
Sænski boltinn

Íhuga að rifta samningi Kolbeins
Gautaborg, lið Kolbeins Sigþórssonar í Svíþjóð, vill ekki tjá sig um framtíð leikmannsins hjá félaginu að svo stöddu. Håkan Mild, framkvæmdastjóri félagsins, segir stjórn þess nú vera ræða sín á milli hvað skuli gera í málinu.

Gautaborg fordæmir hegðun Kolbeins og er með málið til skoðunar
IFK Gautaborg, lið Kolbeins Sigþórssonar, sendi frá sér tilkynningu í kvöld vegna kynferðisbrots hans árið 2017. Hegðun hans er fordæmd og málið er til skoðunar hjá félaginu.

Berglind spilaði allan leikinn í dramatískum sigri
Berglind Rós Ágústsdóttir spilaði allan leikinn í hjarta varnar Örebro sem vann 2-1 sigur á Linköping í lokaleik 14. umferðar sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Ari og Ísak fara með gott veganesti í landsleikina
Ari Freyr Skúlason og Ísak Bergmann Jóhannesson léku báðir allan leikinn fyrir Norrköping sem vann 3-0 sigur á Östersund í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Diljá á skotskónum í stórsigri í Íslendingaslagnum
Diljá Ýr Zomers skoraði eitt marka Häcken er liðið vann 5-1 sigur á Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Berglind Björg Þorvaldsdóttir var í byrjunarliði tapliðsins.

Guðrún og Rosengård með stórsigur
Guðrún Arnardóttir spilaði allan likinn í liði Rosengård í sænska boltanum í dag. Rosengård vann 4-0 stórsigur þegar að liðið heimsótti Vittsjö.

Diljá Zomers hafði betur í Íslendingaslag
Íslendingaliðin Kristianstad og Häcken áttust við í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Kristianstad og þær Sveindís Jane Jónsdótti og Sif Atladóttir voru í byjunarliðinu, en Diljá Zomers kom inn á af varamannabekk Häcken sem vann að lokum 3-1.

Jón Guðni svaraði bauli með dónalegri handabendingu
Jón Guðni Fjóluson var ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum Elfsborgar er lið hans Hammarby var í heimsókn í Elfsborg í dag. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli eftir mikla dramatík.

Rosengård rústaði Íslendingaslagnum - Hlín sneri aftur
Rosengård vann 6-0 sigur á Örebro í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Liðið viðheldur öruggu forskoti sínu á toppi deildarinnar.

Grátleg byrjun hjá Sveini Aroni í Íslendingaslag - tap hjá Norrköping
Fjórir Íslendingar voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sveinn Aron Guðjohnsen spilaði sinn fyrsta leik fyrir Elfsborg gerði 2-2 jafntefli við Hammarby og Íslendingalið Norrköping tapaði fyrir Halmstad.

Fyrsti sigurinn í tæpa þrjá mánuði
Hallbera Gísladóttir og liðsfélagar hennar í AIK unnu 1-0 sigur á Djurgården í Stokkhólmsslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurinn var AIK langþráður.

Tap í fyrsta leik Berglindar í Svíþjóð
Íslenska landsliðskonan Berglind Björg Þorvalsdóttir þreytti frumraun sína fyrir Hammarby í Svíþjóð er liðið tapaði 2-0 á heimavelli fyrir Eskiltuna United í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Cecilía hjá Everton til 2024 og segir liðið á leið að verða eitt það besta í Evrópu
Cecilía Rán Rúnarsdóttir gengur í raðir Everton í janúar og hefur skrifað undir samning við enska knattspyrnufélagið sem gildir fram í júní 2024.

Gugga um lífið eftir ferilinn : Stefndi á EM 2021, gat ekki neitað tilboði Eskilstuna og vildi vera meira með tvíburunum
Guðbjörg Gunnarsdóttir lagði hanskana nokkuð óvænt á hilluna nýverið eftir farsælan feril hér heima, erlendis sem og með íslenska landsliðinu. Ólíkt öðru atvinnuíþróttafólki sem hættir keppni þá hefur Gugga nú þegar tekið næsta skref og er orðinn markmannsþjálfari Eskilstuna í Svíþjóð.

Höfðum áður reynt að fá Berglindi til okkar
Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur samið við eitt af bestu liðum sænsku úrvalsdeildarinnar og ætlar að hjálpa liðinu að vinna sér sæti í Evrópukeppninni í haust. Hún skrifaði undir hjá Hammarby og er samningurinn út næsta ár.

Berglind Björg fer frá Frakklandi til Svíþjóðar og semur við Hammarby
Íslenski landsliðsframherjinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir er búin að finna sér nýtt félag í Svíþjóð eftir að hafa spilað undanfarið í Frakklandi.

Elísabet sækir liðsstyrk til Vestmannaeyja
Markahæsti leikmaður ÍBV í Pepsi Max deild kvenna í sumar er gengin til liðs við Íslendingalið Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni.

Ísak Bergmann á skotskónum í sigri
Ungstirnið Ísak Bergmann Jóhannesson kom Norrköping á bragðið þegar liðið lagði Östersund að velli í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Jafntefli í íslendingaslag AIK og Kristianstad
Það var sannkallaður íslendingaslagur í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar að AIK fékk Elísabetu Gunnarsdóttir og Kristianstad í heimsókn. Hallbera Guðný Gísladóttir var í byrjunarliði AIK og bar þar að auki fyrirliðabandið. Hjá Kristianstad voru bæði Sveindís Jane Jónsdóttir og Sif Atladóttir í byrjunarliðinu.

Sveinn Aron til Svíþjóðar
Sveinn Aron Guðjohnsen landsliðsmaður í knattspyrnu hefur gegnið til liðs við sænska liðið Elfsborg. Hann kemur til liðsins frá Spezia á Ítalíu.

Guðrún talin vanmetnasti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar
Íslenska landsliðskonan Guðrún Arnardóttir var á dögunum valin vatnmetnasti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Hún skipti yfir í topplið Rosengård á dögunum til að fylla skarð Glódísar Perlu Viggósdóttur.

Guðbjörg í þjálfarateymi Eskilstuna
Guðbjörg Gunnarsdóttir, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands og atvinnumaður í knattspyrnu, var ekki lengi að finna sér starf eftir að hafa lagt hanskana á hilluna.

Slæmt heimatap Norrköping í sex stiga leik
Ari Freyr Skúlason og Ísak Bergmann Jóhannesson voru báðir í byrjunarliði Norrköping sem tapaði 2-1 fyrir Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Norrköping dregst aftur úr í baráttunni um Evrópusæti með tapinu.

Markalaust í Íslendingaslag
Tveir íslenskir knattspyrnumenn voru í eldlínunni í sænska boltanum í dag þegar Gautaborg fékk Hammarby í heimsókn.

Valgeir og Oskar komu við sögu í stórsigri
Häcken vann 5-0 sigur á Östersunds í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Tveir Íslendingar eru á mála hjá sænska liðinu.

Sveinn sagður fara frá Spezia til Svíþjóðar
Sveinn Aron Guðjohnsen er sagður á leið til Elfsborgar í Svíþjóð. Hann hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Spezia á Ítalíu.

Ari og Ísak höfðu betur gegn Kolbeini og félögum
Það var boðið upp á Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Ingibjörg og Sveindís á skotskónum í Íslendingaslag
Íslendingaliðin Valerenga og Kristianstad mættust í æfingaleik í dag.

Íslendingaliðin áfram - Hákon lék sinn fyrsta leik fyrir FCK
Íslendingaliðin Molde og Hammarby komust bæði áfram í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. 18 ára Íslendingur spilaði þá sinn fyrsta leik fyrir FC Kaupmannahöfn er danska liðið fór sömuleiðis áfram í keppninni.

Ari Freyr lagði upp í Íslendingaslag
Tveimur leikjum var að ljúka í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og það voru Íslendingar í eldlínunni í þeim báðum. Hammarby vann 2-1 sigur á heimavelli gegn Norrköping, og Häcken gerði 1-1 jafntefli gegn Elfsborg.