjar Björn Gunnarsson er kominn heim til Íslands eftir stutta dvöl í Svíþjóð en þessi margreyndi þjálfari vildi ekki staðfesta hvort hann væri kominn í hlé frá þjálfun.

Ein besta knattspyrnukona Svía setur skóna upp á hillu og gerist lögreglukona
Sænska knattspyrnukonan Nilla Fischer hefur spilað sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum en hún segir að skrokkurinn sinn þoli ekki meira.

„Ég bara get ekki útskýrt af hverju“
Knattspyrnukonan Berglind Rós Ágústsdóttir er án félags þessa stundina eftir að samningur hennar við sænska liðið Örebo rann út um síðustu mánaðamót. Berglind vakti mikla athygli undir lok síðasta tímabils í Svíþjóð þegar hún fór óvænt að raða inn mörkum sem framherji Örebro, eftir að hafa leikið sem miðvörður félagsins allar götur fram að því.

Brynjar Björn rekinn þrátt fyrir að halda Örgryte uppi
Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari Örgryte í sænsku B-deildinni í fótbolta. Hann tók við liðinu í maí síðastliðnum en er nú atvinnulaus.

Hlín spilar hjá Elísabetu næstu tvö ár
Hlín Eiríksdóttir, landsliðskona í fótbolta, hefur fundið sér nýtt félag í Svíþjóð og skrifað undir samning til tveggja ára við Kristianstad.

Sólveig í stað Berglindar hjá Örebro
Sænska úrvalsdeildarliðið Örebro verður ekki Íslendingalaust á næsta tímabili því Sólveig Jóhannesdóttir Larsen hefur samið við það til tveggja ára.

Túfa hreppir annan Íslending
Keflvíski bakvörðurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson hefur loks verið kynntur til leiks hjá sænska knattspyrnufélaginu Öster. Hann skrifaði undir samning við félagið sem gildir til næstu þriggja ára.

Piteå segir takk og bless við Hlín
Íslenska landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir spilar ekki áfram með sænska liðinu Piteå.