Sveitarstjórnarmál
34 35 36 37 38 39 40 … 40 ›
L-listinn í Skeiða og Gnúpverjahreppi leysist upp L-listinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, listi áhugafólks um farsæla sameiningu, býður ekki fram í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta kemur fram á fréttavefnum sudurland.net. L-listinn fékk hreinan meirihluta í síðustu sveitarstjórnarkosningum, fékk fjóra fulltrúa en A-listi framfarasinna 3. Langvinn deila um skólamál í hreppnum er ein aðalskýring þessarar ákvörðunar fulltrúa L-listans. Innlent 26.1.2006 14:31
Sjálfstæðisflokkurinn með mesta fylgið Tæp 44% Reykvíkinga segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn yrði boðað til Alþingiskosninga núna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, en kjörfylgi flokksins í Reykjavík var 37% í síðustu kosningum. Innlent 26.1.2006 07:30
Árangurinn kom Ásthildi á óvart Gunnsteinn Sigurðsson vann baráttu fjögurra einstaklinga um annað sætið á framboðslista Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Einna mesta athygli í prófkjöri þeirra í gær vekur þó árangur nýliðans Ásthildar Helgadóttur sem segir árangurinn hafa komið sér á óvart. Innlent 22.1.2006 12:14
Sameining samþykkt Íbúar fjögurra sveitafélaga í Þingeyjasýslu samþykktu sameiningu í gærkveldi og tekur sameiningin gildi við sveitarstjórnarkosningar í vor. Innlent 22.1.2006 10:32
Gunnsteinn vann baráttuna um annað sætið Gunnsteinn Sigurðsson vann baráttuna um að skipa annað sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Þrír karlmenn skipa efstu sætin eftir prófkjör í gær og konur urðu í næstu sjö sætunum. Innlent 22.1.2006 10:29
Mikil spenna í prófkjöri Sjálfstæðismanna 306 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi klukkan tólf. Mikil barátta stendur um hver skipar annað sæti listans fjórir stefna að því marki og hefur flokksmönnum í Kópavogi fjölgað um nær þriðjung síðustu daga. Innlent 21.1.2006 11:48
Fimmtán í framboði Fimmtán taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar en kjörstaðir opnuðu klukkan níu. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri gefur einn kost á sér í fyrsta sætið en fjögur keppa um annað sætið á listanum. Innlent 21.1.2006 09:26
Kosið um sameiningu fjögurra sveitarfélaga Íbúar Húsavíkur, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps kjósa í dag um sameiningu sveitarfélaganna. Íbúar þessara fjögurra sveitarfélaga samþykktu sameiningu sjö sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum síðasta haust en þá var sameiningu hafnað í þremur sveitarfélögum og því féll tillagan. Innlent 21.1.2006 08:55
Bæjarstarfsmannafélög lýsa yfir vonbrigðum með Launamálaráðstefnu Samflot bæjarstarfsmannafélaga hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem lýst er yfir miklum vonbrigðum með að ekki hafi verið gefin skýr skilaboð eftir launamálaráðstefnu sveitarfélaga um hvernig leysa eigi þann hnút sem launamál sveitarfélaganna eru í. Innlent 20.1.2006 22:49
Samstaða náðist á launamálaráðstefnu sveitarfélaganna um að hækka allra lægstu launin verulega Eftir launamálaráðstefnu sveitarfélaganna í dag stendur ekki til að opna kjarasamninga heldur er lagt upp með að sveitarfélögum verði heimilt að greiða laun umfram kjarasamninga. Samstaða náðist um að hækka allra lægstu launin verulega. Um eitthundrað leikskólakennarar mættu við upphaf ráðstefnunnar til að minna á slök launakjör sín. Innlent 20.1.2006 21:08
Fjórtán þúsund lóðum úthlutað Stærstu sveitarfélög landsins úthlutuðu lóðum undir nær fjórtán þúsund íbúðir síðustu sex árin. Þar af var rúmlega helmingi lóðanna úthlutað síðustu tvö árin. Þetta kemur fram í svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Kjartans Ólafssonar þingmanns. Innlent 17.1.2006 14:08
Tuttugu gefa kost á sér Tuttugu manns gefa kost á sér í prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, en prófkjörið verður ellefta febrúar. Innlent 17.1.2006 06:28
Fjölmenni á fyrsta bæjarstjórnarfundinum Um tíundi hver íbúi Voga á Vatnsleysuströnd, eða um hundrað manns, mætti á bæjarstjórnarfund í gær. Fundurinn var sá fyrsti sem bæjarstjórn heldur eftir að hreppurinn sem lengi hefur verið til varð að sveitarfélagi. Innlent 13.1.2006 15:44
Sorphirðan dýrust á Ísafirði Ísfirðingar greiða hæst sorphirðugjöld af íbúum fimmtán stærstu sveitarfélaga landsins. Þau hafa jafnframt hækkað meira á milli ára en í öllum hinum stærstu sveitarfélögunum. Innlent 13.1.2006 15:25
Of lágt boðið í hlut borgarinnar. Borgarfulltrúar allra flokka í borgarstjórn Reykjavíkur eru ósáttir við það verð sem ríkisvaldið er reiðubúið að greiða fyrir hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Stjórnvöld eru reiðubúin að greiða 56 milljarða króna en það eru fulltrúar R-lista, Sjálfstæðisflokks og Frjálslynda flokksins sammála um að sé of lágt. Innlent 12.1.2006 14:45
Álagningarprósentan lækkar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í dag að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á íbúðahúsnæði um 20 prósent, eða úr 0,335 prósentum í 0,27 prósent. Lóðarleiga og vatnsgjald lækka einnig. Þetta verður þó ekki til að álögur lækka heldur hækka þær ekki meira en sem nemur verðlagsþróun. Innlent 10.1.2006 19:26
Gunnsteinn vill 2. sætið Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, sækist eftir 2. sæti í prófkjöri flokksins vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Gunnsteinn skipaði 3. sæti á framboðslista flokksins fyrir fjórum árum en leggur nú til atlögu við Ármann Kr. Ólason sem þá skipaði 2. sætið. Innlent 9.1.2006 22:04
Sveitarfélög í fyrsta sinn færri en hundrað Sveitarfélögum landsins fækkar um þrjú á nýársdag þegar sameining fjögurra sveitarfélaga undir nafni Húnavatnshrepps tekur gildi. Innlent 30.12.2005 16:58
Kristján Þór vill fyrsta sætið Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri sækist eftir fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar næsta vor. Hann útilokar ekki að fara í þingframboð. Innlent 22.12.2005 10:29
Reykjavík fær langmest fé Reykjavík fær tvöfalt hærra framlag úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga en það sveitarfélag sem fær næst mest úr sjóðnum. Framlögin sem Reykjavík fær eru að stærstum hluta vegna greiðslu húsaleigubóta. Innlent 21.12.2005 15:02
Fá fría leikskólavist hálfan daginn Öll börn á Seyðisfirði fá fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa leikskólavist frá og með áramótum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum í gær að bjóða dagfrjálsan leikskóla hálfan daginn fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en þetta stendur fimm ára börnum þegar til boða. Innlent 13.12.2005 22:44
Öll börn fái fjóra tíma gjaldfrjáls á leikskóla Öll börn á Seyðisfirði frá eins árs til fimm ára aldurs eiga að fá fjögurra klukkustunda ókeypis dagvistun á leikskólum samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Seyðisfjarðar í dag. Innlent 13.12.2005 21:42
Tólf í framboði í Garðabæ Tólf taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ þar sem valið verður í efstu sæti á lista flokksins við bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Innlent 12.12.2005 16:45
Vilja áhættumat fyrir olíuflutninga Bæjarstjórn Hafnarfjarðar vill að áhættugreining verði gerð vegna olíuflutning og hvetur samgönguyfirvöld til að hefjast handa við slíka vinnu. Mikið magn olíu fer um Hafnarfjörð í viku hverri og vilja bæjaryfirvöld að áhættugreining liggi fyrir svo hægt sé að skipuleggja viðbrögð ef eitthvað kemur upp á. Innlent 8.12.2005 09:29
Ríkið borgar sveitarfélögunum Tekjur sveitarfélaganna aukast um 200 milljónir króna þegar ríkið fer í fyrsta sinn að greiða fasteignagjöld af húsnæði í sinni eigu. Ríkisvaldið hefur hingað til ekki þurft að greiða sveitarfélögum fasteignagjöld af eignum sínum. Þetta breytist hins vegar um áramót vegna samkomulags sveitarfélaganna og ríkisins um tekjustofna sveitarfélaga. Innlent 7.12.2005 16:07
Stefna á framboð í sex sveitarfélögum Frjálslyndir stefna á framboð í minnst sex sveitarfélögum næsta vor. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum buðu þeir fram lista í þremur sveitarfélögum og komu manni í bæjar- eða borgarstjórn í tveimur þeirra. Innlent 7.12.2005 08:05
Tveir listar í framboði Tveir listar verða í framboði við sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Bólstaðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps laugardaginn 10. desember næstkomandi. Listarnir eru Listi framtíðar og Nýtt afl. Þá verður kosið milli þriggja tillagna að nafni nýja sveitarfélagsins. Innlent 29.11.2005 17:03
Ólafur Þór Gunnarsson leiðir listann Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir verður í fyrsta sæti Vinstri Grænna í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Innlent 26.11.2005 22:04
Íhuga nýtt framboð í Eyjum Nýtt framboð gæti bæst í flóruna í Vestmannaeyjum fyrir bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Fréttavefurinn Eyjar.net greinir frá því að um tíu manns hafi komið saman til fundar í gær til að ræða framtíðarsýn Vestmannaeyja og hugsanlegt framboð við næstu bæjarstjórnarkosningar. Innlent 25.11.2005 14:20
Orkuveitan tapaði dómsmáli Hæstiréttur vísaði í gær frá dómi kröfu Orkuveitu Reykjavíkur um að álit Kærunefndar útboðsmála þess efnis að Orkuveitan væri skaðabótaskyld gagnvart Toshiba vegna útboðs fyrir búnað til Hellisheiðarvirkjunar. Innlent 22.11.2005 06:33