
Sænski boltinn

Alex Þór skoraði sitt fyrsta mark í Svíþjóð | Ísak Óli spilaði í sigri
Miðjumaðurinn Alex Þór Hauksson skoraði sitt fyrsta mark í sænsku B-deildinni er Öster gerði 2-2 jafntefli við Brage. Þá lék miðvörðurinn Ísak Óli Ólafsson 70 mínútur er Esbjerg vann 2-0 sigur í dönsku B-deildinni.

Jón Guðni fór meiddur af velli í tapi gegn Norrköping
Landsliðsmiðvörðurinn Jón Guðni Fjóluson fór meiddur af velli er Hammarby tapaði 3-1 fyrir Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Miðvörðurinn gæti misst af landsleikjum Íslands gegn Armeníu og Liechtenstein.

Berglind Björg og Hlín skiptu stigunum á milli sín
Berglind Björg Þrovaldsdóttir var í byrjunarliði Hammarby og Hlín Eiríksdóttir kom inn á sem varamaður fyrir Piteå þegar að liðin gerðu 1-1 jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Guðrún og félagar þurftu að sætta sig við tap í toppbaráttunni
Guðrún Arnardóttir og félagar hennar í Rosengård þurftu að sætta sig við 2-0 tap þegar að liðið heimsótti Häcken í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Diljá Ýr Zomers sat allan tíman á varamannabekk Häcken.

Berglind og Cecilia stálu stigi í Íslendingaslag
Í dag mættust Kristianstad og Örebro í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sveindís Jane Jónsdóttir og Sif Atladóttir, undir stjórn Elísabetu Gunnarsdóttir í Kristianstad, gerðu 2-2 jafntefli gegn Berglindi Rós Ágústsdóttir og Ceciliu Rúnarsdóttir í liði Örebro.

Hallbera hafði betur í Íslendingaslag
AIK tók á móti Växjö í sænsku úrvlsdeildinni í knattspyrnu í dag. Hallbera Guðný Gísladóttir bar fyrirliðabandið fyrir AIK, en Andrea Mist Pálsdóttir sat á varamannabekk Växjö. Mark á lokamínútum leiksins tryggði AIK 1-0 sigur.

Sænski boltinn: Jón Guðni skoraði í Jafntefli
Nokkrir íslenskir leikmenn voru í eldlínunni í dag þegar fjórir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Rosengård og Kristianstad skildu jöfn í Íslendingaslag
Guðrún Arnardóttir og liðsfélagar hennar í Rosengård tóku á móti Íslendingaliði Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Rosengård er enn á toppi sænsku deildarinnar eftir 1-1 jafntefli.

Daníel Freyr skoraði yfir endilangan völlinn | Stórleikur Bjarna Ófeigs ekki nóg
Þrír Íslendingar voru í eldlínunni í sænska handboltanum í kvöld. Daníel Freyr Andrésson stóð vaktina í marki Eskilstuna og skoraði í sigri, Bjarni Ófeigur Valdimarsson átti stórleik í tapi Skövde og þá skoraði Teitur Örn Einarsson þrjú mörk í jafntefli Kristianstad.

Jón Guðni samdi við Milos um að spila ekki: „Líkaminn orðinn svolítið þreyttur“
Það vakti athygli sænska miðilsins Fotbollskanalen að landsliðsmaðurinn Jón Guðni Fjóluson skyldi ekki spila með Hammarby í 3-0 sigrinum gegn IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Jón Guðni segist einfaldlega hafa þurft hvíld.

Segir Kolbein verða að „gangast við því að hann sé gerandi“ og hjálpa öðrum
Ef að Kolbeinn Sigþórsson á að spila aftur fyrir lið IFK Gautaborgar krefst það afar mikillar vinnu af hálfu bæði hans og félagsins, svo að fólki geti liðið vel með að hann njóti þeirra forrétinda. Sumum mun ekki líða vel með það.

Gautaborg styður Kolbein og setur upp langtíma áætlun fyrir hann
Gautaborg styður við bakið á Kolbeini Sigþórssyni og mun ekki segja samningi hans upp.

Lars ekki hættur og ætlar að hjálpa til við að bjarga Östersund frá falli
Þrátt fyrir að vera orðinn 73 ára er Lars Lagerbäck ekki alveg hættur í þjálfun. Hann aðstoðar nú gamlan vin sinn að reyna að halda Östersund í sænsku úrvalsdeildinni.

Þrjár í úrvalsliði fyrir landsleikinn: Cecilía sögð kona stóru leikjanna
Nú þegar vika er í stórleik Íslands og Hollands á Laugardalsvelli, í nýrri undankeppni HM kvenna í fótbolta, hafa þrír Íslendingar verið valdir í lið síðustu umferðar í sænsku úrvalsdeildinni.

Sjáðu fyrsta mark Sveins Arons fyrir Elfsborg | Aron Elís lék allan leikinn í sigri
Alls fóru tveir Íslendingaslagir fram í sænsku og dönsku úrvalsdeildunum í fótbolta í kvöld. Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði sitt fyrsta mark í sænsku úrvalsdeildinni.

Sjáðu markið: Þrumuskot Sveindísar Jane tryggði sigurinn
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði sigurmark Kristianstad gegn Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Markið var einkar glæsilegt.

Guðrún hafði betur gegn Berglindi | Ísak Bergmann og Andri Fannar komu af bekknum
Fjöldinn allur af Íslendingum var í eldlínunni í úrvalsdeild kvenna í fótbolta í Svíþjóð og karla í Danmörku.

Sveindís Jane með sigurmark Kristianstad
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði sigurmark Kristianstad þegar liðið bar sigurorð af Linköping í sænsku úrvalsdeildinni fyrr í dag.

Ákvörðun um Kolbein tekin í næstu viku
Rannsókn sænska knattspyrnufélagsins IFK Gautaborg á máli Kolbeins Sigþórssonar ætti að ljúka í byrjun næstu viku og þá skýrist hvort hann á sér framtíð hjá félaginu.

Norrköping tryggði sér væna sneið af Ísakskökunni
FC Kaupmannahöfn gæti þegar allt verður talið á endanum greitt 750 milljónir íslenskra króna fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson og klásúla í samningi tryggir IFK Norrköping hlut í næstu sölu á knattspyrnumanninum unga.

Sveindís Jane lagði upp í tapi í Íslendingaslag
Íslendingaliðin Kristianstad og Hammarby mættust í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Sveindís Jane Jónsdóttir lagði upp mark Kristianstad, en liðið þurfti að sætta sig við 2-1 tap.

Örebro og Häcken unnu Íslendingaslagina
Tveir Íslendingaslagir voru á dagskrá í úrvalsdeild kvenna í fótbolta í Svíþjóð í dag. Toppliðin tvö í deildinni gefa lítið eftir og þá urðu úrslit dagsins Kristianstad og Hammarby hliðstæð í Evrópubaráttunni.

Gautaborg setur Kolbein til hliðar
Kolbeinn Sigþórsson kemur ekkert nálægt aðalliði Gautaborgar á meðan rannsókn á máli hans stendur yfir.

Þurfti nýja áskorun en hafði engan áhuga á að fara til Juventus eða Man United
Ísak Bergmann Jóhannesson samdi við danska stórliðið FC Kaupmannahöfn rétt í þann mund er félagaskiptigluggi Evrópu lokaði. Þessi 18 ára landsliðsmaður hefur verið orðaður við flest stórlið Evrópu en tók á endanum þá ákvörðun að fara til Kaupmannahafnar.

Segir Ísak Bergmann hafi valið rétt og að FCK muni græða: „Munu selja hann fyrir hærri upphæð en þeir greiddu“
Ísak Bergmann Jóhannesson, einn eftirsóttasti og efnilegasti leikmaður Svíþjóðar, samdi við FC Kaupmannahöfn á dögunum. Sænski miðillinn Sportbladet fór ofan í saumana á því hvernig einn eftirsóttasti leikmaður efstu deildar endaði í Danmörku.

Harðkjarna stuðningmenn Gautaborgar krefjast þess að félagið losi sig við Kolbein
Hörðustu stuðningsmenn Gautaborgar, Ultras, krefjast þess að félagið rifti samningi sínum við Kolbein Sigþórsson.

Styrkja baráttuna gegn kynferðisofbeldi og vilja að Kolbeinn sýni iðrun
„Við gerum okkur grein fyrir því að margir telja leikmanninn ekki lengur verðskulda að spila fyrir IFK Gautaborg,“ segir í yfirlýsingu stuðningsmannaklúbbs IFK Gautaborgar vegna máls Kolbeins Sigþórssonar. Stuðningsmennirnir hafa ákveðið að styrkja samtök sem berjast gegn kynferðisofbeldi.

Ísak Bergmann spenntur fyrir komunni til Kaupmannahafnar: „Forza FCK“
Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar danska stórliðið FC Kaupmannahöfn tilkynnti að Ísak Bergmann Jóhannesson hefði skrifað undir samning við félagið til ársins 2026.

Samningi Kolbeins ekki rift
Samningi sænska knattspyrnufélagsins IFK Gautaborgar við Kolbein Sigþórsson verður ekki rift. Þetta segir Pontus Farnerud, íþróttastjóri sænska félagsins.

AIK segir KSÍ ekki hafa látið sig vita af brotum Kolbeins
Sænska úrvalsdeildarfélagið AIK segist ekki hafa fengið upplýsingar frá KSÍ um ofbeldisbrot Kolbeins Sigþórssonar þegar það samdi við leikmanninn fyrir rúmum tveimur árum.