Rússarannsóknin

Repúblikanar hafna lykilniðurstöðu leyniþjónustunnar og ljúka rannsókn
Rannsókn neðri deildar Bandaríkjaþings á afskiptum Rússa af forsetakosningunum er lokið. Repúblikanar segja Rússa ekki hafa ætlað að hjálpa Donald Trump, þvert á álit leyniþjónustunnar.

Vísbendingar um tilraun til leynilegra samskipta milli stjórna Trump og Pútín
Fundur sem óformlegur ráðgjafi Trump átti með rússneskum bankamanni á Seychelles-eyjum er talin ein fyrsta tilraunin til að koma á samskiptum á milli stjórnar Trump og Rússa á bak við tjöldin.

Trump spurði vitni í Rússarannsókn út í framburð þeirra
Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddi við tvö lykilvitni um vitnisburð þeirra.

Ráðgjafi Sameinuðu furstadæmanna vinnur með rannsakendum Mueller
Maðurinn var stöðvaður þegar hann var á leið á fögnuð í tilefni embættisafmælis Trump í Mar-a-Lago í janúar.

Fyrrverandi ráðgjafi: Trump gæti hafa gert eitthvað ólöglegt
Sam Nunberg, fyrrverandi ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, segir að hann muni ekki una stefnu til að bera vitni í rannsókn Roberts Mueller á afskiptum Rússa í forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016.

Fylgdarkona segist hafa sannanir um afskipti Rússa í Bandaríkjunum
Konan var handtekin á kynlífsnámskeiði í Taílandi og segist veita bandarískum yfirvöldum gögnin ef hún fær pólitískt hæli vestanhafs.

Mueller rannsakar hvort arabar hafi keypt pólitíska greiða hjá Trump
Til rannsóknar er hvort að fulltrúar Sameinuðu arabísku furstadæmanna hafi reynt að kaupa sér áhrif með því að veita fé í kosningasjóði Trump.

Ákærur gegn Rússum sem stálu tölvupóstum demókrata sagðar í undirbúningi
Tölvupóstum demókrata og framboðs Hillary Clinton var lekið á Wikileaks eftir að rússneskir hakkarar stálu þeim árið 2016.

Fyrirtæki tengdasonar Trump fengu stór lán eftir fundi í Hvíta húsinu
Lán upp á rúmlega 500 milljónir dollara voru veitt fyrirtækjum Jareds Kushner, ekki löngu eftir fundi sem hann átti með forsvarsmönnum fjármálafyrirtækjanna.

Fyrrverandi kosningastjóri Trump neitar sök
Réttarhöld yfir Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóra Donalds Trump, hefjast um miðjan september.

Erlend ríki reyna að notfæra sér tengdason Trump
Fáir starfsmenn Hvíta hússins hafa haft eins flókið net viðskiptahagsmuna og skulda og Jared Kushner, tengdasonur Trump Bandaríkjaforseta. Erlend ríki eru sögð reyna að notfæra sér reynsluleysi hans og viðskiptahagsmuni.

Hvíta húsið vill ekki segja hvort öryggisheimildir hafi verið afturkallaðar
Tengdasonur og dótir Trump forseta eru á meðal þeirra sem hafa aðeins haft tímabundna öryggisheimild um margra mánaða skeið.

Svar demókrata við umdeildu minnisblaði repúblikana loks gert opinbert
Minnisblað repúblikana er sögð gegnsæ tilraun til að grafa undan Rússarannsókninni í svari demókrata sem birt var í kvöld.

Evrópskir stjórnmálamenn sverja af sér tengsl við kosningastjóra Trump
Fyrrverandi kanslari Austurríkis segist ekki hafa vitað af því að Paul Manafort hefði fjármagnað hóp sem hann stýrði sem ræddi um málefni Úkraínu fyrir fimm árum.

Evrópskir stjórnmálamenn blandast inn í Rússarannsóknina
Fyrrverandi kosningastjóri Trump greiddi evrópskum fyrrverandi stjórnmálamönnum á laun fyrir að tala máli úkraínskra stjórnvalda sem voru höll undir Kreml.

Starfsmaður framboðs Trump játar sök
Rick Gates gæti veitt rannsakendum upplýsingar um það sem gekk á innan forsetaframboðs Donalds Trump fyrir kosningarnar árið 2016. Hann hefur gert samkomulag við saksóknara.

Starfsmenn framboðs Trump ákærðir fyrir fleiri fjármálaglæpi
Fleiri liðum um fjársvik og peningaþvætti hefur verið bætt við ákæru á hendur fyrrverandi kosningastjóra og aðstoðarkosningastjóra Donalds Trump.

Bætt við ákærurnar gegn starfsmönnum framboðs Trump
Ekki er ljóst hvort að nýjum áskökunum hafi verið bætt við eða hugsanlegu samkomulagi um játningu annars eða beggja sakborninga.

Mueller ákærir lögmann fyrir lygar
Hann á að hafa logið um samskipti sín við Rick Gates, fyrrverandi starfsmann forsetaframboðs Donald Trump, og um vinnu hans fyrir Dómsmálaráðyneyti Úkraínu árið 2012.

Upplýsingahernaður háður úr „Tröllaverksmiðju“ í Pétursborg
Helstu atriði ákæru Robert Mueller í Rússarannsókninni svokölluðu.

Mueller hefur áhuga á fjármálum tengdasonar Bandaríkjaforseta
Jared Kushner var aðaltengiliður undirbúningsnefndar fyrir valdatöku Donalds Trump við erlendar ríkisstjórnar. Á sama tíma stóð hann í viðræðum við erlenda aðila um fjármögnun fyrir fjölskyldufyrirtæki sitt.

Starfsmaður framboðs Trump tilbúinn að bera vitni gegn kosningastjóranum
Rick Gates er sagður hafa náð samkomulagi við rannsakendur Roberts Mueller um að vinna með þeim. Hann gæti borið vitni gegn Paul Manafort, fyrrverandi kosningarstjóra Trump.

Trump ræðst á alla nema Rússa
Í fjölda tísta sem sneru að mestu að Rússarannsókninni svokölluðu og innihéldu margar villur var þó einn aðili sem slapp við alla gagnrýni. Vladimir Putin, forseti Rússlands.

Utanríkisráðherra Rússlands gefur lítið fyrir ákærurnar
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði að hann myndi ekki tjá sig um ákærur á hendur þrettán Rússum vegna afskipta af forsetakosningunum fyrr en hann sjái haldbærar staðreyndir um málið.

Ákærur Muellers gleðja Trump
Segir þær sanna að framboð hans tengist málinu ekki.

Þrettán Rússar ákærðir vegna rannsóknar Muellers
Sakaðir um að hafa áhrif á kosningar í Bandaríkjunum.

Bannon yfirheyrður af teymi Mueller
Yfirheyrslurnar fóru fram fyrr í vikunni og stóðu yfir í tvo daga.

Vill umbylta bakgrunnskönnunum vegna öryggisheimilda
Allt að 700 þúsund slíkar umsóknir sitja fastar í kerfinu og telja sérfræðingar að um 200 þúsund undanþágur hafi verið veittar.

Sagði að minnisblað Demókrata verið birt „bráðum“ en hætti við
Talsmaður Hvíta hússins sagði þó skömmu seinna að Trump væri að meta stöðuna og myndi ákveða sig innan skamms.

„Bomban“ sem Trump tísti um aftengd samdægurs
Skilaboð sem áttu að sýna að Obama hefði verið með puttana í rannsókn FBI á Hillary Clinton vörðuðu áhuga hans á viðbrögðum FBI við afskiptum Rússa af forsetakosningunum.